Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 20
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Ég sagði að ég sængaði
ekki hjá kvæntum mönnum,
en átti við að ég sænga ekki
hjá mönnum sem eru ham-
ingjusamlega kvæntir.“
Elizabeth Taylor giftist í 8. sinn
Í ár eru 120 ár síðan Vík í Mýrdal varð
löggiltur verslunarstaður og um helg-
ina verður mikið um dýrðir af því til-
efni.
„Á sama tíma og afmælið kom upp
höfðu bæjaryfirvöld ákveðið að hrinda
af stað menningarveislunni Regnbog-
anum, sem er metnaðarfull og ævin-
týraleg dagskrá til yndisauka fyrir
íbúa og gesti. Markmiðið er að vekja
athygli á umhverfi, sögu og mannlífi
Víkur og nágrennis,“ segir Helga Hall-
dórsdóttir í undirbúningsnefnd Regn-
bogans.
Helga er sjálf fædd og uppalin í
Mýrdalshreppi og hefur búið síðast-
liðna þrjá áratugi í Vík.
„Það sem einkennir Vík er fyrst og
fremst náttúrufegurð, friðsæld og
fuglalíf. Mannlífið er yndislegt og allir
sem einn maður þegar eitthvað bjátar
á eða stendur til,“ segir Helga, en alls
búa 300 manns í Vík, og 500 samtals í
Mýrdalshreppi.
„Hér er yndislegt að ala upp börn
og við pössum vel hvert annað. Börn
læra snemma að bera virðingu fyrir
hættum náttúrunnar og þeim innrætt
frá blautu barnsbeini að fara ekki niður
að sjó nema í fylgd með fullorðnum,“
segir Helga um stórbrotið bæjarstæði
Víkur frá náttúrunnar hendi.
„Vík varð til í kringum tvö stórbýli,
Norður-Vík og Suður-Vík, þar sem
mannmargt var og myndarlega búið.
Við búum við hafnarleysi en menn sáu
möguleika á að koma bátum upp í fjör-
una þar sem var landað vöru. Fyrstur
til að reisa verslunarhús var Bryde
kaupmaður árið 1895, en það hús
stendur enn með fullri reisn. Fyrir
þann tíma fóru menn á Eyrarbakka
að versla, sem tók viku,“ segir Helga
sem býst við fjölda gesta um helgina.
„Hér er jafnan mikið um að vera
á sumrin í ferðaþjónustu og öðru, en
þegar haustar kemur deyfð yfir bæinn.
Þessu viljum við breyta og lengja
ferðamannatímann. Við skynjum
eftirvæntingu í samfélaginu og von-
umst til almennrar þátttöku heima-
manna sem og brottfluttra Mýrdæl-
inga, en landsmenn eru allir velkomnir
og ekki nema tveggja stunda akstur
frá Reykjavík til Víkur á löglegum
hraða,“ segir Helga, og veðurspáin er
sannarlega frábær fyrir Suðurland í
dag og á morgun.
„Hér ræður listagyðjan ríkjum alla
helgina. Í gærkvöldi opnuðum við
sýningu sem Byggðasafnið í Skógum
setti upp í tilefni verslunarafmælis-
ins, og í allan dag og á morgun verður
spennandi menningardagskrá og
mikil tónlistarveisla sem endar með
tónleikum Guðrúnar Gunnarsdóttur
í Víkurkirkju annað kvöld,“ segir
Helga, en alla vikuna hafa grunn-
skólanemendur í Vík unnið að mynd-
list og leiklist sem sýnd verður á hátíð
helgarinnar, og eins munu fjölmargir
listamenn Víkur sýna handverk sitt
um allan bæ.
„Vonandi koma sem flestir til að
samgleðjast okkur og finna með sér
löngun til að dvelja lengur eftir ríku-
lega menningu og listir helgarinnar.
Við bjóðum allt frá svefnpokaplássi til
fínasta hótels og vonumst til að gera
Regnbogann að árlegum viðburði.“
Rúnir og rúnamenning
Í dag gengst Íslenska málfræðifélagið
fyrir ráðstefnu um rúnir og rúnamenn-
ingu þar sem sjö fræðimenn fjalla um
rúnir frá ýmsum hliðum.
Rætt verður um uppruna germanska
rúnastafrófsins, um gotneskar rúnir,
rúnaristur sem heimild um setninga-
gerð norrænu, upphaf og þróun rún-
anna á Íslandi, hlutverk talna og talna-
kerfa í rúnum, rúnakvæði og rúnakenn-
ingar og þýðingar í rúnaristum.
Ráðstefnan stendur frá 11.15 til 16 og
verður haldin í fyrirlestrasal Þjóðar-
bókhlöðu. Hún er öllum opin.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Önnu Albertsdóttur.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu
Sóltúni fyrir góða umönnun.
Haraldur Sighvatsson Elfa Hafdal
Jón Albert Sighvatsson Kristjana Markúsdóttir
Emilía Sighvatsdóttir Halldór Jón Ingimundarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Elín Steinþóra Helgadóttir
Frá Kárastöðum í Þingvallasveit,
lést á Hjúkrunarheimilinu í Víðinesi 1. október sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Gunnlaugur Geir Guðbjörnsson
Guðrún Guðbjörnsdóttir Böðvar Guðmundsson
Erla Guðbjörnsdóttir Kristinn Víglundsson
Einar Guðbjörnsson Hugrún Þorgeirsdóttir
Þóra Einarsdóttir
Kári Guðbjörnsson Anna María Langer
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hrönn A. Rasmussen
hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
áður til heimilis að Vesturgötu 7, Rvík,
andaðist fimmtudaginn 4. október.
Útförin auglýst síðar.
Óskar F. Sverrisson Sigurveig J. Einarsdóttir
Gunnar A. Sverrisson Hrafnhildur Garðarsdóttir
Garðar Sverrisson Gerður Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristín Ágústa Ágústsdóttir
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Grandavegi 47, Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 27. september, verður jarðsung-
in frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, mánudaginn
8. október kl. 13.00.
Garðar Gíslason Margrét Bjarnadóttir
Ögmundur Magnússon Dóra Garðarsdóttir
Sigurður Magnússon Hulda Friðgeirsdóttir
Hjalti Magnússon Jónína Þorbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.