Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 78
„Ég er að kanna ný svæði sem þó halda sig innan hefða tískuhússins,“ útskýrði hönnuður- inn Nicolas Ghesquière á blaðamannafundi áður en sýningin hans fyrir Balenciaga hófst í Versailles-höllinni skammt frá París á þriðjudag. „Ég hef áður unnið með munstur en ég hef aldrei gert blómamunstur fyrr.“ Það má með sanni segja að vor- og sumarlína þessa unga hönn- uðar hafi vakið mikla athygli í hátískuborginni í vikunni. Ghesquière bauð upp á brjáluð og villt blómamunstur sem þó byggðu á blómum sem Cristobal Balenci- aga notaði fyrir mörgum áratugum. Páskaliljur, sóleyjar, villirósir og nellikkur birtust í mikilli litadýrð á stuttum kjólum. Axlir voru breiðar, mitti mjó og sniðin víkkuðu svo aftur á mjöðmum. Fyrirsæt- urnar voru í háum stígvélum sem líktust helst skóm rómverskra skylmingakappa. Einnig sýndi hann framtíðarlega glansandi og þrönga galla í ýmsum málmlitum. „Mig langaði að búa til grafísk form, dálítið eins og sportbíla!“ segir Ghesquière. Franska pressan var sammála um að þessi nýstárlegu föt myndu slá algjörlega í gegn eins og fyrri línur Ghesquière sem er nýjasta undrabarnið í tískuheiminum. Það má því búast við að blóma- munstur verði aðalmálið í búðunum í vor. Tískuvikan í París hófst síðastliðinn mánudag og ég er búin að fá straum af sms-skeytum frá bestu vinkonu minni sem eru vægast sagt pirrandi. „Ég er að drekka kampavín með Önnu Piaggi og Carine Roitfeld“ eða „Ég er á Junya Watanabe-sýningunni og það er geggjað!“ og þar fram eftir götunum. Pirrandi af því að ég er dálítið afbrýðisöm að vita af henni þambandi Bollinger í glamúr-partíum, en óneitanlega líka skemmtilegt af því að ég hef auðvitað líka gaman af að heyra sögur af hinu fríkaða tískuliði. „Ég var búin að gleyma hvernig allar tískudrottningarnar hér klæða sig,“ hljómaði eitt símtalið frá Costes-hótelinu í París á meðan ég var að vaska upp og Reykjavíkurrigningin buldi á gluggunum. Hún útskýrði málið. „Maður verður auðvitað að klæðast alltaf svörtu, vera alltaf á háum hælum, með einn aukahlut eða kápu sem er algjört „möst“ árstíðarinnar og svo verður maður auðvitað að eiga Chanel-tösku eða eitthvað álíka fínt.“ Til þess að upplifa stemninguna með henni hef verið að skoða myndir frá sýningunum í París. Ekki einungis af hönnuninni á tískupöllunum heldur af fremstu bekkjunum og stúdera hvernig konurnar þar klæða sig í ár; konur eins og Anna Wintour, ritstýra bandaríska Vogue, Carine Roitfeld, ritstýra franska Vogue, Trish Halpin, ritstýra In Style, og fleiri og fleiri. Það er greinilega mjög mikilvægt að eiga fallegan svartan eða drapplitaðan regnjakka. Sumar virðast aldrei fara úr frakkanum og leyfa bara háhæluðu skónum að njóta sín við. Og þá komum við að atriði númer tvö: háhælaðir skór eru mjög mikilvægir og sérstaklega ef þeir eru frá Louboutin, Prada eða meistara Manolo Blahnik. Þriðja skothelda lúkkið er litli, svarti kjóllinn, hnésíður og einfaldur í sniði. Reyndar kom hann í ýmsum litaútgáfum í haust og margar konur sáust í litlum fjólu- bláum kjólum ( fjólublár er greinilega LITUR vetrarins) eða litlum gráum kjólum. Reyndar virðast alls konar berjalitir vera mjög vinsælir þetta haustið: hindberjarautt, plómublátt og rifsberjarautt. Fjórða atriðið sem er mjög mikilvægt er leður eða loðfeldir. Þessar konur myndu aldrei hætta að ganga í hlébarðapelsi þó að aðeins tveir hlébarðar væru eftir á jarðarkringlunni. Hlébarðapelsar sáust í massavís á fremstu bekkjunum og enn sáust nokkrir hlébarðaskór á fögrum fótleggjum. Að síðustu er það veskið sem öllu máli skiptir og ég myndi segja að ef kona vill vera alvöru Parísartískudrós væri besta fjárfestingin hennar falleg klassísk taska frá virtu tískuhúsi. Restina getur maður svo alltaf feikað. Tískan á fremsta bekk Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið . V SMS LEIKUR 9. HVER VINNUR! SENDU SMS JA GLF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA! Frumsýnd 12. október Dane Cook Jessica Alba Dan Fogler
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.