Fréttablaðið - 06.10.2007, Síða 88
Eyjólfur Sverrisson gerði
engar stórar breytingar á lands-
liðshópnum fyrir komandi leiki
við Letta og Liechtenstein en hann
tilkynnti 22 manna hóp í gær.
Ólafur Örn Bjarnason og Indriði
Sigurðsson komu aftur inn í hóp-
inn en þeir voru ekki með í síðustu
verkefnum. Íslenska landsliðið er
komið á flug eftir að hafa tekið 4
stig út úr síðustu leikjum sínum
við Spán og Norður-Írland.
„Við teljum okkur vera búnir að
finna góðan takt í þessu og viljum
halda honum. Það er gríðarlega
mikilvægt að það verði sami vilji
og baráttuandi í liðinu,“ segir
Eyjólfur og bætir við. „Markmiðið
er að ná að halda þeim dampi sem
hefur verið á liðinu í síðustu
leikjum og ef það tekst þá teljum
við okkur geta unnið báða þessa
leiki,“ segir Eyjólfur.
„Ég er með svona 35 manna hóp
sem ég er að velta fyrir mér
hverju sinni og vel síðan bestu
leikmennina í hvert verkefni. Þó
að menn séu að detta út úr þeim
hópi þá eru menn ekkert komnir
út í kuldann. Það sést sem dæmi á
því að Ólafur og Indriði eru komnir
inn í hópinn aftur. Það er sam-
keppni um að komast í íslenska
landsliðið og það er bara fínt,“
segir Eyjólfur um val sitt að þessu
sinni.
Fyrri leikurinn er á móti Lettum
á Laugardalsvellinum eftir viku.
„Ég á eftir að fá sendan leik Letta
á móti Spánverjum og á eftir að
fara vel yfir hann. Ég sá þá þegar
þeir unnu Norður-Íra 1-0 á heima-
velli og þá spiluðu þeir nákvæm-
lega eins og við, vörðust vel með
því að spila þéttan varnarleik og
sóttu síðan hratt á Norður-Íra. Þeir
gerðu það mjög vel og unnu sann-
færandi 1-0 sigur. Ég reikna með
að það verði svipað upp á teningn-
um á móti okkur. Við verðum að
finna leik á móti því. Við ætlum
ekki að opna þennan leik hérna
heima, við ætlum að spila áfram
öflugan varnarleik en að sjálf-
sögðu ætlum við að skapa okkur
færi og reyna að knýja fram sigur
í okkar síðasta heimaleik.“
Vill sama vilja og baráttuanda áfram
Eiður Smári Guðjohnsen
er í landsliðshópnum þrátt fyrir
að hafa ekkert spilað síðan hann
kom inn á sem varamaður í
sigrinum á Norður-Írum 12.
september.
„Við sjáum bara til hvernig
hann er á æfingum. Hann er ekki
í mikilli leikæfingu og það verður
mjög erfitt fyrir hann að spila
tvisvar 90 mínútur með svona
stuttu millibili,“ segir Eyjólfur
Sverrisson um Eið Smára
Guðjohnsen. „Við eigum bara
eftir að meta stöðuna á honum.
Hann er búinn að vera æfa mjög
vel og hefur auk þess æft
aukalega til þess að koma sér í
betra form,“ segir Eyjólfur sem
sagðist hafa rætt við Eið Smára
fyrr um daginn. „Hann er heill
heilsu og æfði í gær,“ sagði
Eyjólfur sem hefur áhyggjur af
því að Eiður fengi ekkert að spila
hjá Barcelona.
Er búinn að
æfa mjög vel
Eyjólfur Sverrisson, er
ánægður með íslenska áhorfend-
ur í síðustu landsleikjum.
„Stuðningurinn við liðið í
síðustu leikjum hefur verið til
fyrirmyndar. Tólfan er búin að
vera svakalega öflug og hefur
myndað mikla stemningu á
pallana. Fólkið er komið á leikina
til að skemmta sér og hafa gaman
og það er hrikalega jákvætt,“
sagði Eyjólfur á blaðamannafundi
í gær.
Tólfan er búin
að vera öflug
BIKARINN 2007 í dag kl. 14:0
FH - FJÖLNIR
ÚRSLIT
áLaugardalsvelli
Ball árs
í Kaplakrik
í kvöld kl 23
Húsið opnað klukkan 23:00 -Miði á ballið kostar
Tilboð í FH búðinni: Miði á leikinn og ballið kr
Stórhljómsveitin
Papar
og Bubbi Morthens sj
M I Ð A S A L A Á L A U G A R D A L S V E L L I