Fréttablaðið - 06.10.2007, Side 94
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Yfir hundrað umsóknir bárust um starf dagskrár-
kynnis hjá Sjónvarpinu en umsóknarfrestur rann út
á miðnætti á fimmtudag. Auglýst var eftir umsókn-
um frá áhugasömum en hæfniskröfur voru stúdents-
próf eða sambærileg menntun.
„Þetta voru nákvæmlega 103 umsóknir,“ segir
Jónína Lýðsdóttir fulltrúi útvarpsstjóra. „Þar af eru
18 umsækjendur karlmenn.“ Jónína segir að ekki sé
ljóst hversu margir verði ráðnir. „Það er allur
gangur á því hvort umsækjendur séu námsmenn eða
ekki enda hentar starfið einnig sem vinna með
öðru.“ Hún segir það ekki hafa komið sér á óvart
hversu margir sýndu áhuga á starfinu, það hafi
verið vinsælt í gegnum tíðina og sé það greinilega
ennþá.
Ein þekktasta þula þjóðarinnar, Ellý Ármannsdótt-
ir, sagði nýverið starfi sínu lausu hjá Sjónvarpinu og
flutti sig yfir til Morgunblaðsins þar sem hún tekur
viðtöl við þekkta Íslendinga fyrir hið svokallaða
Vefvarp, undir nafninu Sviðsljós. Fleiri íslenskar
konur hafa stigið sín fyrstu skref í Sjónvarpi sem
þulur, til dæmis Ragnheiður Elín Clausen, Rósa
Ingólfsdóttir og Sigríður Arnardóttir eða Sirrý.
Yfir hundrað sækja um þulustarf
„Ég verð ekki með útvarpsþáttinn eins og til
stóð. Ég var búinn að fá leyfi sem var svo
dregið til baka, það er greinilega ekki bannað
að breyta eins og á leikskólanum í gamla
daga,“ segir Helgi Seljan einn af umsjónar-
mönnum Kastljóssins. Helgi hafði tekið að sér
að stjórna útvarpsþættinum Helgispjall á
útvarpsstöðinni RVKFM 101,5 á sunnudögum í
vetur en neyddist til að hætta við þær
fyrirætlanir þegar Þórhallur Gunnarsson, dag-
skrárstjóri Sjónvarpsins, dró samþykki sitt
tilbaka. „Mér skilst að ástæðan sé að öðrum
starfsmönnum hafi boðist aukastarf hjá
samkeppnisaðilanum sem þeim var bannað að
þiggja,“ segir Helgi og vísar þar í Ólaf Pál
Gunnarsson og Guðrúnu Gunnarsdóttur sem
var meinað að taka sæti dómara í þáttum á
Stöð 2. Heimildir Fréttablaðsins herma að það
hafi einmitt verið eftir fyrirspurn frá Ólafi
Páli sem Þórhallur dró samþykki sitt til baka.
„Það er eins og fólk á fjölmiðlum sé í sömu
stöðu og vinnuhjú voru hjá óðalsbændum. Eins
og maður hafi verið ættleiddur þegar maður
byrjar að vinna hjá einhverju fyrirtæki. Ég
var bara ráðinn hingað til þess að sjá um
dagskrárgerð fyrir utan það að RVKFM er
ekki beint að fara að knésetja RÚV,“ segir
Helgi.
Andri Freyr Viðarsson hjá RVKFM er ekki
síður ósáttur við þessi málalok. „Þetta er
náttúrulega bara ömurlegt og blátt áfram
heimskulegt. Þórhallur, öðlingurinn sem hann
er, var búinn að gefa grænt ljós og við búnir
að keyra auglýsingar fyrir þáttinn, fá styrkt-
araðila og ég veit ekki hvað og hvað. Svo er
okkur allt í einu skellt á skyndifund og þetta
bannað. Maður kippir ekki svona úr sambandi
þegar búið er að gefa samþykki.“
Fúlt að fá ekki að stjórna útvarpsþætti
Willum Þór Þórsson
Björgólfi Thor Björgólfssyni
þykir fátt jafn gaman og að þeys-
ast um á sérsmíðuðum mótorfák
um nágrenni Hyde Park í London
eftir vinnu á föstudögum ásamt
vinnufélögum sínum. Ef ekki
gefst færi á að spæna upp mal-
bikið á „choppernum“ frá Thunder
Struck Custom Bike, sem kostar
100 þúsund dollara, þá keyrir
hann uppí sveitasetrið sitt í
Oxford-skíri á sígildum og glæsi-
legum Aston Martin-blæjubíl
sínum ásamt eiginkonunni Krist-
ínu Ólafsdóttur og syni þeirra
Daníel Darra. Þar teygja þau úr
sér eftir erfiða vinnuviku. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í
grein Wall Street Journal í gær
þar sem fjallað er um erlenda
auðmenn sem sest hafa að í
London.
Björgólfur Thor leikur aðal-
hlutverkið í greininni og segir í
samtali við blaðið að hagstætt
skattaumhverfi og staðsetning
höfuðborgar Englands sé meðal
þess sem hafi laðað að erlenda
milljarðamæringa. „Héðan er
stutt á alla þá staði sem ég þarf að
komast á. Ég get flogið til Austur-
Evrópu og verið kominn heim
samdægurs,“ segir Björgólfur í
samtali við blaðið en hann notar
að sjálfsögðu margumrædda
einkaþotu sína ef hann þarf að
komast út fyrir landsteinana. Ef
hann þarf hins vegar að skottast á
milli staða í London lætur hann
einkabílstjórann ferja sig í silfur-
litaðri Maserati-bifreið.
Björgólfur og Kristín búa í Hol-
land Park, hverfi sem er þekkt
fyrir flottar villur og glæsihýsi,
en þau létu nýverið taka allt í
gegn og hanna það í nútímalegum
stíl. Samkvæmt Wall Street vildi
auðjöfurinn íslenski aðeins það
besta og flutti þannig öll húsgögn
sem prýða heimilið beint inn frá
Ítalíu. Jafnframt er þess látið
getið að hann hafi haldið
glæsilega fertugsafmælis-
veislu á Jamaíka og flutt
yfir 120 vini
sína
og vandamenn til eyjunnar þar
sem dansgólf og barir hafi verið
byggðir á sandi en tónlistarmenn
á borð við Jamiroquai og 50 Cent
héldu uppi stuðinu.