Fréttablaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 40
Hvergi er meiri draugagangur og á netinu. Gamlar upplýsing- ar og hrekkir sveima þar um árum saman í óendanlegu tómarúmi. Virðast geta sest að í sálum fólks hvenær sem er og valdið ómældum ótta. Sífellt er verið að vara fólk við hvers kyns vá í gegnum tölvupósta og netskrif. Varnaðarorð leynast við hverja fingrasetningu. er skelfinguna og var- úðina á netinu ekki að undra miðað við upphaflegan tilgang þess. Það var hannað upp úr 1960 af varnar- málaráðuneyti Bandaríkjanna, rök má færa fyrir því að á fáum stöðum hafi múgæsing verið iðkuð af jafn miklu kappi og í þeirri stofnun, með þeim tilgangi að tengja tölvur brysti kjarnorkustyrjöld á. skömmu barst mér tölvu- skeyti sem upphaflega átti að hafa verið skrifað af bandarískri móður sem leitaði fjórtán ára dóttur sinn- ar. Viðtakandi beðinn um að gefa sér tvær sekúndur til að áfram- senda skeytið til allra sem hann þekkti. Ég gúgglaði nafni stúlkunn- ar og notaði ábyggilegri heimildir en koma frá sefasjúkum netverj- um. Fimm ár voru liðin frá því stúlkan hvarf og fyrir löngu hafði hún skilað sér heim heil á húfi. Áhyggjuorð móðurinnar á veraldar- vefnum verða þó seint sefuð. unglingur taldi ég auðsýnt að almenningur myndi taka fjölmiðlun yfir. Blaðamannastéttin hyrfi og netupplýstur almenningur næði yfirhöndinni í miðlun frétta. Þótt sannleika megi finna í spánni hefur komið á daginn að netsögur eiga jafnan meira sameiginlegt með þjóðsögum en fréttum. Fólk heyrir eitthvað og miðlar því áfram fyrir- hafnarlaust, oft með tilfærslum og ályktunum. Þótt blogg og tölvu- skeyti hafi oft yfir sér ævintýra- legan blæ er þeim miðlað í skrifum. Sú trú er svo æði langlíf að það sem sé svart á hvítu sé ávallt satt. eins og draugasögur eru net- sögur sífellt að valda fólki skelf- ingu en um leið undarlegri skemmt- an. Saga af svokölluðu nauðgunarlyfi sem átti að gera konur ófrjóar æddi um vefinn ekki alls fyrir löngu. Þegar lyfjaskrár voru kannaðar var hins vegar ekki að sjá að lyfið hefði verið til. Skemmst er svo að minnast hinnar æsilegu lygasögu af Helga hundingsbana hinum síð- ari. hryllingssögur samtímans veita mér oft mikla ánægju. Þær hafa samt einnig kennt mér að meta jarðbundnar fréttir Bændablaðsins sem og speki rassálfanna sem aldrei hikuðu við að spyrja grundvallarspurningar- innar: af hverju? Svart á hvítu H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is TÍMAMÓTABÍLL Á BETRA VERÐI! Eini bíllinn í Evrópu sem hlotið hefur 5 stjörnur í Euro NCAP og er með sjö ára ábyrgð 2.090.000 kr. Verð áður 2.345.000 kr. KIA cee’d Crdi dísil 115 hestöfl KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.