Fréttablaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 38
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég fer oft niður á Jómfrú og borða rauðsprettu. Þeir steikja eitt flak, setja ofan á brauð og setja remúlaði ofan á. Svo borða ég stundum djúpsteiktan fisk hjá Hróa Hetti vestur í bæ.“ Fegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir afhjúpar rokkgell- una í sér þegar hún verður kynnir í þættinum Bandið hans Bubba sem hefur göngu sína á Stöð 2 í febrúar. „Mér líst rosalega vel á þetta og ég er mjög glöð að fá þetta tæki- færi. Það verður gaman að prófa að vinna í sjónvarpi því það er örugglega það eina sem ég á eftir að gera,“ segir Unnur Birna. „Ég var aðeins í sjón- varpi í gamla daga en það var í algjörri mýflugumynd. Þetta er miklu stærra og skemmtilegra verk- efni.“ Fyrstu áheyrnar- tónleikarnir vegna þáttarins verða haldnir í Bolungarvík annað kvöld en Unnur fer í upptökur strax í dag og hlakkar mikið til enda í góðum höndum. „Ég þekki Bubba örlítið í gegnum fjölskyldutengsl og það er þægilegt að þekkja hann persónulega áður en maður fer í þetta. Hann er mjög indæll alltaf.“ Næstu áheyrnar- tónleikar verða síðan á Akureyri 17. október, í Neskaupstað viku síðar og loks í Reykjavík 3. nóvember. Þrátt fyrir að vera önnum kafin við lög- fræðinám í Háskól- anum í Reykjavík er Unnur Birna hvergi bangin og ætlar sér ekki að láta námið sitja á hakanum þrátt fyrir annirnar sem fram undan eru. „Það er smá púsluspil að koma þessu fyrir í dagskránni,“ viðurkennir sjónvarpskonan tilvonandi, sem segist finna fyrir jákvæðu stressi fyrir tökurnar í dag. Afhjúpar rokkgelluna í sér „Eins og staða mín er í dag get ég ekki tjáð mig um málið,“ segir G. Magni Ágústsson kvikmyndatöku- maður. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur hann, ásamt kvikmyndaleikstjóranum Stein- grími Karlssyni, leitað aðstoðar lögfræðisskrifstofu Ragnars Aðal- steinssonar vegna máls sem snertir heimildarkvikmyndina Heima sem fjallar um tónleikaferð Sigur Rósar hér á landi á síðasta ári. Málið snýr að höfundarrétti en bæði Magni og Steingrímur unnu að gerð kvikmyndarinnar Heima. Þeir telja sig ekki hafa fengið það sem þeim ber á svokölluðum kredit- lista kvikmyndarinnar. Kvikmynda- gerðarmennirnir hafa sett fram þá kröfu að kreditlistinn verði lagaður og þeir fái þar sess sem þeir sætta sig við. Steingrímur var upphaflega leikstjóri myndarinnar og Magni aðaltökumaður. Liðsmenn Sigur Rósar voru hins vegar óánægðir með útkomuna hjá Steingrími og fengu Dean DeBlois til að ljúka við myndina. Íslenski kvikmyndagerðar- heimurinn hefur fylgst grannt með gangi mála hjá þeim Magna og Steingrími eftir frumsýningu myndarinnar, en Heima hefur fengið lofsamlega dóma bæði hér heima og erlendis. Innan kvik- myndageirans hafa verið háværar raddir um hversu lítið var gert úr hlut Íslendinganna í kvikmyndinni. Kári Sturluson, einn aðstandandi Heima, vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið þegar það leitaði eftir viðbrögðum hans. Fram kemur í framleiðsluskjali kvikmyndar- innar að Steingrímur Karlsson hafi verið leikstjóri sumartakanna og hafi fengið myndefnið til klipp- ingar haustið 2006 en útkoman hafi ekki staðist þær miklu væntingar sem hljómsveitin hafi haft. Óánægja með Heima Sigur Rósar Ragnheiður Gröndal kom fram á stórtónleikum í Central Park í New York í lok september, en þeir voru haldnir til minningar um breska tónlistarmanninn Marc Bolan. Þátttöku Ragnheiðar bar brátt að, en hún var stödd í New York til að ganga frá lausum endum eftir námsdvöl hennar þar í fyrra. „Þetta kom eiginlega til í gegnum vinkonu mína sem heitir Birna Anna og bjó með mér úti,“ útskýrði Ragnheiður. „Hún kynntist manni sem heitir Joe Hurley á kaffihúsi í hverfinu okkar. Hann er söngvari í hljómsveit sem heitir Rogue’s March, og stóð fyrir þessum tón- leikum. Birna lét hann fá íslenska þjóðlagadiskinn minn, og hann vildi fá mig til að syngja eitt lag á tónleikunum,“ sagði hún. Ragn- heiður féllst á það, og fékk því að standa á sviði í Central Park ásamt fleiri framúrskarandi tónlistar- mönnum. Hún telur að áheyrendur hafi verið um og yfir þúsund talsins. „Þeir voru minnst það margir,“ sagði hún. Marc Bolan var söngvari bresku hljómsveitarinnar T. Rex, sem náði feikilegum vinsældum í Bret- landi á fyrri hluta áttunda áratug- arins. Hann lést 16. september 1977, tveimur vikum fyrir þrítugsafmælið sitt. „Ég vissi nú ekkert hvaða hljómsveit þetta var fyrst en kynnti mér það aðeins. Þeir voru mjög frægir í Bretlandi en náðu aldrei alveg í gegn í Bandaríkjunum,“ sagði Ragn- heiður. „Mér skilst að þetta hafi verið fyrsta glysrokksveitin,“ bætti hún við. Ragnheiður söng ballöðuna Dove, við undirleik Tonys Visconti á gítar. „Hann var pródúsent fyrir T. Rex og vann lengi með David Bowie líka,“ útskýrði Ragnheiður. Á sömu tónleikum kom fjöldi þekktra tónlistarmanna fram, en þar var Patti Smith fremst í flokki. Jake Shears, söngvarinn úr Scissor Sisters, kom einnig fram á tónleikunum, eins og liðsmenn New York Dolls. „Svo var líka hópur af konum sem söng bakraddir fyrir Sinéad O’Connor en þær eru sjálfar með hljómsveit núna,“ útskýrði Ragnheiður, sem sagði reynsluna hafa verið afar skemmtilega. „Það voru allir með glimmer og svona, svo þetta voru mín fyrstu skref í glysrokkheiminum,“ sagði hún og hló við. „Það var líka mjög skemmtileg stemning þarna og æðislegt að syngja í Central Park. Þetta var ótrúlega flott útisvið og svo stólar allt í kring,“ sagði hún. Ragnheiður vinnur nú að nýrri plötu sinni sem er væntanleg í nóvember. Hún segist ekki vera á leið til New York aftur í bráð. „Ég fer kannski í febrúar og held tón- leika, en það kemur í ljós,“ sagði hún. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.