Fréttablaðið - 10.10.2007, Page 12
Þrítug listakona
sem er ákærð fyrir að kyssa verð-
mætt málverk og skilja eftir vara-
litafar á hvítum fleti þess fór
fyrir rétt í Frakklandi í gær.
Verkið, sem er í einkaeigu en
var á sýningu þegar Rindy Sam
kyssti það, er eftir listamanninn
Cy Twombly og metið á yfir 170
milljónir króna. Þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir hefur ekki tekist að
hreinsa varalitinn af málverkinu.
Sam sagðist hafa „stjórnast af
ást“ þegar hún kyssti málverkið.
Sækjandi tekur þó ekki tillit til
þess og vill að hún greiði tæpar
400.000 krónur í sekt auk þess að
sækja námskeið í að vera góður
borgari.
Menningarmálaráðherra
Frakklands hefur heitið því að
beita sér fyrir hertu öryggi á
söfnum og strangari viðurlögum
gegn þeim sem vanvirða lista-
verk.
Kærð fyrir að kyssa
verðmætt málverk
Á annað
hundrað grömm af
ætluðum kannabisefn-
um og smávægilegt
magn af amfetamíni
fundust við húsleit í
Borgarfirði í gær.
Leitin var gerð í kjölfar
þess að ökumaður á
sextugsaldri var tekinn
fyrir fíkniefnaakstur.
Þá fannst einnig
ólöglegt skotvopn við
leitina.
Maðurinn játaði að
kannabisefnin væru
afrakstur eigin framleiðslu,
samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Borgarnesi.
Málið telst upplýst.
Um síðastliðna helgi
voru níu ökumenn teknir
undir áhrifum fíkniefna.
Að sögn lögreglu er yngra
fólk í meirihluta og í
þvagi nokkurra mældust
allt að fimm tegundir
fíkniefna.
Sjötíu manns hafa verið
teknir fyrir fíkniefna-
akstur það sem af er ári í
umdæmi lögreglunnar í
Borgarnesi. Afrakstur
síðastliðinnar viku telur
lögregla að megi rekja til aukins
eftirlits.
Ármúla 23
Reykjavík
Sími: 510 0000
Brekkustíg 39
Njar›vík
Sími: 420 0000
Mi݇si 7
Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Grundargötu 61
Grundarfir›i
Sími: 430 0000
www.besta.is
Allt í drasli mælir með
Allt í drasli mælir með
25% afs
láttur
af frábæ
rum köss
um til að
skipulegg
ja heimil
ið
SETTU ALLT
Í KASSANA
Hentugir geymslukassar
af öllum stær›um og
ger›um sem passa vel
undir ýmislegt dót sem
flarf a› geyma.
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/