Fréttablaðið - 10.10.2007, Page 30
Söngkonan Britney Spears virðist vera
að ná áttum eftir áfallið í síðustu viku
þegar hún missti forræðið yfir sonum
sínum. Hún hitti þá á mánudaginn undir
sérstöku eftirliti.
Þeir Sean Preston og Jayden James áttu fyrst að
hitta móður sína á fimmtudaginn en sá fundur fór
út um þúfur þar sem Britney vildi ekki að sérstak-
ur réttargæslumaður stigi fæti inn á heimili henn-
ar. Aftur var reynt á mánudaginn og þá gekk heim-
sóknin betur. Strákarnir tveir mættu heim til
móður sinnar í Malibu og samkvæmt The Sun virt-
ist Britney eilítið stressuð en kvaddi þá með faðm-
lagi og tárum.
Britney og móðir hennar hafa nú endurnýjað
kynnin en það sló í brýnu með þeim eftir að söng-
konan unga sakaði hana um að hafa sofið hjá Kevin
Federline, fyrrum eiginmanni sínum. Þá hefur litla
systirin, Jamie Lynn, einnig komið systur sinni til
bjargar og stóð meðal annars þétt við bakið á henni
þegar brjáluð kona gerði aðsúg að þeim úti á götu
nýverið. Britney eyddi síðan helginni í að rúnta um
hverfið sitt ásamt Jamie en þær voru að sjálfsögðu
hundeltar af papparössum.
Aldrei virðist þó vera lognmolla í kringum gróu-
sögur af Britney og greindi vefmiðillinn tmz.com
meðal annars frá því að hún hefði sótt um starf
barþjóns á Viceroy-hótelinu í Santa Monica. Þetta
hefur þó ekki verið staðfest en ætla mætti að þetta
væri ekki rétta starfið fyrir manneskju sem hyggst
fá aukinn umgengnisrétt yfir strákunum sínum og
hefur þar að auki komist á forsíður blaðanna fyrir
slæmar drykkjuvenjur.