Fréttablaðið - 23.10.2007, Qupperneq 1
Sigurður Líndal lagaprófessor er léttur á fæti
þótt kominn sé á efri ár. Sjötugur hljóp hann
hálft maraþon og nú skokkar hann annan h
morgun í 20 30 í ú
að að hlaupa reglubundið fyrir tuttugu árum ð
ungum mönnum úr lagad ildmeð h
Heimsóknavinir Kópavogsdeildar Rauða krossins eru alls konar
fólk á ýmsum aldri. Þeir heimsækja fólk á einkaheimilum og
stofnunum í Kópavogi til að draga úr einsemd og félagslegri
einangrun, gefa lífinu lit.
Gæti heimsóknavinur gefið þínu lífi meiri lit?Heimsóknavinirnir eru sjálfboðaliðar. Þeir veita félagsskap og
nærveru. Til dæmis með því að spjalla, lesa, tefla, syngja og
fara út að aka eða ganga. Margir reiða sig á heimsóknir sjálf-
boðaliðanna til að gleyma gráma hvunndagsins um stund.Þekkirðu einhvern sem myndi hafa gott af því að fá heim-
sókn sjálfboðaliða? Til dæmis einu sinni í viku, í klukku-
stund í senn?
Ekki hika við að hafa samband í síma 554 6626 eða í net-
fangið kopavogur@redcross.is.
Kó
húsbyggjandinnÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2007 Teppin snúa afturDúnmjúk, umvefjandi og örugg teppaspor BLS. 4Hús úr hvítum
kubbum
Þéttbókaður fram að jólum
Gífurlegir skógareldar geisa nú í Kali-
forníu í Bandaríkjunum og hefur Arnold
Schwarzenegger ríkisstjóri lýst yfir neyðar-
ástandi í sjö sýslum í suðurhluta ríkisins.
Tæplega 405 ferkílómetrar landsvæðis hafa-
brunnið í skógareldunum í San Diego-sýslu og
þurftu 250.000 manns að yfirgefa heimili sín í
gær.
„Það eru fleiri hús að brenna en við höfum
mannskap og búnað til að berjast gegn,“ sagði
slökkviliðsstjórinn í San Diego, Lisa Blake, í
samtali við AP-fréttastofuna. „Margir eiga eftir
að tapa heimilum sínum í dag.“
Fréttablaðið hafði í gær spurnir af tveimur
fjölskyldum sem flúið höfðu heimili sín.
„Við fengum að vita fyrir um tíu mínútum að
við þyrftum að rýma húsið okkar. Börnin eru
komin út í bíl og við erum núna að safna saman
því nauðsynlegasta,“ sagði Joel Valdez, sem
flúði heimili sitt í gær ásamt íslenskri eigin-
konu og þremur börnum.
„Skógareldarnir hafa gríðarleg áhrif á allt líf
í Kaliforníu. Verslunum er lokað, hundruð þús-
unda manna eru á flótta og San Diego er
umkringd eldum sem eru stjórnlausir,“ segir
Stefán Karl Stefánsson leikari, sem búsettur er
nærri hættusvæðunum í San Diego. Hann segir
skólahald falla niður í dag vegna ástandsins.
Fólk sé farið að hamstra mat og vatn og Rauði
krossinn hafi opnað neyðarskýli.
Engar flugvélar komust á loft í gær vegna
vindanna og búist var við að herinn yrði
kallaður út um eftirmiðdaginn.
Þá tilkynntu yfirvöld að eldarnir myndu auk-
ast og að þeir yrðu öllum líkindum verri en
Cedar-eldarnir sem geisuðu á sama svæði árið
2003, þar sem 1.134 ferkílómetra svæði og
2.232 heimili urðu eldinum að bráð.
Íslendingar flýja undan
skógareldum í Kaliforníu
Skógareldarnir í Kaliforníu hafa færst í aukana síðustu daga. Fleiri hundruð þúsund manns flýja heimili
sín og búist er við að ástandið muni versna. Íslenskar fjölskyldur hafa þurft að yfirgefa heimili sín í flýti.
Hljóp hálft maraþon
sjötíu ára gamall
Samkvæmt drögum að
samningi milli Orkuveitu Reykja-
víkur (OR) og Reykjavík Energy
Invest (REI), sem kynnt voru
sem umræðuskjöl á stjórnar-
fundum REI, var gert ráð fyrir
samningi til tíu ára en ekki
tuttugu ára eins og niðurstaðan
varð að lokum.
Hinn 17. september voru stjórn
REI kynnt drög að samningi sem
gerðu ráð fyrir tíu ára samningi
um einkarétt á hugverkum og
þjónustu OR í erlendum verkefn-
um REI.
Sex dögum síðar kynntu, að
þeirra sögn, Haukur Leósson,
stjórnarformaður OR, og Bjarni
Ármannsson, stjórnarformaður
REI, samningsatriði fyrir Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni, þáver-
andi borgarstjóra. Þá var samn-
ingstíminn kominn í tuttugu ár.
Eftir að samningstíminn hafði
tvöfaldast jókst virði REI og þar
með hlutar OR í sameinuðu fyrir-
tæki REI og Geysis Green
Energy.
Samkvæmt atriðum sem koma
fram í drögunum er ráðgert að
REI greiði OR fullt verð og rúm-
lega það fyrir ráðgjöf og þjón-
ustu starfsmanna.
Til stóð að semja til tíu ára