Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.10.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 23.10.2007, Qupperneq 2
Barði, ert þú þessi Sval-Barði? PTP HÁRSNYRTIVÖRUR Þegar keypt er sjampó og hármótunarefni í PTP línunni fylgir PTP hárnæring frítt með. FRÍ NÆ RING „Með þessu skrefi mun íslenska þjóðkirkjan ganga lengra en nokkur lúthersk kirkja hefur gert til að jafna hlut samkynhneigðra,“ segir Hulda Guð- mundsdóttir guðfræðingur um tillögur sem Kirkju- þing vísaði til allsherjarnefndar Kirkjuþings í gær. Búist er við að tillögurnar verði samþykktar á fimmtudag. Tekist var á um það hvernig orða ætti kirkjulega athöfn um staðfesta samvist samkynhneigðra og tvær tillögur ræddar. Í annarri var framsögumaður hr. Karl Sigurbjörnsson biskup. Í tillögu hans var lýst yfir stuðningi á ályktun kenningarnefndar Þjóðkirkj- unnar um að prestum yrði heimilað að staðfesta samvist samkynhneigðra. Gert er ráð fyrir því að málið verði samþykkt af allsherjarnefnd á fimmtu- dag. Hins vegar er lögð áhersla á að um jafngilda athöfn og hjónaband sé að ræða en staðið verður við hefðbundinn skilning á orðinu hjónaband sem sáttmála fullvaxta karls og konu. „Með því hefur verið gerð ný athöfn sem verður jafngild hjónabandinu og ættu þá öll réttindi samkyn- hneigðra að vera komin í höfn,“ segir Einar Karl Haraldsson kirkjuþingsfulltrúi. „Ekkert misrétti ætti að felast í þessu fyrirkomulagi nema menn vilji fara í baráttu um merkingu orða, slík barátta getur þó ekki flokkast sem jafnréttismál,“ bætir hann við. Í hinni tillögunni, sem Hulda Guðmundsdóttir mælti fyrir ásamt séra Jóni Helga Þórarinssyni og séra Kristínu Þórunni Tómasdóttur, er sömuleiðis lagt til að prestar fái leyfi til að staðfesta samvistir samkynhneigðra. „Áhersla okkar er þó að haldið verði í vígsluhugtakið. Það er talað um hjónavígslu og eins viljum við tala um vígslu staðfestrar samvistar,“ segir Hulda. Þá sagði biskup að þrýstingurinn á kirkjuna í málinu hefði verið með ólíkindum. Afar ómaklegt hefði verið að brigsla kirkjunni um að níðast á fólki og standa gegn jafnrétti. Séra Halldór Gunnarsson taldi tillögurnar ganga of langt. Ef lögum yrði breytt á þá leið að prestar fengju leyfi til að staðfesta samvist myndi hann vilja leggja fram breytingartillögu sem fæli í sér að prestar þjóðkirkjunnar yrðu ekki lengur löggiltir hjóna- vígslumenn. Þjóðkirkjan jafnar hlut samkynhneigðra Staðfastlega er búist við því að allsherjarnefnd Kirkjuþings samþykki tillögur um að prestum verði heimilað að staðfesta samvist samkynhneigðra. Þjóð- kirkjan gengur lengra en nokkur önnur kirkja hefur gert að sögn guðfræðings. Össur Skarphéðins- son iðnaðarráðherra mun í dag eiga fund með forseta Indónesíu, Susilo Bambang Yudhoyono. Fundinn sitja einnig orkumála- ráðherra Indónesíu og ráðherra sjávarútvegsmála. Tilefni fundarins er að ræða mögulegt samstarf Indónesíu og Íslands á sviði jarðvarmaorkuvinnslu og fiskveiða. Ráðherrarnir munu einnig ræða aukið samstarf á sviði rannsókna og menntunar í tengslum við jarðhita, þar á meðal hugmynd um árleg námskeið fyrir jarðhitafræðinga frá Asíulöndum um rannsóknir og nýtingu jarðhita til raforku- framleiðslu, sem haldin yrðu í Indónesíu. Ræða um jarð- varma og fisk Karlmaðurinn sem fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gerði húsleit hjá á fimmtudagskvöld reyndist hafa í fórum sínum um 15.000 steratöflur og tvö hundruð skammta af stungulyfjum, samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins. Fíkniefnalögreglan fór í húsleitina á heimili mannsins í austurborginni að fengnum úrskurði. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu vegna vörslu mikils magns af sterum. Málið er enn til rannsóknar hjá lögreglunni. 15.000 steratöfl- ur og stungulyf Íbúum Íslands fjölgaði um 3.700 manns, eða 1,2 prósent, á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma var fjöldi aðfluttra umfram brottflutta af landinu 2.561 en náttúruleg fjölgun, það er fæddir umfram dána, var 1.139 manns. Brottfluttir frá höfuðborgarsvæðinu til lands- byggðarinnar voru 234 fleiri en aðfluttir á fyrstu þremur fjórðungum ársins. Aðfluttir frá útlöndum voru hins vegar 2.343 fleiri en brottfluttir og því fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu um 2.109 manns vegna flutninga. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að höfuðborgarsvæðið sem atvinnusvæði sé að stækka, það sjáist af miklum fólksflutningum til Suðurnesja og þeirra byggða á Suðurlandi sem næst liggja hinu skilgreinda höfuðborgarsvæði. Það svæði sem var öflugast um aðdrætti í innan- landsflutningum á fyrstu þremur fjórðungum ársins voru Suðurnes þar sem íbúum fjölgaði um 769. Í öðrum landshlutum fækkaði. Í öllum landshlutum fjölgaði hins vegar íbúum vegna millilandaflutninga nema á Austurlandi. Þar voru Suðurnes í farar- broddi sé höfuðborgarsvæðið undanskilið. Á tveimur svæðum fækkaði fólki af völdum búferlaflutninga í heild, á Vestfjörðum og Austur- landi. Mest aukning á Suðurnesjum Flugfreyjufélag Íslands á fyrsta samningafund með fulltrúum Samtaka atvinnu- lífsins, fyrir hönd Icelandair á miðvikudaginn í næstu viku. Flug- freyjufélagið er þar með eitt fyrsta stéttarfélagið til að hefja samningalotuna í haust. „Við erum konur og erum mjög skipulagðar,“ segir Sigrún Jóns- dóttir, formaður Flugfreyju- félagsins en viðræður vegna Ice- land Express og Flugfélags Íslands hefjast síðar. „Það er fullt af hlutum sem snúa að okkar vinnu- umhverfi,“ segir hún um umræðu- efni fyrstu funda en vill ekki gefa upp kröfurnar áður en þær verða kynntar viðsemjendum. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, átti fundi með fulltrúum helstu landssamband- anna í gær til að fara yfir stöðuna og heldur sú fundaröð áfram í dag. Guðmundur Gunnarsson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, hitti Vilhjálm í gærmorgun. Hann segir að gengið hafi verið frá viðræðuáætlun og rafiðnaðar- menn hafi kynnt kröfur sínar. „Mér finnst full ástæða til að vera þokkalega bjartsýnn með það að geta landað þessu fyrir jól en það er með kjarasamningavið- ræður eins og pólitíkina, það getur verið grenjandi rigning eftir hádegi þótt það sé fallegt veður fyrir hádegi.“ Flugfreyjurnar eru fyrstar „Við gullsmiðir höfum puttann á púlsinum og erum þeir fyrstu sem finnum fyrir því ef það harðnar á dalnum og svo öfugt,“ segir Sigurður Steinþórs- son hjá Gulli & silfri. Hann hyggst panta meira af demöntum fyrir þessi jól en oft áður enda salan mikil. Helga Jónsdóttir í Gullkúnst tekur undir orð Sigurðar og telur sig þurfa að vera betur undirbúna fyrir þessi jól. „Ég býst við því að það verði meiri demantssala fyrir þessi jól en oft áður,“ segir Helga sem nýlega fékk pöntun upp á hálfrar milljónar króna giftingarhring. Íslendingar vilja stærri demanta Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu þurfti að sinna nokkrum útköllum vegna hvassviðrisins sem gekk yfir vesturhluta landsins í gær. Lögreglan hafði til aðstoðar hóp björgunarsveitarmanna sem aðallega þurftu að sinna útköll- um vegna lausamuna sem fuku. Vindhraði náði 25 metrum á sekúndu í mestu hviðunum á höfuðborgarsvæðinu. Flugi frá Reykjavík til Vestmannaeyja og Ísafjarðar var aflýst. Vindhraði náði 40 metrum á sekúndu undir Hafnarfjalli og Vegagerðin varaði við umferð á léttum bílum. Engar fréttir eru af óhöppum þrátt fyrir sterkan vind. Veðurstofan býst við ríkjandi suðvestanáttum í dag, hvassast á Vestur- og Norð- vesturlandi. Flugi frestað og lausamunir fuku

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.