Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 4
Sex menn hafa verið
ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir að hafa ýmist skipulagt
eða flutt hingað til lands rúmlega
700 grömm af kókaíni á síðasta ári.
Tveir mannanna eru ákærðir
fyrir að hafa skipulagt og lagt á
ráðin um innflutning efnanna, sem
flutt voru í tvennu lagi hingað til
lands frá Hollandi í gegnum Dan-
mörku. Efnin ætluðu þeir til sölu-
dreifingar hér á landi í ágóða-
skyni.
Þremur mannanna er gefið að
sök að hafa tekið á móti hluta kóka-
ínsins í Hollandi, haft það í vörslu
sinni og flutt hingað. Einn mann-
anna flutti rúm 400 grömm hingað
en hinir tveir tæp 300 grömm.
Sjötti maðurinn er ákærður fyrir
að hafa aðstoðað við innflutnings
kókaínsins.
Tvö burðardýranna komu
efnunum inn í landið. Þau voru
handtekin að kvöldi komudags á
Reykjanesbraut og fundust efnin
við leit í bifreið þeirra. Á þriðja
burðardýrinu fundust efnin við
komuna til landsins. Efnin voru
sögð komin frá óþekktum vitorðs-
manni í Amsterdam.
Aðeins tveir hinna ákærðu
mættu við þingfestingu í gær;
meintur skipuleggjandi og burðar-
dýr. Hinn fyrrnefndi neitaði sök en
hinn játaði.
Með 700 grömm af kókaíni
„Þetta eru nýjar fréttir
fyrir okkur,“ segir Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem
undrast að Siglingastofnun segi
koma til greina að rekstur ferju-
hafnar í Bakkafjöru verði í höndum
einkaaðila.
Í nýlegri auglýsingu útboðs vegna
reksturs og eignarhalds á ferju
milli Bakkafjöru og Eyja segir
hugsanlegt að rekstur hafnar í
Bakkafjöru verði innifalinn í
útboðsverkefninu.
„Hingað til hefur verkefnið verið
kynnt þannig fyrir okkur að höfnin
verði í meirihlutaeigu Vestmanna-
eyjabæjar og rekin í samstarfi Vest-
mannaeyjabæjar og Rangárþings
eystra. Og við stefnum ótrauð á
það,“ segir Elliði, sem kveður Eyja-
menn þegar hafa gert athugasemd
við auglýsinguna.
„Ég held að menn séu reyndar
bara að skoða þennan flöt og á ekki
von á öðru en að menn verði við
beiðni okkar um að höfnin verði í
okkar rekstri. Þetta verður sér-
hannað ferjulægi fyrir Vestmanna-
eyjaferjuna og við erum það sveitar-
félag í landinu sem hefur mesta og
bestu reynslu af rekstri hafnar,“
segir Elliði og upplýsir að Vest-
mannaeyjabær vinni nú að stofnun
sameiginlegs hafnarsjóðs með
Rangárþingi eystra.
Siglingastofnun heyrir undir
samgönguráðuneytið. „Þetta virðist
sprottið af misskilningi. Það myndi
aldrei koma til að einkaaðili ætti
höfnina heldur er verið að horfa til
þess að rekstur mannvirkjanna við
höfnina færi til þess aðila sem hefði
með rekstur ferjunnar að gera,“
segir Róbert Marshall, aðstoðar-
maður Kristjáns L. Möllers sam-
gönguráðherra.
Meðal mannvirkja sem ferju-
fyrirtækið myndi annast eru ramp-
ar fyrir bíla og aðstaða fyrir far-
þega að sögn Róberts. Gert er ráð
fyrir að fyrirtækið myndi sjálft
eiga ferjuna.
„Hugmyndin er að nota sérþekk-
ingu markaðarins á skiparekstri,“
segir Róbert, sem leggur áherslu á
að í samningi um rekstur Vest-
mannaeyjaferjunnar verði ákvæði
sem taki á hugsanlegum vanefnd-
um af hálfu verktakans og sömu-
leiðis ákvæði sem taki til breyttra
aðstæðna sem kunni að koma upp á
þeim fimmtán árum sem útboðs-
tíminn tekur til.
Höfn í Bakkafjöru
ekki einkarekin
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum undrast að rætt sé um að einkaaðilar eigi
höfn í Bakkafjöru. Aðstoðarmaður samgönguráðherra segir rekstraraðila Vest-
mannaeyjaferju ekki munu eiga höfnina sjálfa heldur aðstöðu fyrir farþega.
Þrír nýir varaþingmenn
tóku sæti á Alþingi í gær, þær
Dögg Pálsdótt-
ir, Erla Ósk
Ásgeirsdóttir
og Valgerður
Bjarnadóttir.
Engin þeirra
hefur tekið
sæti á Alþingi
fyrr.
Þar sem
varaþingmenn-
irnir setjast á
þing í byrjun
kjördæmaviku,
þegar engir
þingfundir eru
haldnir, munu
þær ekki vinna
drengskapar-
heit að stjórnar-
skránni fyrr en
á næsta
þingfundi, 30.
október, segir
Helgi
Bernódusson,
skrifstofustjóri
Alþingis. Hann
segir það síður
en svo sjald-
gæft að
varamenn taki
sæti í miðri
kjördæmaviku.
Dögg er
varamaður Ástu Möller, Erla
Ósk sest á þing fyrir Birgi
Ármannsson og Valgerður tekur
sæti Helga Hjörvars.
Taka sæti í
kjördæmaviku
Logi Freyr Einars-
son, sem handtekinn var í Noregi
vegna rannsóknar á Fáskrúðs-
fjarðarmálinu, neitaði að lána
bróður sínum, Einari Jökli, skútuna
Lucky Day undir fíkniefnasmyglið
stórfellda sem upp komst í síðasta
mánuði. Þetta kemur fram á
fréttavefnum Vísir.is.
Skútan Lucky Day hefur áður
verið í fréttum tengdum
Fáskrúðsfjarðarmálinu. Fram
hefur komið að henni var siglt til
Fáskrúðsfjarðar fyrir tveimur
árum og hún skilin þar eftir í
nokkra mánuði.
Upphaflega var hugmyndin sú
að nota Lucky Day við smyglið.
Heimildir Vísis herma hins vegar
að það hafi Logi Freyr ekki tekið í
mál.
Vildi ekki lána
skútuna í smygl
Árni Logi Sigurbjörnsson
meindýraeyðir hefur ákveðið að
áfrýja dómi, sem hann hann hlaut í
síðustu viku, til Hæstaréttar, að því
er hann hefur tjáð Fréttablaðinu.
Árni Logi var dæmdur í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
brot á vopnalögum. Hann hlaut
tveggja mánaða skilorðsbundinn
fangelsisdóm fyrir vörslu vopna
með ólögmætum hætti, þar sem
stórt vopnasafn hans hafði ekki
verið geymt í læstum hirslum
eins og lög gera ráð fyrir.
Árni Logi kveðst ekki ætla að
una þessum dómi. Hann kveðst
vera starfandi meindýraeyðir og
sinna starfi sínu um allt land.
Meindýraeyðir
áfrýjar dómi
Innanríkisráðherra
Pakistans
hafnaði því í
gær að farið
yrði að áskorun
stjórnarand-
stöðuleiðtogans
Benazir Bhutto
um að leitað
yrði erlendrar
sérfræðiaðstoð-
ar við rannsókn
sjálfsmorðssprengjutilræðisins
sem framið var í Karachi fyrir
helgi við heimkomu Bhutto úr
útlegð.
Bhutto sagði á sunnudag að hún
vildi að bandarískir og breskir
sérfræðingar yrðu fengnir til að
aðstoða við rannsóknina á
tilræðinu. Það kostaði 136 manns
lífið, særði hundruð og vakti vafa
á því hvort kosningafundir yrðu
heimilaðir í aðdraganda komandi
þingkosninga.
Bhutto vill er-
lenda aðstoð