Fréttablaðið - 23.10.2007, Qupperneq 10
Forsætisráðherra
Ástralíu, John Howard, þótti
bíða lægri hlut fyrir stjórnar-
andstöðuleiðtoganum Kevin
Rudd í heitum sjónvarpskapp-
ræðum á sunnudaginn sem yfir
2,1 milljón Ástrala, eða tíu
prósent þjóðarinnar, fylgdist
með.
Meðan á kappræðunum stóð
mátti sjá hvernig hópur níutíu
óákveðinna kjósenda í myndver-
inu mat frammistöðu leið-
toganna á línulegu grafi,
svokölluðum „ormi“. Í heildina
voru 65 prósent ánægð með
frammistöðu Rudds og aðeins
29,5 prósent ánægð með How-
ard. Aðrir voru óákveðnir.
Réttarhöld hófust í
Svíþjóð í gær yfir 29 fótboltabull-
um á aldrinum átján ára til
fertugs í stærsta dómsmáli af
þessari gerð í Svíþjóð að sögn
talskonu réttarins.
Hinir ákærðu, sem eru allir
stuðningsmenn fótboltaliðsins
AIK í Stokkhólmi, eru sakaðir um
að hafa slegist á áhorfendapöllum
á tveimur fótboltaleikjum árin
2004 og 2005.
Gera þurfti hlé á leik AIK og
Hammarby árið 2004 í 45 mínútur
vegna átaka stuðningsmanna AIK
við lögreglu. Árið 2005 lenti
stuðningsmönnum AIK saman við
stuðningsmenn GAIS í Gauta-
borg.
Réttarhöld yfir
fótboltabullum
Verkalýðshreyf-
ingin hyggst setja fram skýra
kröfu um að gerð verði „hörð
atlaga að launamun kynjanna í
næstu kjarasamningsviðræðum.
Þetta kom fram í ræðu Grétars
Þorsteinssonar, forseta ASÍ, á
ársfundi ASÍ í síðustu viku.
Talið er að kynbundinn launa-
munur nemi fimmtán til sextán
prósentum og að hann hafi ekki
breyst síðustu tólf ár. Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra segir að tekist hafi að
minnka launamuninn um helming
í gegnum kjarasamninga í borgar-
stjóratíð Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur.
„Ég býst við að menn reyni að
leysa þetta í gegnum kjarasamn-
inga, að minnsta kosti að hluta
til,“ segir félagsmálaráðherra og
kveður mikla samstöðu um þetta í
ríkisstjórninni.
Nokkrar nefndir munu á næst-
unni vinna tillögur að því hvernig
kynbundinn launamunur verður
jafnaður. Bæði er um að ræða
aðgerðanefnd á almennum mark-
aði og ráðgjafahóp sem skipaður
er fulltrúum háskóla og fagaðila
sem verður aðgerðanefndinni til
ráðgjafar. Síðan er hópur á opin-
berum markaði undir stjórn fjár-
málaráðherra.
„Auðvitað vona ég að þetta ger-
ist sem fyrst og að við getum sem
fyrst tekið áfanga í þessu,“ segir
Jóhanna og bendir á breiða sam-
stöðu milli stjórnvalda og verka-
lýðsforystu. „Þetta er tvíþætt,
það er kynbundinn launamunur
og síðan þarf að fara í endurmat á
launum umönnunarstétta.“
Ráðherra býst við samningum um málið
Forseti Kína, Hu Jintao,
hefur seinna fimm ára kjörtíma-
bil sitt með aukin pólitísk völd að
loknu flokksþingi Kommúnista-
flokksins í Kína. Hann hefur nú
frjálsari hendur til að fást við
vaxandi spennu vegna launa-
munar og til að auka fjárframlög
til vanræktrar félagsþjónustu.
Níu manna framkvæmdastjórn
Kommúnistaflokksins var skipuð
á flokksþinginu og munu fjórir
nýir menn taka sæti í stjórninni.
Þykir sumum það áhyggjuefni að
tveir mögulegir eftirmenn Hu í
embætti forseta, Li Keqiang og
Xi Jinping, voru skipaðir í fram-
kvæmdastjórnina þar sem það
geti leitt til innri ágreinings í
flokknum. Það hefur ítrekað
gerst í sögu flokksins þrátt fyrir
þá miklu áherslu sem þar er lögð
á einingu.
Xi, flokksleiðtogi frá Sjanghæ
og sonur virts byltingarleiðtoga,
hefur markað sér stöðu sem val-
kostur fyrir þá valdamenn í
Kommúnistaflokknum sem vilja
ekki gefa Hu of mikil völd. Li,
flokksleiðtogi úr norðaustur-
héraðinu Liaoning, er skjólstæð-
ingur Hu og þykir forsetinn hafa
sýnt stuðning sinn við hann. Xi
fékk þó valdameiri stöðu innan
framkvæmdastjórnarinnar en
Li, sem þykir gefa honum meiri
möguleika á að taka við af Hu
eftir að seinna kjörtímabili hans
lýkur eftir fimm ár.
Aukin pólitísk völd
Hu eftir flokksþing