Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 11
 Aldrei hafa fleiri nem- endur útskrifast úr framhalds- skólum og háskólum hér á landi en skólaárið 2005-2006, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. 3.362 nemendur með 3.388 próf útskrifuðust af háskólastigi og þar með fjölgaði brautskráðum nem- endum um 453, eða 15,6 prósent frá árinu áður. Aldursdreifing útskrifaðra nemenda var frá nítj- án ára og upp í 75 ára. Þá útskrifuðust fimmtán með doktorsgráðu og fjölgaði um einn frá árinu áður. Þeim sem útskrif- uðust með meistaragráðu fjölgaði um 119 frá fyrra ári, sem er 40,8 prósenta fjölgun. Flestar braut- skráningar á háskólastigi eru vegna nemenda sem ljúka fyrstu háskólagráðu og voru þær 2.441 talsins skólaárið 2005-2006. Það er tólf prósenta fjölgun frá fyrra ári. Af framhaldsskólastigi braut- skráðust alls 4.832 nemendur með 5.317 próf skólaárið 2005-2006 og er það fjölgun um 31 nemanda frá fyrra ári. Aldrei hafa fleiri nem- endur útskrifast úr framhalds- skóla á einu skólaári. Athygli vekur að mun fleiri konur en karlar ljúka stúdents- prófi en skólaárið 2005-2006 luku 1.450 konur stúdentsprófi. Það er 73,3 prósent af fjölda tvítugra kvenna það árið en aðeins 1.002 karlar luku stúdentsprófi, sem eru 49,2 prósent af fjölda tvítugra karla. Konur í meirihluta útskrifaðra Lögregla og sjálfboðaliðar á Norður-Jótlandi eltu í gær þúsundir minka sem í fyrrinótt var sleppt úr búrum sínum á minkabúi í grennd við bæinn Asp. Lögreglu grunar að róttækir dýraverndarsinnar hafi verið að verki. Í kringum aldamótin var algengt að dýraverndarsinnar slepptu loðdýrum úr búrum sínum en minna hefur verið um slíkt síðustu misserin. Um tólf milljónir minka og refa eru aldar árlega á dönskum loðdýrabúum. Dýraverndarsinnar eru grunaðir um að hafa sleppt 2.500 minkum af búi í Finnlandi í ágúst. Dýraverndar- sinnar grunaðir Innflytjendur á landsbyggðinni búa frekar við félagslega einangrun en þeir sem sest hafa að á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Rauði krossinn á Norðurlandi lét gera. Niðurstöður könnunarinnar voru bornar saman við niðurstöður sambæri- legrar könnunar sem gerð var á höfuðborgarsvæðinu. Könnunin er byggð á viðtölum við innflytjendur víða á Norður- landi. Flestir segja að léleg íslenskukunnátta sé meginorsök félagslegrar einangrunar en í minnstu byggðarlögunum er námskeiðahald stopult. Þá nefna margir að samfélagið sé lokað og erfitt að komast inn í það. Erfiðara að búa á landsbyggðinni Allir þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þings- ályktunartillögu á Alþingi þar sem lagt er til að gert verði óháð mat á arðsemi og heildaráhrifum þess að ráðast í frekari stóriðju- og virkjanafjárfestingar. Lagt er til að leitað verði til hóps sérfræðinga, innlendra og erlendra, með breiðan faglegan bakgrunn til að stýra verkinu, og að niðurstöður þeirra verði ræddar á Alþingi. Tillagan var fyrst lögð fram haustið 2006 en hlaut ekki framgang. Í greinargerð segir að efnið sé enn brýnt, nú séu uppi enn viðameiri stóriðjuáform en haustið 2006. Sérfræðingar meti áhrifin Um þrjú þúsund finnskir tæknimenn hófu verkfall í gær eftir að slitnaði upp úr kjaraviðræðum við atvinnurek- endur um helgina. Samtök launþega, sem eru með 120.000 meðlimi, boðuðu til verkfallsins, sem nær til sjö finnskra fyrirtækja. Ef sam- komulag næst ekki er búist við því að 30. október verði verkfall boðað hjá starfsmönnum í tuttugu fleiri fyrirtækjum í Finnlandi, þar á meðal hjá Nokia. Juhani Salonius ríkissáttasemj- ari segir of mikið bera í milli til að hægt sé að leggja fram tillögu að lausn deilunnar. Finnskir tækni- menn í verkfall Mánudaga - föstudaga 10 - 18 Laugardaga 10 - 14 5.590.000 kr. MAMMA BIRTÍNGUR VÍNBÚÐIN HEIÐRÚN PRENTMET HARÐVIÐARVAL JDC

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.