Fréttablaðið - 23.10.2007, Qupperneq 22
23. OKTÓBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR2 fréttablaðið húsbyggjandinn
Sumir taka áhugamál sín alvar-
legar en aðrir. Á meðan einn
hengir upp veggspjald af uppá-
halds knattspyrnumanninum
inni í svefnherbergi eru aðrir
eins og Bretinn Tony Alleyne
sem hefur innréttað alla íbúð
sína eins og geimskip í þáttun-
um Star Trek.
Alleyne býr í stúdíóíbúð í
ósköp venjulegri blokk í smábæ
norður af Lundúnum. Gestir
hans verða varir við hið sér-
stæða áhugamál um leið og ýtt er
á dyrabjölluna en þá galar rödd
Patrick Stewart „Welcome to the
24th century.“
Alleyne hóf að breyta íbúð
sinni árið 1994 þegar eiginkon-
an yfirgaf hann og þremur árum
síðar var verkinu lokið. Hann
þurfti að smíða allar innrétting-
ar sjálfur enda fást Star Trek-
innréttingar ekki hvar sem er.
Íbúðin lítur ekki aðeins
út eins og sviðsmynd úr
Star Trek-þætti heldur
hefur hann einnig komið
fyrir alls konar tækni-
nýjungum sem gera
upplifunina enn raun-
verulegri.
Þótt ótrúlegt megi virð-
ast hafa fleiri áhuga á að
innrétta íbúðir sínar í sama stíl
og hefur Alleyne fengið þó nokkr-
ar fyrirspurnir um að hanna Star
Trek-íbúðir fyrir hina og þessa
„trekkara“ um allan heim.
Star Trek í hólf og gólf
Öll íbúðin
er eins og
sviðsmynd úr
bíómynd.
Meira að segja baðherbergið hefur
fengið Star Trek-yfirhalningu.
Tony Alleyne
hefur innrétt-
að alla íbúð
sína í Star
Trek-stíl.
Flestir kaupa tilbúið húsnæði, aðrir lóð
og láta fagmenn byggja fyrir sig. Enn
eru þeir þó til sem koma sér upp húsi
með eigin höndum. Kolbrún Þorleifs-
dóttir sjúkraliði og Harry Herlufsen
pípulagningamaður eru meðal þeirra
og þau líta á það sem skemmtilega
tómstundaiðju.
Eftir að hafa ekið um ein þrjátíu hringtorg
og skyggnst um á nýbyggingarsvæðinu
Völlunum í Hafnarfirði er staðnæmst innst
í botnlanga. Þar er einmitt fólkið sem verið
er að leita að. Hjón að byggja sitt eigið hús
og hjálpast að. Aðspurð segjast þau heita
Kolbrún og Harry. Það er líkast sem þau séu
í legókubbaleik þar sem þau raða saman ein-
ingamótum úr laufléttu frauðplasti. Steypu-
styrktarjárnin eru bundin í mótin jafnóðum
og lóðréttu járnunum smeygt ofan í. Hjónin
búast við að steypa eftir helgina. Plastið
verður svo sem einangrun utan og innan á
steypunni og verður annaðhvort pússað eða
klætt.
Þau Kolbrún og Harry segja mótin vera
íslenska framleiðslu og sýna umbúðir frá
Víkinghúsum. „Við byggðum tveggja hæða
hús með sömu tækni fyrir átta árum og
búum í því núna. Það er mjög hlýtt og gott.
Okkur langaði bara að byggja annað. Þetta
er svo skemmtilegt efni að vinna með,“
segir Kolbrún og virðist meina hvert orð.
Harry tekur undir það. „Við förum hingað
þegar laus tími er og veður og vindar leyfa,
ýmist saman eða hvort um sig. Hún hefur
verið hér heilu dagana án þess að ég hafi
komið,“ segir hann og bendir á frúna.
Þetta er semsagt tómstundagaman þeirra
hjóna. „Útiveran er holl og það er fínt að
vera á kaupi við að reyna aðeins á sig hér
í stað þess að borga fyrir það í einhverri
heilsuræktarstöð,“ segir Kolbrún bros-
andi. Hún segir börnin þeirra, sem reynd-
ar séu orðin fullorðið fólk, líka vera þeim
til hjálpar. Til að forða lausa plastinu frá
foki hafa hjónin fengið að geyma það inni
hjá næsta nágranna. Hér er greinilega gott
samkomulag á milli bæja. Það er líka eins
gott því húsin standa mjög þétt. Bara fimm
metrar á milli og útsýnið úr gluggum á einni
hliðinni eru beint inn í glugga nágrannans.
Hús Harrys og Kolbrúnar verður 230 fer-
metrar á einni hæð og tvöfaldur bílskúr inni
í því. Það eru um tvö ár frá því framkvæmdir
hófust í grunninum, sem áður var djúpur
hraunbolli. Kolbrún og Harry segjast hafa
fengið smið til að hjálpa sér við grunninn
svo hann yrði réttur. Hitalögn er í gólfinu
og þar kom pípulagningakunnátta Harrys
að heppilegum notum. Sonurinn er rafvirki
svo raflagnir verða ekki vandamál heldur.
„Sparnaðurinn liggur í eigin vinnu,“ segja
þau hjónin. Gluggarnir verða settir tilbúnir
í húsið þegar búið er að steypa veggina.
Þeir verða frá Glugga- og glerhöllinni á
Akranesi. Viðhaldsfríir plastgluggar með ál-
prófílum, að sögn Harrys.
Kolbrún og Harry ólust bæði upp í
Hafnarfirði en Harry kveðst Strandamaður
að upplagi. Þau rifja upp berjaferðir og
aðrar ævintýraferðir út í hraunið sem þau
eru að byggja á núna. Þar sem þau eru við
enda á götu eru þau svo heppin að hafa smá
sýnishorn af ósnortnu hrauni við hliðina á
sér. „Dóttursonurinn þriggja ára var hér í
berjum í sumar,“ segir Kolbrún brosandi.
gun@frettabladid.is
Hús úr hvítum kubbum
Kolbrún og Harry ákváðu að byggja hús sér til gamans þótt þau eigi þegar eitt. Veggirnir eru komnir nánast
í fulla hæð og það styttist í að steypunni verði rennt í mótin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONEinu áhöldin sem uppslátturinn þarfnast eru
málbönd og sagir.
„Foreldrar mínir byggðu hús þegar ég var lítil
þannig að maður þekkir ekkert annað,“ segir
Kolbrún og Strandamaðurinn Harry tekur undir
það. „Það gerist ekkert af sjálfu sér,“ segir hann.
VERKFÆRI
N1 býður upp á mikið úrval af hágæða rafmagns- og handverkfærum.
WWW.N1.ISN1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 · SÍMI 440 1200