Fréttablaðið - 23.10.2007, Page 42
vinbud.isHva› hæfir best me› ?
Get ekki neitað því að ég er mjög sár
Óli Stefán Flóventsson
hugsar sér til hreyfings þessa
dagana en hann er að losna undan
samningi við Grindavík.
„Ég og fjölskyldan erum orðin
nokkuð þreytt á tímanum sem fer
í þetta. Nú kemur fótboltahúsið
upp í janúar og fyrir vikið mun
ferðunum til Grindavíkur fjölga
verulega,“ sagði Óli Stefán, sem
býr í Grafarvogi. Hann þurfti
áður aðeins að koma einu sinni í
viku á æfingar suður með sjó yfir
vetrartímann en með tilkomu
hússins myndi þeim ferðum
fjölga í 4-5 sinnum í viku.
„Ég ætla að tala við Grindvík-
inga áður en ég tek ákvörðun en
ég hef reyndar ekkert heyrt í
Grindvíkingum. Ég hef þess utan
heyrt í þrem félögum hér á
höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Óli
Stefán en Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að Fram gangi
fast á eftir Óla þessa dagana.
Ekki heyrt frá
Grindavík
Þróttarar ætla sér stóra
hluti í Landsbankadeildinni næsta
sumar. Þeir hafa þegar fengið
Sigmund Kristjánsson frá KR og
annar uppalinn Þróttari, Hjálmar
Þórarinsson, hefur mikinn áhuga
á að gera slíkt hið sama sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Hjálmar spilaði með Fram í
sumar en hann var þar sem
lánsmaður frá skoska félaginu
Hearts. Hjálmar er samnings-
bundinn skoska félaginu fram í
maí á næsta ári.
„Framtíðin er óráðin hjá mér
en skýrist vonandi á næstu
dögum. Það er alveg inni í
myndinni að fara til Þróttar en
Fram kemur vissulega einnig til
greina. Ég er að hugsa málið,“
sagði Hjálmar við Fréttablaðið í
gær en bæði hann og félögin bíða
eftir svörum frá Hearts varðandi
stöðu leikmannsins; hvort það sé
til í að leysa Hjálmar undan
samningi eða hvort félagið vilji fá
greiðslu fyrir hann og þá hve háa.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur Fram forkaupsrétt
á leikmanninum en það eitt og sér
verður ekki nóg standi vilji
Hjálmars til þess að fara í
heimahagana.
Sterklega orð-
aður við Þrótt
Eiður Smári Guðjohnsen
er í leikmannahópi Barcelona í
kvöld sem mætir Glasgow Rang-
ers í Skotlandi. Vonir standa til að
Eiður verði loksins í byrjunarliði
Barcelona en hann leysti Deco af
hólmi um síðustu helgi er Portú-
galinn meiddist og stóð sig vel.
Það verður áhugavert að sjá
hvernig Barca gengur gegn
Rangers, sem kom mjög á óvart
með því að leggja Lyon að velli í
síðustu umferð, 3-0, og hefur ekki
tapað síðustu átta leikjum sínum
í keppninni.
Manchester United mætir
Dynamo Kiev í Úkraínu. Nem-
anja Vidic ætti að koma aftur inn
í vörn United eftir meiðsli en
Louis Saha er enn fjarri góðu
gamni vegna meiðsla. Hjá Kiev
eru allir leikmenn heilir nema
fyrrverandi framherji Totten-
ham, Sergei Rebrov.
Eiður í byrjunarliðinu gegn Rangers?
FH gekk frá samningum
við tvo sterka leikmenn í gær;
varnarmanninn Höskuld Eiríks-
son frá Víkingi, eins og getið er
um ofar á síðunni, og svo við fram-
herjann Jónas Grana Garðarsson
sem var markakóngur Lands-
bankadeildarinnar í sumar.
Aðeins eru tvö ár síðan Húsvík-
ingurinn fór frá FH þar sem hann
fékk afar fá tækifæri með liðinu.
Mikið fjaðrafok var í kringum
félagaskipti Jónasar enda stóð FH
í vegi fyrir því að hann fengi að
spila með öðru liði í Landsbanka-
deildinni. Til að losna frá FH varð
Jónas því að semja við lið í 1. deild-
inni. Úr varð að hann gekk í raðir
Fram. Hann minnti FH síðan ræki-
lega á hverju félagið var að missa
af er hann skoraði tvö mörk gegn
FH í Krikanum.
„Ég er kominn heim. Nýr þjálf-
ari er aðalástæðan fyrir því að ég
er kominn í FH og að mér bauðst
að koma í FH. Ég óttast ekki að
þurfa að sitja á bekknum. Annars
hefði ég ekki farið að semja við
FH og ég geri ekki ráð fyrir því að
Heimir sé að fá mig á sömu for-
sendum og voru áður. Það er samt
enginn áskrifandi að sæti í FH-lið-
inu,“ sagði Jónas Grani, 34 ára,
sem hefur mikla trú á Heimi Guð-
jónssyni sem þjálfara en hann
gerir eins árs samning við FH.
„Það var samt vissulega erfitt
að yfirgefa Fram enda átti ég
góðan tíma þar og mér gekk vel í
bláu treyjunni.“
Eins og áður segir var talsvert
fjaðrafok í kringum brotthvarf
Jónasar Grana á sínum tíma og
sitt sýndist hverjum um aðferðir
stjórnar FH í málinu. Sjálfur var
Jónas ekki sáttur.
„Vissulega var ég ekki sáttur
enda taldi ég mig hafa skilað mínu
til félagsins og eiga betra skilið.
Staðreyndin er samt sú að FH er
mun stærra og meira en nokkrir
einstaklingar sem vildu ekki leyfa
mér að fara í úrvalsdeildarlið á
sínum tíma,“ sagði Jónas Grani,
sem er löngu hættur að velta sér
upp úr fortíðinni og hlakkar til
næsta sumars.
„Þetta er mikil áskorun fyrir
mig og ég vildi taka henni. Óli
taldi sig ekki hafa not fyrir mig á
sínum tíma og menn geta deilt um
þá ákvörðun. Árangur hans talar
aftur á móti sínu máli og því ætla
ég ekkert að rífast um það. Ég tel
mig samt hafa sýnt hjá Fram að ég
hef ýmislegt fram að færa í fót-
bolta. Vonandi sýni ég það áfram
næsta sumar.“
Markakóngur Landsbankadeildarinnar, Jónas Grani Garðarsson, gekk í raðir
FH á nýjan leik í gær. Aðeins eru tvö ár síðan FH losaði sig við Jónas Grana og
þvingaði hann þess utan til þess að semja við lið utan Landsbankadeildarinnar.
Það gengur hvorki né
rekur hjá Tottenham Hotspur
þessa dagana og liðið er enn í
fallsæti eftir 3-1 tap gegn
Newcastle í gær.
Obafemi Martins, Claudio
Cacapa og James Milner skoruðu
fyrir Newcastle en Robbie Keane
klóraði í bakkann fyrir Spurs.
Tottenham enn
í fallsæti
Íslendingafélagið Brann
frá Björgvin varð í gær norskur
meistari í knattspyrnu í fyrsta
skipti í 44 ár. Brann varð
meistari án þess að að spila því
eina liðið sem gat skákað því,
Stabæk, tapaði gegn Viking, 2-1.
Þrír Íslendingar eru í liði
Brann – Kristján Örn Sigurðsson,
Ólafur Örn Bjarnason og Ármann
Smári Björnsson.
Brann meistari