Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
1. desember 2007 — 327. tölublað — 7. árgangur
Hús&heimili
Innlit í risíbúð í miðbænum,
jólaborðskreyting með ævintýra-
blæ og leikföng
frá Unicef eru
meðal efnis í
Hús&heimili.
FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU
Í DAG
hús&heimiliLAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007
● HÖNNUNHúllahringir og rólufjör
● JÓLABORÐIÐÆvintýrablær á matarborðinu
● INNLITEldhússtúss á toppnum
VEÐRIÐ Í DAG
Ekkert
prinsessulíf
Jóhanna Vala Jóns-
dóttir keppir í Miss
World í dag.
FÓLK 76
Heima um jólin
Stórsöngvarinn Kristján
Jóhannsson vill
vera á Íslandi yfir
hátíðirnar.
FÓLK 90
ROFAR TIL SYÐRA - Í dag verða
norðaustan 5-13 m/s en sumstaðar
hvassara, einkum suðaustan til.
Éljagangur á víð og dreif nyrðra en
léttir smám saman til syðra. Vægt
frost fyrir norðan en nálægt frost-
marki syðra.
VEÐUR 4
Með Biblíuna í farteskinu
GARÐAR THÓR CORTES FLÝGUR UM HEIMINN
FIMM SINNUM Í VIKU
36
Adam
átti syni
sjö
og hann sendi
þeim öllum
jólapakka með
Póstinum
www.postur.is
STJÓRNMÁL Ágreiningur er innan
Sjálfstæðisflokksins um framtíð
varnarmála. Hluti þingflokksins er
fylgjandi stofnun varnarmála-
stofnunar og reglubundnum heim-
sóknum orrustuþota, en annar hluti
vill frekar sinna borgaralegum
verkefnum innan Atlantshafs-
bandalagsins.
Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segir efa-
semdir innan beggja stjórnar-
flokka um þá stefnu sem virðist
vera í mótun í varnarmálum.
Hann leggur til að upplýsingar
frá loftvarnakerfinu verði sendar
til þeirra bandalagsþjóða sem telji
þær nauðsynlegar, og að lágmarks-
vöktun hérlendis fari fram í Björg-
unarmiðstöðinni í Skógarhlíð.
Þá sé engin þörf fyrir reglu-
bundnar heimsóknir orrustuþota
hingað til lands. Ljóst sé að heim-
sóknirnar muni kosta hundruð
milljóna á ári, en markmiðin séu í
besta falli óljós.
Með því að draga úr loftvörnum
mætti spara talsvert fé. Það vilja
Jón og fleiri nota til þess að byggja
upp varnir gegn náttúruvá, hryðju-
verkum og skipulagðri glæpastarf-
semi. Þá ættu Íslendingar að taka
forystu í borgaralegum verkefnum
NATO, til dæmis í Afganistan.
Jón ræddi þessi sjónarmið við
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
utanríkisráðherra á opnum fundi
um varnarmál í vikunni. Þar sagði
hún að ef ekki ætti að stunda her-
æfingar, ekki starfrækja loftvarna-
kerfi og ekki taka þátt í starfi
NATO í Afganistan snerist spurn-
ingin um það hvort Ísland ætti að
vera áfram í NATO.
Þingflokkur Samfylkingarinnar
virðist vera á svipaðri bylgjulengd
og sá hluti þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins sem er hlynntur þeirri
stefnu sem Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra hefur markað, að hingað
komi orrustuþotur til æfinga að
meðaltali fjórum sinnum á ári.
Árni Páll Árnason, varaformað-
ur utanríkismálanefndar og þing-
maður Samfylkingarinnar, segir
það ótvírætt mikilvægt að
flug sveitir komi hingað til lands
nokkrum sinnum á ári. Það sé liður
í því að viðhalda loftvarnakerfinu
að stunda æfingar hér við land.
Bjarni Benediktsson, formaður
utanríkismálanefndar Alþingis og
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
segist enn eiga eftir að heyra rökin
fyrir stofnun varnarmálastofnun-
ar, en hafi ekki forsendur til að
mynda sér skoðun.
„En ég held að við eigum að gæta
okkar á því að ganga ekki of langt í
því að efna til heræfinga á Íslandi
með tilheyrandi kostnaði,“ segir
Bjarni. - bj / sjá síðu 38
Ósammála um varnarmál
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins virðist klofinn í afstöðu til framtíðar varnarmála hér á landi. Samfylking-
in fylgir formanni Sjálfstæðisflokksins og þeim sem vilja orrustuþotur og varnarmálastofnun. Hópur þing-
manna vill að dregið verði úr loftvörnum og fé lagt í borgaraleg verkefni hér á landi og á vegum NATO.
Stórsigur hjá stelpunum
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
bolta sigraði Grikki
með 13 marka mun
í gær.
ÍÞRÓTTIR 82
Ekkert jólafrí í rokkinu
STRÁKARNIR Í SIGN ERU NÝBÚNIR AÐ GEFA
ÚT FJÓRÐU PLÖTU SÍNA OG HALDA TÓNLEIKA
Á NASA Í KVÖLD
56
VIÐ EFTIRLIT Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tugi bíla á Sæbrautinni í gær en þá hófst átak gegn ölvunarakstri. Þó
nokkrir ökumenn reyndust vera ölvaðir. Átakið stendur til áramóta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Fimm ára drengur liggur þungt
haldinn í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítal-
ans eftir að ekið var á hann í Reykjanesbæ síðdegis
í gær. Sá sem ók á drenginn flúði af vettvangi.
Lögregla leitaði hans enn í gærkvöldi.
Lögregla fékk tilkynningu um það um klukkan
fimm í gær að ekið hefði verið á barn við gatnamót
Vesturgötu og Birkiteigs í Reykjanesbæ. Þegar
sjúkralið kom á vettvang var drengurinn meðvit-
undarlaus. Lögreglan í Reykjavík greiddi fyrir för
sjúkrabílsins að Landspítalanum í Fossvogi með því
að stöðva umferð á gatnamótum á leiðinni.
Lögreglan á Suðurnesjum reri að því öllum árum
í gærkvöldi að finna bláan skutbíl sem sást yfirgefa
vettvang slyssins. Fjölmargar ábendingar höfðu
borist og unnu þrír rannsóknarlögreglumenn að því
að kanna þær.
Þær upplýsingar fengust hjá lækni á gjörgæslu-
deild að drengurinn væri alvarlega slasaður og
væri haldið sofandi í öndunarvél. - sh
Lögregla leitaði í gærkvöldi ökumanns sem flúði af vettvangi alvarlegs slyss:
Ók á fimm ára dreng og stakk af
BANDARÍKIN, AP Geðsjúkur maður
sem sagðist vera með sprengju
innanklæða tók sjálfboðaliða á
kosningaskrifstofu Hillary Clinton
í New Hampshire í gíslingu í gær.
Clinton var stödd á kosningafundi í
Virginíu.
Maðurinn ruddist inn á skrifstof-
una og sýndi eitthvað sem líktist
sprengju undir frakka sínum. Hann
sleppti strax tveimur gíslum, konu
með ungt barn, og skömmu síðar
einum til viðbótar. Í gærkvöldi lá
ekki fyrir hvort sprengjan var
raunveruleg en talið var að ein
kona væri enn í haldi mannsins.
Lögreglan hafði gríðarmikinn
viðbúnað og rýmdi nálægar
byggingar, þeirra á meðal kosn-
ingaskrifstofur helstu keppinauta
Hillary Clinton um útnefningu
demókrata til forsetaframboðs,
Baracks Obama og Johns Edward.
Maðurinn hefur áður komið við
sögu lögreglu. Hann er haldinn
geðsjúkdómum og benti syni sínum
fyrr um daginn á að hann skyldi
fylgjast með fréttunum. - sdg / - sh
Kosningaskrifstofa Clinton:
Sprengjumaður
tók fjóra gísla