Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 49
[ ]Loðstígvélin er tímabært að taka fram nú þegar kular að. Tími þeirra er svo sannarlega kominn og gott er að stinga köldum tánum ofan í loðfóðrað og mjúkt skótau.
Þegar kólna fer í veðri þarf að draga vetrarfötin
fram. Hvort sem leggja á í gönguferð til fjalla
eða bregða sér milli húsa innanbæjar er nauð-
synlegt að klæða sig vel.
„Það er ekkert til sem heitir vont veður, bara vondur
útbúnaður,“ segir Emilía Magnúsdóttir, göngugarpur
í ferðafélaginu Útivist, en hún hefur fengist við
fararstjórn hjá félaginu. „Ég er búin að vera í Útivist
í um það bil fjórtán ár og hef farið í margar göngu-
ferðir, skíðaferðir, hjólaferðir og líka jöklaferðir.“
Emilía, sem er kennari að atvinnu, fór meðal annars
í hjólaferð til Hollands í sumar. Hún ferðast þó mest
innanlands og hefur mikla reynslu í að búa sig út.
„Maður hugsar þetta yfirleitt í þremur lögum innsta
lagið eru þunn nærföt, síðerma og síðar buxur og
mér þykir best að vera í ullinni. Það er mikið úrval
núna af mjúkri ull og hún er alltaf hlýjust.“ En fyrir
þá sem ekki þola ullina segir Emilía ýmis nærföt úr
gerviefnum líka vera til. „Aðalreglan er að vera ekki
í neinu sem heitir bómull og hún er eiginlega alveg
bönnuð. Hvort sem maður svitnar eða blotnar eitt-
hvað smávegis í hálsmáli eða framan á ermum þá er
hún orðin köld og þornar ekki. Það er alveg óþarfi að
eyða plássinu í farangrinum undir hana,“ segir Emil-
ía og bætir við að flíspeysur séu þægilegar utan yfir
ullarnærfötin og svo liprar göngubuxur sem eru
fljótar að þorna.
„Maður þarf að passa að vera hlýtt í hálsinn og
hlýtt á höfðinu því þar missir maður mesta hitann út
og svo er áríðandi að vera með góða vettlinga og
sokka og lykilatriði að vera í góðum gönguskóm. Oft
er maður í þunnum sokkum innst til að fá ekki hæl-
særi þegar maður er að ganga,“ segir Emilía og mælir
með mannbroddum í hálkunni úti núna og göngustöf-
um, sérstaklega þegar komið er út fyrir bæinn. „Svo
þarf maður að vera í ysta laginu bæði vindheldu og
vatnsheldu en að það andi og sjálf fer ég aldrei í regn-
galla.“ Emilía bætir því við að þegar það er mikil
birta og sól sé gott að hafa góð sólgleraugu.
Hún segist ekki endilega hafa orðið vör við mikla
tískustrauma í útivistarfatnaði annað en að úrvalið sé
alltaf að aukast og almennt finnst henni fólk klæða
sig skynsamlega í dag. „Það er kannski helst fyrst á
haustin sem einhverjir eru lengi að taka við sér en
mér finnst fólk mjög skynsamlega búið,“ segir Emilía
sem ætlar að drífa sig í aðventuferð inn í Bása um
helgina.
heida@frettabladid.is
Út í hvaða veðri sem er
Emilía Magnúsdóttir, fararstjóri hjá Útivist, kann að klæða sig
eftir veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GÆÐAVARA Á GÓÐU VERÐI
VERSLUN GUÐSTEINS, LAUGAVEGI.
Laugavegi 69 • sími 551-0821
Frokenpilimnet.is