Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 122
86 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
EFSTIR Í TÖLFRÆÐINNI Í
UMFERÐUM 1 TIL 8
Flest stig í leik
1. Cedric Isom, Þór Ak. 27,6
2. Bobby Walker, Keflavík 22,6
3. Darrell Flake, Skallagrími 22,5
4. Donald Brown, Tindastól 21,6
5. Jonathan Griffin, Grindavík 21,5
6 Justin Shouse, Snæfelli 21,1
7. Drago Pavlovic, Fjölni 21,0
8. Milojica Zekovic , Skallagrími 20,4
9 Dimitar Karadzovski , Stjörnunni 20,1
10. Hreggviður Magnússon, ÍR 19,8
10. Tommy Johnson, Keflavík 19,8
Flest fráköst í leik
1. Darrell Flake, Skallagrími 12,8
2. George Byrd, Hamri 12,1
3. Hlynur Bæringsson, Snæfelli 11,4
4. Joshua Helm, KR 9,9
5. Friðrik Stefánsson, Njarðvík 9,0
6. Ómar Sævarsson, ÍR 8,8
7. Marcin Konarzewski, Tindastól 8,1
7. Donald Brown, Tindastól 8,1
7. Óðinn Ásgeirsson, Þór Ak. 8,1
10. Milojica Zekovic, Skallagrími 7,4
Flestar stoðsendingar í leik
1. Justin Shouse, Snæfelli 6,5
2. Allan Fall, Skallagrími 6,1
3. Samir Shaptahovic, Tindastóll 6,1
4. Cedric Isom, Þór Ak. 6,0
5. Magnús Þór Gunnarss., Keflavík 5,4
Flestir stolnir boltar í leik
1. Sonny Troutman, ÍR 6,67
2. Jonathan Griffin, Grindavík 4,38
3. Karlton Mims, Fjölni 3,50
4. Justin Shouse, Snæfell 2,63
5. Tommy Johnson, Keflavík 2,50
5. Donald Brown, Tindastól 2,50
5. Bobby Walker, Keflavík 2,50
Flest varin skot í leik
1. Egill Jónasson, Njarðvík 2,88
2. George Byrd, Hamri 2,00
2. Nemanja Sovic, Fjölnir 2,00
4. Friðrik Stefánsson, Njarðvík 1,88
5. Steven Thomas, Stjarnan 1,80
Besta 3ja stiga skotnýting
1. Hjörtur H. Einarss., Njarðvík 53,3%
2. Axel Kárason. Skallagrími 48,0%
3. Adam Darboe, Grindavík 47,8%
4. Muhamed Taci, Stjörnunni 47,4%
5. Samir Shaptahovic, Tindast. 46,0%
Besta vítanýting
1. Lárus Jónsson, Hamri 96,2%
2. Allan Fall, Skallagrími 90,5%
3. Adam Darboe, Grindavík 90,0%
4. Darri Hilmarsson, KR 88,2%
5. Páll Axel Vilbergss., Grindav. 86,2%
KÖRFUBOLTI Keflvíkingurinn Bobby
Walker er besti leikmaður fyrstu
átta umferða Iceland Express-
deildar karla en KKÍ verðlaunaði í
gær þá leikmenn, þjálfara og dóm-
ara sem sköruðu fram úr í þessum
fyrsta hluta tímabilsins.
KKÍ setti saman sérstaka nefnd
og er hún skipuð einstaklingum
sem koma hver úr sinni áttinni en
eiga það sameiginlegt að sjá meira
og minna alla leiki. Nefndin ákvað
síðan að velja 3 íslenska leikmenn
og 2 erlenda leikmenn hverju sinni
í úrvalsliðið en þessi verðlaun
verða alls afhent þrisvar í vetur.
„Það er alltaf gaman að fá svona
verðlaun og ég er mjög ánægður
með þetta. Við höfum byrjað frá-
bærlega og höfum verið heppnir
að enginn okkar leikmanna hefur
meiðst. Við höfum bara einbeitt
okkur að því að njóta þessa og
hafa gaman af því að spila körfu-
bolta saman,“ segir Bobby Walker,
besti leikmaður 1. til 8. umferðar
Iceland Express-deildar karla.
Walker hefur skorað 22,6 stig og
gefið 4,8 stoðsendingar að meðal-
tali í leik og nýtur sín vel í Kefla-
víkurliðinu. „Ég er mjög sáttur við
leikstílinn og ég er vanur hröðum
leik og að keyra á andstæðingana.
Við leggjum áherslu á að spila
hratt en af skynsemi. Ég er með
frábærum strákum í liði, þeir
leggja allir mikið á sig og vilja
vinna og ástríða þeirra fyrir körfu-
boltanum fer ekki fram hjá nein-
um,“ segir Walker.
Það hefur vakið sérstaka eftir-
tekt hversu vel Walker hefur spil-
að gegn bestu liðum deildarinnar
en í leikjunum á móti liðum í efri
hluta deildarinnar hefur hann
skorað 28,0 stig að meðaltali í fjór-
um leikjum og hitt úr 58,9 prósent-
um skota sinna.
„Ég tel mig hafa haft heppnina í
liði með mér. Ég undirbjó mig vel
en bjóst aldrei við að það ætti eftir
að ganga svona vel. Ég er búinn að
spila vel og félagar mínir í liðinu
eiga mikið í því vegna þess að þeir
treysta mér til að spila minn leik.
Við erum ekkert að reyna að gera
hluti sem við erum ekki vanir. Við
spilum okkar leik og reynum að
nýta okkur styrkleika liðsins,“
segir Walker sem segir að það
muni reyna á Keflavíkurliðið í
næstu leikjum. „Ég held að hin
liðin í deildinni séu enn spenntari
að mæta okkur en áður. Þau hafa
allt að vinna þegar þau mæta
okkur því við erum taplausir á
toppnum og allir vilja verða fyrst-
ir til þess að vinna okkur. Þetta er
sterk deild og ég bjóst við því
þegar ég kom þar sem að ég þekkti
leikmenn sem höfðu spilað hér
áður,“ sagði Walker sem er ánægð-
ur með þjálfara sinn Sigurð Ingi-
mundarson sem var valinn besti
þjálfari fyrstu átta umferðanna.
„Siggi er góður þjálfari og segir
okkur hlutina eins og þeir eru.
Hann lætur okkur vita af því,
hvort sem við erum að gera hlut-
ina rétt eða rangt. Við verðum
bara að gera meira rétt en rangt,“
sagði Walker að lokum.
Aðrir leikmenn í fimm manna
úrvalsliðinu eru Dimitar Kar-
adzovski úr Stjörnunni, Páll Axel
Vilbergsson úr Grindavík, Jón
Norðdal Hafsteinsson úr Keflavík
og Óðinn Ásgeirsson úr Þór Akur-
eyri.
Dimitar Karadzovski hefur
skorað 20,1 stig og gefið 4,8 stoð-
sendingar og hjálpað nýliðum
Stjörnunnar að fóta sig í deildinni.
Enginn leikmaður í deildinni
hefur skorað fleiri þriggja stiga
körfur, en Dimitar hefur skorað
34 slíkar í leikjunum átta eða 4,3 í
leik.
Páll Axel Vilbergsson hefur
spilað vel fyrir Grindavík sem
hefur unnið sjö síðustu leiki sína
eftir að hafa steinlegið í fyrsta
leik. Páll Axel er með 18,8 stig og
6,5 fráköst í leik.
Keflvíkingurinn Jón Norðdal
Hafsteinsson er dýrmætur fyrir
Keflavíkurliðið og gerir alla þessa
litlu hluti sem skipta miklu máli
en sjást ekki í tölfræðinni. Jón var
með 8,9 stig og 6,4 fráköst á þeim
21,9 mínútum sem hann spilaði í
leik.
Þórsarinn Óðinn Ásgeirsson er
búinn að ná sér af meiðslunum og
hefur leikið mjög vel með nýlið-
unum. Óðinn hefur skorað 17,6
stig og tekið 8,1 fráköst að meðal-
tali en í sigurleikjum liðsins hefur
hann skorað 25,3 stig í leik og hitt
úr 57,4 prósentum skota sinna.
Besti dómarinn kemur úr
Reykjanesbæ eins og besti leik-
maðurinn og besti þjálfarinn.
Njarðvíkingurinn Sigmundur Már
Herbertsson stóð sig best að mati
nefndarinnar sem leitaði þar til
þjálfara deildarinnar.
ooj@frettabladid.is
Keflavík tók bæði stóru verðlaunin
Körfuknattleikssambandið veitti í gær verðlaun til þeirra sem hafa skarað fram úr í umferðum 1-8 í Iceland
Express-deild karla. Bobby Walker var valinn besti leikmaðurinn, Sigurður Ingimundarson besti þjálfarinn
og Sigmundur Már Herbertsson stóð sig best af dómurunum í deildinni.
BESTI DÓMARINN Sigmundur Már Her-
bertsson hefur dæmt vel í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
ÞRÍR GÓÐIR Keflvíkingarnir Bobby Walker, Jón Norðdal Hafsteinsson og Sigurður Ingimundarson.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KÖRFUBOLTI Sigurður Ingimundar-
son fékk sín fyrstu verðlaun sem
þjálfari í úrvalsdeild karla í gær
þegar hann var valinn besti leik-
maður 1. til 8. umferðar Iceland
Express-deildar karla.
„Það er gaman að fá þessi verð-
laun en ég er samt ekki mikið að
pæla í svona hlutum. Það er liðið
sem er í rauninni að fá viður-
kenningu þegar leikmenn eða
þjálfarar þess fá verðlaun,“ segir
Sigurður Ingimundarson sem
hefur leitt Keflavíkurliðið til sig-
urs í fyrstu átta leikjum tímabils-
ins.
„Það er einkenni okkar liðs að í
því eru miklir liðsmenn og þeir
spila allir ofsalega vel saman.
Menn eru til skiptis að eiga frá-
bæra leiki og geta síðan jafn-
framt bakkað frá þegar aðrir í
liðinu eiga frábæra leiki. Menn
leyfa öðrum líka að njóta sín og
það er bara uppskrift að vel-
gengni. Það eru því fullt af öðrum
leikmönnum í mínu liði sem mér
finnst hafa staðið sig mjög vel,“
segir Sigurður en er samt sam-
mála því að nefndin hafi tekið
réttu mennina út. „Ég held að það
sé alveg sanngjarnt að Jonni og
Bobby fái verðlaun því þeir báðir
hafa spilað mjög vel. Það að Jonni
hafi fengið verðlaun sýnir það að
þeir sem eru að velja þetta hafa
vit á því sem þeir eru að gera en
velja ekki bara út frá því hverjir
eru stigahæstir eða eru öflugir í
annarri tölfræði. Hann á fyllilega
heima þarna,“ sagði Sigurður.
Sigurður er mjög ánægður með
þann eiginleika Bobby Walker að
spila best í stærstu leikjunum.
„Bobby hefur dregið sig til hlés í
leikjum sem eru fljótlega orðnir
tryggir fyrir okkur og hann er
heldur ekki mikið að trana sér
fram á móti minni liðunum. Það
finnst mér vera þvílíkt flott kar-
aktereinkenni,“ segir Sigurður
sem er ánægður með þróun mála
í vetur.
„Við höfum spilað mjög vel og
allir leikirnir hafa unnist sæmi-
lega sannfærandi hjá okkur fyrir
utan leikinn í Hólminum sem
vannst þó. Við höfum lítið verið
að spila alvöruleiki að undan-
förnu og ég hef áhyggjur af því.
Þetta er eiginlega búið að vera of
létt undanfarið,“ segir Sigurður
og hann veit að það er enn mikið
eftir af tímabilinu.
„Það kom mér á óvart hvað hin
liðin bjuggust við litlu af okkur.
Ég hef svolítið gaman af því en
við verðum ekki í neinum sér-
flokki þegar kemur í úrslita-
keppnina því hin liðin eru það
góð,“ segir Sigurður. - óój
Sigurður Ingimundarson fékk sín fyrstu verðlaun sem karlaþjálfari:
Miklir liðsmenn í mínu liði
FYRSTU VERÐLAUNIN Sigurður Ingimundarson tekur við verðlaunum úr hendi
Hannesar Jónssonar formanns KKÍ: FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Nýjustu lögin í
símann
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Ótrúlegt úrval íslenskra og erlendra
laga sem þú getur eignast