Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 110
74 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Mikið er ég fegin að maður sér loks rigninguna kveðja og frost festast
á jörðu. Mér finnst svo skemmtilegt að finna fyrir smá kulda og stillu,
þegar andardrátturinn frýs, stjörnurnar skína rétt fyrir hádegi og það
glitrar á göturnar. Að dúða sig upp í fallegar peysur og kápur og húfur,
þykka ullarsokka og trefla og hanska. Allt með þeim tilgangi að vera
rækilega hlýtt, enda er fátt minna töff en að ganga um á bol eða
berleggjaður skjálfandi úr kulda. Hlýjar peysur ásamt fallegum
þykkum ullarsokkabuxum eru svo án efa einn þægilegasti klæðnaður
sem um getur, sérstaklega fyrir kuldaskræfur eins og mig. En ó, hvað
ég vildi stundum að það væri til eitt stykki Marks og Spencers búð í
Reykjavík þar sem hægt væri að kaupa fimm peysur úr dúnmjúkri
kasmírull án þess að fara á hausinn. Ég er með algjört æði fyrir þessu
unaðslega efni. Kasmírull er nefnilega eina prjónaefnið sem maður
getur verið í án þess að vera í neinu undir. Hún stingur ekki, mann
klæjar ekki undan henni og hún fær mann ekki til að hnerra. Fyrir þá
sem halda ef til vill að kasmírull sé unnin úr einhverri nýrri tegund
sílikonþráða þá get ég upplýst ykkur um að þessi lúxusvara kemur
undan maganum á kasmírgeitinni sem á heima á Indlandi, í Tíbet og í
Mongólíu. Hún var auðvitað mjög vandfundin fyrr á öldum og öðlaðist
frægð þegar Napóleon Frakklandskeisari gaf síðari konu sinni,
Evgeníu prinsessu, heil sautján sjöl úr ullinni. Kasmírpeysum skaut
svo aftur upp á hátind vinsældanna þegar leikkonan heimsfræga Lana
Turner skartaði níðþröngri kasmírpeysu í kvikmynd frá 1937 sem hét
„They won‘t forget“. Úr varð tíska sem kallaðist „ Sweater-girl“ tískan
sem snerist einfaldlega um brjóstgóðar kynbombur í þröngum peysum
og myndir af þeim yljuðu mörgum hermanninum á köldum stríðsvetr-
um. (Oftast gengu þær þó í oddhvössum og fráhrindandi brjóstahöldur-
um undir). En hvar er best að finna kasmírull á klakanum? Eflaust
fæst hún í ýmsum útgáfum í dýrustu tískuverslunum Reykjavíkur. En
það er reyndar eitt snilldartrix: að skreppa í eina af „vintage“ búðum
Reykjavíkur og sjá hvaða kasmírgersemar gætu leynst þar. Peysur
sérstaklega frá sjötta áratugnum voru til dæmis ægilega fagrar í
sniðinu og oft bróderaðar með alls kyns skrauti og perlum. Sem sagt
stúlkur, peysur eru sexí og hlýjar, alveg eins og við í vetur.
Verðum peysustelpur í vetur
Nú þegar veturinn er skollinn á er
vert að skoða hvað tískuhönnuðir
gerðu við prjónafötin í vetur. Stór-
ar, síðar peysur eru áfram í tísku
eins og undanfarinn vetur og
Stella McCartney sló í gegn með
ísbjarnarpeysunni sinni sem
minnir dálítið á hina íslensku
lopapeysu. Prjónaföt voru þægi-
leg og sportleg hjá McCartney,
eitursvöl og þröng hjá Burberry
Prorsum og Richard Chai blandaði
saman grófum peysum og fínleg-
um kjólum. Það er því af nógum
innblæstri að taka í desember-
frostinu þar sem peysur eru
greinilega málið, í litum eins og
svörtu, hvítu, gráu og fjólubláu.
Hlýtt, notalegt
og sexý
ÞÆGILEGT OG SVALT Flott
grátt prjónadress frá
Stellu McCartney.
VÍÐ OG SEXÝ
Falleg vetrarhvít
prjónapeysa
yfir fínan
kvöldkjól frá
bandaríska
hönnuðinum
Richard Chai
APRÉS-SKI FÍLING-
UR
Risastór grá
„lopapeysa“
með skemmti-
legu mynstri
frá Stellu
McCartney
ÚTIVISTAR-
LEGT
Smart grátt
prjónavesti
með belti
setur punkt-
inn yfir i-ið.
Frá Richard
Chai.
KYNÞOKKAFULLT
Ofurfyrirsætan Daria Werbowy í fallegri
næfurþunnri prjónapeysu frá Stellu
McCartney
DÖMULEGT
Fölblár
prjónakjóll
frá hátísku-
sýningu
Chanel
hannaður
af Karl
Lagerfeld.
PLÓMULITAÐ
Æðisleg
hneppt,
þröng peysa
við húfu, belti
og hanska
frá Burberry
Prorsum.
FRAMÚR-
STEFNULEGT
Þessi
prjónakjóll
frá Gareth
Pugh er
nýstárleg
útfærsla á
peysunni.
...Rokkaralega ökklaskó með sem-
elíusteinum frá SAND í Kringlunni.
> VIKTOR & ROLF
hafa hannað einar flottustu ferðatöskur sem
um getur í samstarfi við Samsonite Black
Label. Línan inniheldur „beauty“ box og veski
fyrir brottfararspjald.
NÆRFATARISINN
Agent Provocateur ætla að færa út kvíarnar og
fjölga búðum úr 36 í 100. „ Það er svo mikill
fjöldi nýrra markaða sem við ætlum að herja á,“
segir Gary Hogarth, nýr markaðsstjóri. Kannski
Ísland sé næst á kortinu?
Áhugasamir skrái sig hjá Dóru Hafsteinsdóttur,
kynningarfulltrúa Þjóðleikhússins (dora@leikhusid.is)
í síðasta lagi 4.desember.
www.leikhusid.is
Opin söngprufa
fyrir nýjan söngleik, Ástin er diskó, lífið er pönk, fer fram í
húsakynnum Reykjavík Studios að Nýbýlavegi 8 (Dalbrekku
megin) fimmtudaginn 6. desember nk. kl. 19. Leitað er að ungum
karlmönnum (18-30 ára) sem geta leikið og sungið.
Söngleikurinn er eftir Hallgrím Helgason og verður sýndur á Stóra
sviði Þjóðleikhússins á komandi vori í leikstjórn Gunnars Helga-
sonar. Tónlistarstjóri er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
Lögin sem flytja á í prufunni eru Hiroshima (Bubbi og Utangarðs-
menn), Vetrarsól (Bó Hall) og Diskó Friskó (e. St. S. Stefánsson).
Ekki er verra ef viðkomandi geta leikið á hljóðfæri en það er ekki
skilyrði. Hljóðfæri verða á staðnum ef menn vilja leika undir eigin
söng. Sviðsreynsla er æskileg en alls ekki skilyrði.
„ …dauðinn
situr á
atómbombu“
...Dásamlegan kjól í 30‘s stíl
frá SAND, Kringlunni.
...Fagran
og fornlegan
rebbakraga
frá SPÚÚTNIK í
Kringlunni.
OKKUR
LANGAR Í
…