Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 56
● SKORIÐ MEÐ STÍL
Ekki eru allir ostaskerar eins og eru
sumir jafnvel ansi ábúðarmiklir.
Hinn klassíski netti ostaskeri
sem notaður er á Íslandi og
víðar á Norðurlöndum er
norsk uppfinning og þó að
flestum okkar þyki þetta einn
sjálfsagðasti hlutur í heimi þá er
það ekki svo. Víða um heim þekkist
okkar litli og praktíski skeri ekki og væri jafnvel
hægt að fara í útrás með þann litla þar sem flestir
sem komast á bragðið falla fyrir honum. Hann er fyrirferðarlítill og gerir
sitt gagn og felast töfrar hans í einfaldleikanum. Ostaskerinn sem við
sjáum hér er þó ekki síður glæsilegur þótt hann sé heldur
fyrirferðarmeiri. Hann er frá þýska fyrirtækinu Froma og
er úr burstuðu stáli og með grönnum vír sem sker
ostinn. Undir skeranum eru gúmmífætur
svo hann renni ekki til. Smekkleg
og falleg hönnun sem sómir sér
vel á hverju borði. - hs
í eldhúsið
Jólakort Barnahjálparinnar hafa
verið seld í sjálfboðavinnu á Ís-
landi í næstum hálfa öld og er enn
traustur grunnur að starfi hennar
um allan heim, enda rennur allur
ágóði af sölu jólakorta og gjafa-
vara til verkefna Barnahjálp-
arinnar.
Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna stendur stolt vörð
um handverk og menningu
þjóða, um leið og hún gætir
þess að vörurnar séu í hæsta
gæðaflokki og á góðu verði.
Sumar vörurnar eru unnar af
ábyrgum fyrirtækjum í Afríku
og Asíu og þannig geta kaupendur
verið vissir um að börn séu ekki
notuð við framleiðslu vörunnar, að
engin náttúruspjöll séu unnin af
viðkomandi fyrirtæki og að fyrir-
tækið sé ekki tengt misferli eða
spillingu. Í sumum tilvikum veita
fyrirtækin bágstöddum konum
atvinnutækifæri og fjölskyldum
þeirra betri lífsgæði um leið.
UNICEF trúir því að öll börn
þurfi vernd, öryggi og umhyggju
og eru staðráðin í að veita hverju
barni þá barnæsku sem það á skil-
ið; tækifæri til að leika sér, læra
og láta sig dreyma. Á hverjum
degi snertir Barnahjálpin líf
bágstaddra barna í yfir 150
löndum; veitir þeim mennt-
un, heilsugæslu og vernd
gegn ofbeldi, misnotkun og
sjúkdómum. Hún er einnig
stærsti kaupandi bóluefna
og malaríuneta í heimin-
um og þegar neyð skell-
ur á af völdum náttúru-
hamfara eða stríðs er hún ein
af þeim fyrstu til að veita hjálp og
bjarga lífi þúsunda barna.
Með því að kaupa jólakort og
gjafavörur UNICEF tekur fólk
virkan þátt í mikilvægum verk-
efnum og færir börnum um allan
heim gleði og von.
Jólabúðin verður opin alla virka
daga fram að jólum frá kl. 12.00 til
18.00. - þlg
Þau eru systkin þín
● Jólagjafir með fegurð, manngæsku og tilgang verða góðhjörtuðum falar í hillum jóla-
búðar UNICEF á Laugavegi 42 frá og með mánudeginum 3. desember. Þá hefst sala á
jólakortum og gjafavörum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
4. Land Rover-jeppa af þessari
gerð þekkja flest börn úr fréttun-
um og ekki dónalegt að eiga einn.
fórum sínum.
1. Stilltur logi af rauðu kúlu-
kerti með gylltri skreytingu send-
ir friðarvon um allan heim.
3. Litrík og dúnmjúk fiðrildis-
lirfa með tölustöfum til að læra á.
5. Undurfalleg jólakúla á jóla-
tréð, með myndum af hamingju-
sömum börnum af öllum kynþátt-
um.
2. Fögrum friðarfuglum til
jólaskreytinga fylgir von um heil-
ög jól fyrir öll mannanna börn.
1
2
3
4
5
Swopper
vinnustóllinn
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Ánægja við leik og störf
• Fæst í ýmsum litum
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Söluaðilar.: Garðheimar - Húsasmiðjan - EGG - Búsáhöld, Kringlunni - Pottar og Prik, Akureyri
www.weber.is
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
1. DESEMBER 2007 LAUGARDAGUR