Fréttablaðið - 01.12.2007, Síða 28
1. desember 2007 LAUGARDAGUR
T
inna Laufey Ásgeirsdóttir, doktor í
heilsuhagfræði, hefur verið atorkusöm
frá unga aldri og engin verkefni vaxið
henni í augum að sögn aðstandenda. Það
mátti sjá í vikunni þegar hún hélt
fyrirlestur í Norræna húsinu og kynnti fyrir fullu
húsi bókina Holdafar –
hagfræðileg greining.
Í kjölfarið þeystist hún
á milli fjölmiðla og
sagði frá niðurstöðum
rannsókna sinna.
Lýðheilsustöð gaf
verkið út og fjallar
bókin um alvarlegt og
stigvaxandi vandamál
ofþyngdar hjá þorra
Vesturlandabúa.
Vinkonur Tinnu
segja hana sjálfa
hugsa vel um heilsuna
þrátt fyrir að vera í
krefjandi starfi og á
þönum allan daginn.
Hún er mikil áhuga-
manneskja um
hreyfingu. Á sínum
yngri árum spriklaði
hún eitthvað í fótbolta
og stundaði líkams-
rækt. Þegar hún fór
svo til Bandaríkjanna í
frekara nám æfði hún
þríþraut; hljóp, hjólaði
og synti. Meðfram
hagfræðináminu nam
hún íþróttafræði og
leiðbeindi fólki við
æfingar. Hún hefur
hæfileika til að vasast
í mörgu og missir ekki
sjónar á markmiðum
þrátt fyrir að halda
mörgum boltum á lofti
í einu.
Tinna Laufey hefur
farið fyrir MS-námi í
heilsuhagfræði við
viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla
Íslands undanfarin
misseri auk þess að
starfa við Hagfræði-
stofnun HÍ. Samstarfs-
menn segja hana
frumkvöðul á þessu
fræðasviði hér á
Íslandi. Það hafi verið
mikill fengur að fá
hana heim frá
Bandaríkjunum þar
sem hún lærði og
starfaði. Hún sé að
byggja upp eina af
undirgreinum
hagfræðinnar,
heilsuhagfræði. Fagið
sé vaxandi alls staðar í
heiminum.
Það er afskaplega
gaman að vinna með
henni að sögn kunn-
ugra. Tinna Laufey er
sögð hugmyndarík,
samviskusöm og
drífandi. Hún lærði
sögu til BA-prófs í HÍ
og lauk doktorsprófi í
heilsuhagfræði frá
University of Miami í
Bandaríkjunum í
byrjun árs 2006. Grunnur hennar er því ólíkur
margra annarra hagfræðinga sem er kostur.
Greiningarhæfni hennar er sögð afburðagóð sem
birtist í störfum hennar á sviði hagfræðinnar.
„Þrátt fyrir annríki er hún mikil fjölskyldu-
manneskja,“ segir viðmælandi Fréttablaðsins. Sex
ára missti hún móður sína og var alin upp af
móðurömmu sinni og afa á Einimelnum í Vesturbæ
Reykjavíkur. Skyldmenni Tinnu Laufeyjar segja
hana með afbrigðum geðgóða. Hún hafi tekist á við
erfiða tíma í æsku af æðruleysi. „Hún fékk
eitthvert náðargen í vöggugjöf,“ sagði einn
viðmælandi blaðsins. Þessi góða lund gerði það að
verkum að hún var
afar jákvæð og
bjartsýn í öllum
verkefnum sem hún
stóð frammi fyrir. Það
átti við í persónuleg-
um verkefnum sem og
í námi. Hún hafði ekki
mikið fyrir skólanum,
var góður nemandi
enda sögð eldklár.
Þetta hefur mótað
Tinnu Laufeyju og er
hún mikil fjölskyldu-
manneskja þrátt fyrir
annríki. Fimm ára
sonur hennar, Pétur
Bjarni, á hug hennar
og hjarta. Saman eiga
þau það til að stökkva
af stað og ganga á
Úlfarsfell á góðviðris-
dögum, hjóla á
göngustígnum við
Ægisíðu eða fara í
sund. Það er alltaf
eitthvað í gangi.
Tinna Laufey
reynist líka fjölskyldu
sinni og vinum vel.
Hún er í góðum
tengslum við vini sína,
sögð hafa þægilega
nærveru og fyrst á
vettvang ef eitthvað
bjátar á. Þótt hún hafi
gaman af því að fara
út þá drekkur hún
sama og ekki neitt
enda vill hún nýta
tímann vel. Hún er
kannski helst lélegur
félagsskapur á
kvöldin þegar vinirnir
ætla að horfa á góða
mynd saman. Þá á hún
það til að sofna enda
orkan oft fullnýtt yfir
daginn.
Þegar alltaf er verið
að greina aðalatriðin
þá á Tinna Laufey það
til að vera utan við sig
þegar kemur að
daglegum hlutum.
Hún á til dæmis erfitt
með að muna hvar hún
setti lyklakippuna frá
sér, sem týnist oft.
Aðferðir til að koma í
veg fyrir þetta duga
stundum skammt. Þá
hefur hún líka týnt
símum og stígvélum.
En henni fyrirgefst
þetta allt enda hefur
hún góðan húmor
fyrir sjálfri sér.
Þá á Tinna Laufey
það til að vera
ómannglögg enda
hittir hún fjölda fólks
á hverjum degi í
störfum sínum. Það
hafa því komið upp
vandræðalegar stundir þegar hún áttar sig ekki á
hverjir viðmælendur hennar eru þótt þeir séu
jafnvel þekktustu hagfræðingar landsins.
Að þessu geta allir í kringum Tinnu Laufeyju
hlegið enda lítill galli miðað við þá kosti sem hún
hefur að bera. Það er fátt sem er henni ofviða er
samdóma álit allra sem Fréttablaðið ræddi við.
TINNA LAUFEY ÁSGEIRSDÓTTIR
Fékk náðargen í vöggugjöf
TINNA LAUFEY ÁSGEIRSDÓTTIR
ÆVIÁGRIP
Tinna Laufey er fædd í Vesturbæ Reykjavíkur árið 1975.
Hún ólst upp á Einimelnum hjá afa sínum og ömmu, þeim
Bjarna Kr. Bjarnasyni hæstaréttardómara og Ólöfu Pálsdóttur
læknaritara, eftir að móðir hennar, Birna Bjarnadóttir, lést
þegar Tinna var 6 ára. Tinna er dóttir Ásgeirs Haraldssonar,
yfirlæknis á Barnaspítala Hringsins, og á hún tvö hálfsystkini.
Sjálf á hún fimm ára gamlan son, Pétur Bjarna, sem er á
Hagaborg. Hún er mikill Vesturbæingur og var á Hagaborg
eins og sonurinn, gekk í Melaskóla og Hagaskóla. Árið 1998
útskrifaðist hún í sagnfræði frá Háskóla Íslands, mastersgráð-
una fékk hún 2002 og varð doktor í heilsuhagfræði í byrjun
árs 2006 frá University of Miami. Hún hefur einnig próf í
líkamsrækt sem hún stundaði úti í Bandaríkjunum og náði
sjálf góðum árangri í þríþraut – hlaupi, sundi og hjólreiðum.
HELSTU KOSTIR
Tinna Laufey er einstaklega dugleg og á auðvelt með að
hafa mörg járn í eldinum. Hún hefur gott skap og lítur lífið
björtum augum. Fá verkefni eru henni ofviða og það er
þægilegt að vinna með henni.
HELSTU ÓKOSTIR
Þrátt fyrir góðan hæfileika til að greina aðalatriðin vilja
hversdagslegir hlutir týnast í fórum hennar. Hún á erfitt með
að muna hvar hún lagði lyklana frá sér og hefur reynt að
þróa aðferðir til að tapa þeim ekki. Stundum er hún ómann-
glögg sem getur komið henni í óheppilegar aðstæður.
Auglýsingasími
– Mest lesið