Fréttablaðið - 01.12.2007, Page 30
30 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
KÆRA DAGBÓK
Þráinn Bertelsson skrifar
Skelfing og lukka
FÖSTUDAGUR, 23. NÓVEMBER.
Í morgun fengum við símtalið sem
allir óttast. Andri litli varð fyrir bíl
á leið í skólann í morgun og var
kominn á slysavarðstofuna.
Til allrar hamingju var hann lítið
meiddur. Bíllinn hlýtur að hafa
verið á lítilli ferð. Drengurinn var
að fara yfir götu á vandlega merkt-
ri gangbraut. Í rigningarsudda og
skammdegismyrkri eiga ökumenn
erfitt með að koma auga á gang-
andi vegfarendur, ekki síst þá sem
eru fremur lágir í loftinu.
Bókamælingar í vatna-
vöxtum
LAUGARDAGUR, 24. NÓVEMBER.
Ég er staddur á Hótel Ísafirði.
Mér var boðið að koma hingað til
að lesa upp úr bókinni minni í
gömlu og fallegu húsi sem heitir
Edinborg og Ísfirðingar hafa haft
skynsemi og menningu til að gera
upp í staðinn fyrir að slíta það upp
með rótum, drepa það og endur-
byggja síðan á öðrum stað eins og
tíðkaðist í Reykjavík meðan óvitar
fengu að ráða.
Þarna lásu líka Jón Kalman Stef-
ánsson, Ólína Þorvarðardóttir,
Einar Kárason og Vigdís Gríms-
dóttir og svo flutti bókmennta-
völva þjóðarinnar, Kolbrún Berg-
þórsdóttir, inngangserindi um
jólabókaflóðið. Ef einhver kann
inn á þær vatnamælingar er það
hún.
Flugveður
SUNNUDAGUR, 25. NÓVEMBER.
Það var soldið snautlegt að verða
ekki veðurtepptur á Ísafirði
þannig að ég gat lítið skoðað mig
um í þessum bæ þar sem Ólína
amma mín og Sigurgeir afi minn
bjuggu með barnahópinn sinn um
þarsíðustu aldamót.
Það var sem sagt skínandi flug-
veður og notalegt að koma heim.
Andri er stálsleginn og ætlar að
halda áfram að ganga menntaveg-
inn sem er vonandi betur upplýst-
ur en gangbrautir í Reykjavík. Á
þeim vegi eru altént engir bílar.
Heimska eða dónaskapur
MÁNUDAGUR, 26. NÓVEMBER.
Alveg er Melabúðin sérstakt
rarítet. Ekki veit ég hver á hana
en það er algjört kraftaverk
hvernig tekist hefur að koma
fyrir svona fjölbreyttri og
góðri matvöru í verslun sem
er á stærð við þokkalega
íbúð. Það er gaman að versla
þarna því að fólkið í búðinni
kann sitt fag og getur leiðbeint
manni. Öll stærri innkaup geri
ég í Bónus eða Krónunni til að
reyna að spara peninga. Í Mela-
búðinni versla ég hins vegar mér
til skemmtunar.
Í gærkvöldi varð ég
þess áskynja að erlent
tölvufyrirtæki sem ég
keypti eitt sinn vírus-
varnaforrit af á netinu hafði
í heimildarleysi farið inn á
kreditkortið mitt og framlengt
einhverja áskrift – sem ég hef
ekki nokkurn áhuga á að fram-
lengja.
Ég skrifaði þessu erlenda fyrir-
tæki nokkur mergjuð bréf en fékk
þau jafnharðan endursend því að
rétt netfang var ekki gefið upp.
Þess vegna sneri ég mér til
Europay sem er kortafyrirtæki
sem ég hef verið í viðskiptum við
frá upphafi kreditkortanotkunar
og bað um aðstoð.
Seint og um síðir kom þetta svar:
----- Original Message -----
From: N.N.
To: nyttlif@simnet.is
Sent: Monday, November 26, 2007
5:29 PM
Subject: Vegna fyrirspurnar á borg-
un@borgun.is
Sæll Þráinn
Það er lang best ef þú getur komið
til okkar og skrifað undir fyrirspurn.
Þegar er um erlenda færslu ræða
verðum við að fá undirskriftina þína.
Bestu kveðjur, / Kind regards,
N.N.
Þjónustufulltrúi, Þjónustusvið / Serv-
ice Assistant, Customer Service
nn@borgun.is
dir tel.: (+354) 560 15xx
Hvers konar heimska eða dóna-
skapur er það að svara auðskiljan-
legri aðstoðarbeiðni með því að
segja mér að mæta og fylla út
eyðublöð og gefa eiginhandarárit-
un?
Eftir fimmtán eða tuttugu ára
viðskipti við þetta fyrirtæki ætti
að vera til nægilegt magn af eigin-
handaráritunum mínum hjá Borg-
un eða Europay eða hvað svo sem
fyrirtækið kallar sig í augnablik-
inu. Ég hef alltaf stundað mín við-
skipti við þetta fyrirtæki undir
sama nafni og er sannfærður um
að þjónustan hjá flestum fyrir-
tækjum versnar eftir því sem þau
stækka og fer versnandi dag frá
degi.
Að standa í samskiptum við
stórfyrirtæki er eins og að reyna
að ræða við þroskaheft tröll.
Að bera út fullorðna
ÞRIÐJUDAGUR, 27. NÓVEMBER.
Nú eru femínistar komnir í heilagt
stríð við Egil Helgason og segjast
ætla að sniðganga þáttinn hans af
því að þeir (femínistarnir) hafi
verið sniðgengnir í þættinum. Enn
fremur hefur það komið til
umræðu á Alþingi hvort forsvar-
anlegt sé að sveinbörn og mey-
börn á fæðingardeildum séu merkt
með armböndum í mismunandi
litum. Næst
verður trú-
lega stungið upp
á því að til að bæta
konum upp misrétti sem
þær hafa verið beittar frá
landnámstíð verði hægt að
sækja um leyfi frá félagsmála-
Þroskaheft tröll
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá skelfilegu símtali og farsælum endi.
Einnig er fjallað um þroskaheft tröll, ferð til Ísafjarðar, flugveður, myrkar
gangbrautir, menntaveginn, hættulegan bókmenntaáhuga, sviðakjamma og
hálan veg milli Egilsstaða og Skriðuklausturs.