Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 98
62 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
Kærleikur
Á degi íslenskrar tungu spurði
blað eitt fólk um uppáhaldsorð, og
einir þrír svöruðu kærleikur. Ég
held að átt hafi verið við merkingu
orðsins, fremur en hve orðið sjálft
væri skemmtilegt. Í ritmálssafni
Orðabókar háskólans kemur það
fyrst fram í þýðingu Odds Gott-
skálkssonar á Nýja testamentinu
1540. Ekki er ólíklegt að hann hafi
smíðað þetta orð. En það er reynd-
ar til í nágrannamálum: kärlek í
sænsku og kærlighed í dönsku.
Lýsingarorðið kær er hins vegar
miklu eldra, er m.a. í Íslenskri
hómilíubók, elstu bók okkar. Þar
er hins vegar alltaf skrifað ást um
það sem síðar verður kærleikur.
Lo. kær er svokölluð tökuþýðing,
upphaflega komið úr latínu carus
en er smogin til okkar um frönsku
cher sem að frummerkingu er
dýrmætur. Því er einhver okkur
kær af því að okkur finnst hann/
hún dýrmæti.
Herra
Steinunn Valdís Óskarsdóttir vill
breyta titlinum ráðherra og hefur
nokkuð til síns máls. Mörg starfs-
heiti eru karlkyns, en það er mál-
fræðilegt kyn eingöngu. Svo er
hins vegar ekki um orðið herra,
sem aðeins er notað um karlmenn.
Ógerlegt er að nefna konu herra.
Því er ráðherra óheppilegt emb-
ættisheiti. Herra (einnig herri)
merkir húsbóndi, yfirmaður. Orðið
er skylt harri: konungur, höfðingi.
Einnig er til so. herra: slá til ridd-
ara, aðla. Athyglisvert er að í
öðrum málum er haft orðið minist-
er, sem merkir þjónn, dregið af
lat. minus: minni. Hér er hins
vegar vald ráðherra mikið og
meira en í nágrannalöndum okkar.
Því hefur mér dottið í hug að e.t.v.
mætti mynda nýtt orð af vald með
u-hljóðvarpi: völdur. Iðnaðarvöld-
ur, félagsmálavöldur – hvernig
lýst mönnum á það? Nema náttúr-
lega við köllum forsætisráðherra
alvald!!
Fleirtölusýki?
Ýmsir hafa bent mér á að æ oftar
sjáist orð í fleirtölu sem annars
eru eintöluorð.
Dæmi um það er „verðin á söfn-
unum hafa hækkað“, „komur flug-
véla“, „margar snyrtingar á sama
gangi“, „gerðar voru húsleitir í
tveimur húsum“ o.s.frv. Meira að
segja auglýsti einn bankinn: „Ertu
á milli húsnæða?“ Þetta er heldur
hvimleitt, og raunar óþarft. En
íslenskudeild lögreglunnar hefur
ekki þær gúmmíkylfur sem maður
sem kallar sig dr. Gunna lýsir eftir
hér í blaðinu 22. nóv. sl. Einungis
heimild til áminninga.
Sonur afa síns?
Hér í Fbl. 23. nóv. er sagt í flenni-
fyrirsögn: „Forsetinn eignast
fyrsta afasoninn“ og hljómar ærið
kynlega. Að vísu getur sami maður
verið bæði faðir og afi, og það
hefur því miður gerst. En sá maður
hefur níðst herfilega á dóttur
sinni. Forsetinn okkar eignaðist
aftur á móti fyrsta dótturson sinn,
og hann verður vonandi mikill afa-
strákur, eins og síðar var sagt hér
í blaðinu – sem betur fer.
Braghenda
Hestar slengja hófadyn um
hálfan dalinn.
Hann liggur þar í lofti falinn
og lætur hljóma fjallasalinn.
Vilji menn senda mér brag-
hendu eða góðfúslegar ábending-
ar: npn@vortex.is
HLJÓÐFÆRI HUGANS
Njörður P. Njarðvík skrifar
um íslenskt mál
HELGARKROSSGÁTAN
Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.this.is/krossgatur
Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ á
númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón.
Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON
Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12. - 99 kr. sms-ið
Leystu krossgátuna
Í vinning eru tveir miðar
í bíó í Regnbogann,
Borgarbíó eða Smárabíó?
Góð vika fyrir ...
... besta land í heimi
Íslendingar skutu Noregi
ref fyrir rass og hirtu efsta
sætið á lista þeirra þjóða
sem bestra lífskjara njóta í
Þróunarskýrslu Sameinuðu
þjóðanna. Á eftir Noregi
koma Kanada, Ástralía og
Írland.
... Jón Ólafsson
Jóni Ólafssyni virðist ætla að tak-
ast það sem margir hafa reynt en
án árangurs: að gera íslenskt vatn
að verðmætri útflutningsvöru.
Hann hyggst reisa verksmiðju í
Ölfusi og hefur gert samning við
stærsta dreifingarfyrirtæki í
Bandaríkjunum. Dagblaðið Fin-
ancial Times ræddi við Jón í vik-
unni og þar lýsir hann háleitri sýn sinni.
... miðborg Reykjavíkur
Borgin fær í sínar hendur eignir við Lindargötureit.
Listaháskólinn er kominn skrefi nær varanlegri
lausn á húsnæðismálum sínum því hann fær úthlut-
að lóð við Laugaveg. Samson fær eignir á Baróns-
stígsreit og ætlar að reisa þar verslunarkjarna.
Sýnir svo ekki verður um villst að miðbærinn er í
uppsveiflu og þykir eftirsóknarverður staður.
Vond vika fyrir ...
... bílaeigendur
Eldsneytisverð er komið í enn
eitt sögulega hámarkið. Margir
íhuga alvarlega að leggja
skrjóðnum og fjárfesta í þykkri
úlpu og mannbroddum, sem
hefur sjálfsagt aldrei verið
jafnfljótt að borga sig upp og
nú.
... rjúpnaskyttur
Fáir fá rjúpu í matinn á aðfangadagskvöld í ár.
Rjúpnaveiðitímabilinu lauk í gær og var eitt það
lélegasta í manna minnum. Tímabilið var styttra en
venjulega í ár og ólíklegt að það verði lengra að ári.
Þrátt fyrir sölubann heyrast sögur af óprúttnum
skotveiðimönnum sem veiða mikið og selja og er
hermt að sumir borgi allt að því sjö þúsund krónur
fyrir stykkið til að fá rjúpu í jólamat.
... forseta borgarstjórnar
Margrét Sverrisdóttir hefur
verið forseti borgarstjórnar
í aðeins nokkrar vikur þegar
þau tíðindi berast að Ólafur
F. Magnússon ætli að setjast
aftur í borgarstjórn eftir
fjarveru vegna veikinda.
Þótt það sé auðvitað gleði-
efni í sjálfu sér missir Mar-
grét klárlega spón úr aski
sínum.
GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA