Fréttablaðið - 01.12.2007, Page 112
76 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Jóhanna Vala Jónsdóttir
verður fulltrúi Íslands
þegar fögur fljóð frá öllum
heimshornum keppa um tit-
ilinn Ungfrú heimur í dag.
Jóhanna Vala setur sér ekki
nein markmið um árangur
og ætlar fyrst og fremst að
njóta augnabliksins.
„Ég er ekki að gera mér neinar
væntingar um ákveðinn árangur
í keppninni eða neitt svoleiðis.
Ég er hérna fyrst og fremst til að
njóta þess að taka þátt í svona
stórum viðburði, kynnast nýju
fólki og hafa gaman af,“ segir
Ungfrú Ísland, Jóhanna Vala
Jónsdóttir, en hún tekur í dag
þátt í stærstu fegurðarsam-
keppni ársins, Ungfrú heimi.
Keppnin í ár fer fram í hinu stór-
glæsilega Beauty Crown-leikhúsi
í Sanya í Kína, en það var einmitt
þar sem Unnur Birna Vilhjálms-
dóttir hreppti titilinn fyrir tveim-
ur árum.
Jóhanna Vala hefur dvalið í
Kína í tæpar fjórar vikur við
undirbúning og segir hún langar
og strangar æfingar hafa tekið
sinn toll. „Fyrstu tvær vikurnar
voru frekar þægilegar en síðustu
tíu dagar hafa verið mjög
strembnir. Stundum höfum við
verið að vakna klukkan fimm á
morgnana og ekki komið heim
fyrr en undir miðnætti. Þetta er
alls ekkert prinsessulíf, í raun-
inni bara hörkupúl en um leið
ofsalega gaman. Það hefur verið
frábært að kynnast kínverskri
menningu og svo skemmir nátt-
úrulega ekki fyrir að hér er 25-30
stiga hiti og sól,“ segir hún og
hlær við.
Jóhanna Vala er búin að kynn-
ast fullt af skemmtilegum stelp-
um við undirbúninginn. Hún er í
herbergi með Ungfrú Finnlandi
en segist hafa kynnst stúlkunum
frá Suður-Afríku, Bandaríkjun-
um og Svíþjóð einna best. „Við
höfum náð ofsalega vel saman og
það er oft mikið stuð á okkur.“
Jóhanna Vala segir keppendur
fegurðarsamkeppninnar fá mikla
athygli á götum úti og að ágengni
almennings geti á köflum orðið
allt að því óþægileg. „Við höldum
okkur að mestu leyti á hótelinu
og það er ekki æskilegt að við
séum mikið á flakki í bænum. En
þegar við förum eitthvert út er
passað mjög vel upp á okkur. Þá
fylgja öryggisverðir okkur hvert
fótmál.“
Keppnin í dag hefst klukkan 20
að staðartíma, eða um hádegið á
íslenskum tíma.
vignir@frettabladid.is
Ekkert prinsessulíf í Miss World
GÓÐ REYNSLA Jóhanna Vala kveðst hafa
lært mikið á þeim tæpu fjórum vikum
sem hún hefur dvalið í Kína við undir-
búning Ungfrú heims.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Plötur Páls Óskars, Siggu Beinteins,
Ragga Bjarna og Einars Ágústs eru
allar komnar til landsins eftir að hafa
tafist í framleiðslu í Danmörku og
Austurríki eins og kom fram í Frétta-
blaðinu á dögunum.
„Það var mjög huggulegt að fá þau í
hús þannig að það er ekkert meira
föndur neitt,“ segir Páll Óskar sem
þurfti að framleiða fyrstu 1700 eintökin
af Allt fyrir ástina í höndunum. „Eftir
sitja um tvö þúsund eintök sem eru á
svamli sem eru handgerð persónulega
af mér,“ segir hann og hlær.
Platan hefur þegar selst í hátt í þrjú
þúsund eintökum. „Fróðir menn segja
að ef lætin verða svona fram á Þorláks-
messu stefnir platan í tólf til fjórtán
þúsund eintök. Ég átti ekki von á þessu í
vor þegar við vorum að vinna plötuna
en þegar lögin Allt fyrir ástina og
International gerðu allt „tjúllað“ þá fór
mig að gruna að eintakafjöldinn yrði
mikill.“
Sigga Beinteins fékk sín eintök af Til
eru fræ fyrir tæpum tveimur vikum og
er hæstánægð með viðtökur almenn-
ings. „Ég er alveg í skýjunum með
viðtökurnar sem ég er að fá, ég á ekki
orð,“ segir Sigga sem fór með plötuna á
toppinn í Hagkaupsbúðunum.
Síðustu eintökin af plötu Einars
Ágústs, Það er ekkert víst að það klikki,
komu út í byrjun síðustu viku. „Ég er
virkilega ánægður. Þetta er allt að
gerast,“ segir Einar Ágúst og Raggi
Bjarna er einnig sáttur: „Platan er
komin í búðir. Ég er mjög ánægður með
það,“ segir hann um plötu sína Gleðileg
jól með Ragga Bjarna. - fb
Plöturnar komnar til landsins
SIGGA BEINTEINS
Sigga Beinteins er
mjög ánægð með
viðtökurnar.
> BERAR BUMBUNA
Christina Aguilera fetar í fótspor
Demi Moore og Britney Spears og
fækkar fötum fyrir forsíðu tímarits-
ins Marie Claire, en hún er nú komin
langt á leið með fyrsta barn sitt. Demi
reið á vaðið 1991 þegar hún sat fyrir
hjá Vanity Fair, en Britney Spears
fylgdi á eftir árið 2006, fyrir tímaritið
Harper‘s Bazaar.
„Fólk á ekkert von á
þessari tónlist þegar
það sér okkur í
þessum múndering-
um. Það er einmitt
það skemmtilega við
þetta því fólk á það til
að dæma eftir útliti,“
segir Þorsteinn
Einarsson, forsprakki
hljómsveitarinnar
Steini, sem hefur
gefið út EP-plötuna
Behold. „Fólk býst við
djöflarokki þegar það
sér okkur en ég kalla
þetta „fiftís“-popp
eða „shakespearean“
popp sem við spilum.“
Að sögn Þorsteins,
eða Steina, er platan
byggð á bókinni
Dante´s Inferno.
„Hún fjallar um
hreinsunareldinn sem
tekur við eftir
sambandsslit. Lögin
eru sjö eins og hjá
Dante þegar hann fer
í gegnum sjö helvíti.“
Hann bætir því við að
hljómsveitin sé undir
sterkum áhrifum frá
bókmenntastefnunni
Sturm und Drang auk
hljómsveitanna Alice Cooper og Kiss.
Með Steina spila á plötunni Kristján Árnason og Eric Qvick. Ætlar
Eric að spila með Steina og bróður hans sem kallar sig Golden Boy á
komandi misserum. Nokkur lög með sveitinni hafa þegar verið spiluð í
útvarpi, þar á meðal Always Something sem hljómar í kvikmyndinni
Astrópía. - fb
Ekkert djöflarokk
STEINI Þorsteinn Einarsson er forsprakki hljómsveitarinn-
ar Steini. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Árituð ljósmynd frá Björk
Guðmundsdóttur var á meðal
þess sem hægt var að kaupa á
uppboði á vegum góðgerðasam-
takanna Rock for Kids sem hófst í
gær. Samtökin, sem starfa í
Chicago, veita fátækum börnum í
borginni ókeypis tónlistar-
kennslu.
Á meðal fleiri muna á uppboð-
inu var áritaður gítar frá Ryan
Adams og árituð plata frá
hljómsveitinni Arcade Fire.
Einnig voru boðnir upp munir frá
stjörnum á borð við Paul
McCartney, Bruce Springsteen,
Lou Reed, Jack Nicholson,
Scarlett Johansson og Beck.
Árituð mynd
á uppboði
BJÖRK Árituð mynd frá Björk var til sölu
á uppboði.
PÁLL ÓSKAR Nýjasta
plata Páls Óskars hefur
selst mjög vel.