Fréttablaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 120
84 1. desember 2007 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Brasilíumaðurinn Kaká,
Argentínumaðurinn Lionel Messi
og Portúgalinn Cristiano Ronaldo
urðu þrír efstir í kosningu lands-
liðs-þjálfara og fyrirliða á besta
knattspyrnumanni ársins en verð-
launin verða afhent 17. desember
næstkomandi.
Kaká fær um helgina afhentan
gullboltann sem besti knatt-
spyrnumaður Evrópu og getur
fylgt í fótsport landa sinna Ron-
aldo, Ronaldinho og Rivaldo sem
allir fengu bæði stóru verðlaunin
á sama árinu. Kaká skoraði 10
mörk fyrir AC Milan þegar liðið
vann Meistaradeildina, Messi spil-
aði stórt hlutverk hjá Bracelona
og hjálpaði Argentínu til þess að
komast í úrslitaleik Suður-
Ameríkubikarsins og Cristiano
Ronaldo var markahæsti leikmað-
ur Manchester United sem vann
enska titilinn í fyrsta sinn í fjögur
ár. Ronaldo gæti orðið sá fyrsti til
að vinna þessi verðlaun af leik-
mönnum sem spila í ensku úrvals-
deldinni.
Landar Kaká, Cristiane og
Marta, sem voru í aðalhlutverki
þegar brasilíska kvennalandsliðið
fór alla leið í úrlitaleikinn á HM í
ár eru tilnefndar í kvennaflokki
ásamt Birgit Prinz sem hefur
unnið þessi verðlaun þrisvar sinn-
um. - óój
Þrír karlar og þrjár konur eiga möguleika á að verða FIFA-leikmenn ársins en helmingurinn er frá Brasilíu:
Kaka, Messi og Ronaldo eru tilnefndir
HVER VERÐUR VALINN BESTUR? Kaká hjá AC Milan og Ronaldo hjá Man. Utd eru tald-
ir bera af en flestir telja að Kaká hreppi hnossið. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Sjö leikir fara fram í
ensku úrvalsdeildinni í dag en þar
ber helst að nefna að topplið Ars-
enal heimsækir spútniklið Aston
Villa og Chelsea mætir West Ham
í Lundúnarslag.
Arsenal er enn ósigrað í ensku
úrvalsdeildinni þegar liðið mætir
Aston Villa á Villa Park í dag og
ennfremur hefur Arsenal ekki
tapað gegn Aston Villa í sautján
síðustu viðurreignum liðanna.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er
því hvergi banginn fyrir leikinn,
þrátt fyrir að Villa-liðið sé á flugi.
„Ég sá Villa-liðið spila mjög vel
gegn Blackburn á miðvikudag og
Villa er búið að leika vel upp á síð-
kastið, en ég er samt sannfærður
um að við munum vinna. Villa er
með líkamlega sterkt lið, skemmti-
lega unga miðjumenn í þeim Gar-
eth Barry, Nigel Reo-Coker og
Stiliyan Petrov og framherjarnir
John Carew og Gabriel Abgonlahor
eru hættulegir,“ sagði Wenger á
blaðamannafundi í gær.
Arsenal verður enn án Cesc
Fabregas sem er meiddur, en
Mathieu Flamini verður líklega
með, en óvíst er með þá Gael
Clichy og Alexander Hleb sem eru
tæpir vegna meiðsla. William Gall-
as og Emmanuel Adebayor koma á
ný inn í liðið eftir að hafa verið
hvíldir í miðri viku. Aston Villa
verður án Reo-Coker sem tekur út
leikbann, en Agbonlahor og Petrov
ættu að vera leikfærir að nýju
eftir að hafa náð sér af smávægi-
legum meiðslum.
Chelsea tekur á móti West Ham
á Brúnni í hádegisleik dagsins, en
Avram Grant, stjóri Chelsea, er
búinn að vera á mikilli siglingu
með Chelsea undanfarið og liðið
taplaust í síðustu þrettán leikjum
sínum í öllum keppnum. Chelsea
er heldur ekki mjög ákjósanlegt
heim að sækja því liðið hefur ekki
tapað á heimavelli í síðustu 69
leikjum sínum. Alan Curbishley,
stjóri West Ham, sá því ástæðu til
þess að hæla Grant fyrir vel unnin
störf.
„Þetta verður erfiður leikur
fyrir okkur og ég get ekki annað
en tekið hatt minn ofan fyrir Grant
og hans árangri með Chelsea.
Hann hefur náð að fylla skarð
Mourinhos og það án þess að vera
að láta bera mikið á sér,“ sagði
Curbishley.
Chelsea verður án Michael
Essien sem tekur út leikbann, þá
eru Petr Cech, Michael Ballack,
Florent Malouda, Ricardo Carval-
ho og Paulo Ferreira allir frá
vegna meiðsla. Meiðslalisti West
Ham er enn lengri en nokkrir leik-
menn eru þó að skila sér aftur og
Dean Ashton og Scott Parker
verða líklega í byrjunarliði West
Ham í leiknum. omar@frettabladid.is
Wenger er hvergi banginn
Sjö leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og þar verða meðal annarra
hin sjóðandi heitu lið Arsenal og Chelsea í eldlínunni. Arsenal heimsækir Aston
Villa á Villa Park en Chelsea fær West Ham í heimsókn á Brúna.
EITRAÐUR Emmanuel Adebayor kemur aftur inn í byrjunarlið Arsenal eftir að hafa
verið hvíldur í leik liðsins í Meistaradeildinni í miðri viku. Adebayor er markhæsti
leikmaður Arsenal á leiktíðinni með sjö mörk í deildinni. NORDICPHOTOS/GETTY
LEIKIR DAGSINS:
Chelsea-West Ham Sýn 2 kl. 12:45
Portsmouth-Everton Sýn 2 kl. 15
Blackburn-Newcastle Sýn Extra kl. 15
Reading-M‘brough Sýn Extra 2 kl. 15
Wigan Man. City Sýn Extra 3 kl. 15
Sunderland-Derby kl. 15
Aston Villa-Arsenal Sýn 2 kl. 17:15
NFL Stórleikur NFL-deildarinnar í
þessari viku fór fram aðfaranótt
föstudags þegar tvö bestu lið
Þjóðardeildarinnar - Dallas
Cowboys og Green Bay Packers -
mættust á Texas Stadium.
Dallas vann, 34-27, í stór-
skemmtilegum leik þar sem helst
bar til tíðinda að hinn 38 ára
gamli leikstjórnandi Packers,
Brett Favre, meiddist á olnboga
og fór úr axlarlið.
Það er því ekki víst að hann
byrji næsta leik hjá Packers sem
yrði mjög söguleg stund enda
hefur hann byrjað 249 leiki í röð
hjá Packers en þess má geta að
aðeins 16 leikir eru í deildar-
keppninni á ári.
Þetta er einstakt met enda um
100 leikir í næsta mann. Favre er
sjálfur bjartsýnn á að spila en
rúm vika er í næsta leik Packers.
- hbg
Meiðsli hjá Packers:
Missir Favre
loksins af leik?
BRETT FAVRE Byrjað 249 leiki í röð fyrir
Packers. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
NBA Phil Jackson er búinn að
skrifa undir nýjan samning við
Los Angeles Lakers sem gildir út
leiktíðina 2010. Talið er að
Jackson fái 24 milljónir dollara á
samningstímanum.
Hinn 62 ára gamli Jackson
skrifaði undir fimm ára samning
við Lakers árið 1999 sem færði
honum 30 milljónir dollara og
félaginu þrjá meistaratitla.
Hann fór svo frá félaginu 2004,
tók sér frí í eitt ár en kom aftur
og skrifaði aftur undir 30 milljón
dollara samning en þá aðeins til
þriggja ára. Það var þá stærsti
samningur sem þjálfari hafði gert
í NBA-deildinni. - hbg
Phil Jackson:
Framlengir
við LA Lakers
PHIL JACKSON Er ekki á förum frá
Lakers. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
NFL Hin fallna stjarna Michael
Vick mætir fyrir dómara 10.
desember næstkomandi en þá
verður kveðinn upp dómur yfir
honum í hundamálinu svokallaða,
en Vick og fleiri voru kærðir
fyrir grimmilega meðferð á
hundum sem og ólögleg veðmál.
Tveir af félögum Vicks fengu í
gær 18 og 21 mánaðar fangelsis-
dóm fyrir sinn þátt í málinu en
þeir samþykktu að vitna gegn
Vick og í ljósi þess var gert ráð
fyrir styttri dómum en þeir fengu
að lokum.
Hægt var að dæma þá mest í
fimm ára fangelsi, eins og Vick,
og ljóst að þessir dómar verða
ekki til þess að auka trú Vicks á
því að hann fái stuttan dóm en
hann er þegar byrjaður að
afplána sinn tíma í von um
vægari dóm. - hbg
Dæmt í hundamálinu fræga:
Félagar Vicks
fá þunga dóma
MICHAEL VICK Mætir örlögum sínum 10.
desember. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
...alla daga
Allt sem þú þarft...
Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins og það eina sem kemur
út alla daga vikunnar. Lesendur vita að hverju þeir ganga þegar þeir
opna Fréttablaðið.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A