Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 44
36 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Fjölskylda Jamie Lynn
Spears hefur áhyggjur af
því að Britney stóra systir
hafi slæm áhrif á hana.
Jamie Lynn tilkynnti um
þungun sína í síðustu viku.
Britney Spears frétti af þungun
litlu systur sinnar á sama tíma og
meginhluti hins vestræna heims.
Hún vill nú ólm vilja styðja við
bakið á Jamie Lynn, sem er einungis
sextán ára gömul. Fjölskylda
þeirra hefur þó áhyggjur af því að
Britney geti haft slæm áhrif á
Jamie.
„Britney var ekki fyrsta mann-
eskjan til að frétta af þungum
Jamie Lynn, en hún er að reyna að
sýna systur sinni að hún styðji
hana. Það er frábært, en á sama
tíma erum við áhyggjufull,“ segir
heimildarmaður innan fjölskyld-
unnar.
„Því lengur sem Jamie Lynn er
nálægt Britney og tengist henni
vegna þessa, þeim mun erfiðara
verður fyrir hana að fara aftur
heim til Louisiana, eins og hún seg-
ist ætla að gera. Það er ekki erfitt
að ímynda sér í hvaða vandræði
hún getur ratað ef þær Britney
verða of nánar núna,“ bætir hann
við. Eins og flestir vita hefur síð-
asta árið hjá Britney verið vægast
sagt stormasamt, en hún missti
forræðið yfir barnungum sonum
sínum tveimur í haust.
Á sama tíma berast þær fregnir
að Nickelodeon, sem framleiðir
sjónvarpsþættina Zoey 101, sem
Jamie Lynn leikur í, sé að velta því
fyrir sér að framleiða þátt þar sem
Zoey 101 mun gera kynlífi og ást
skil. Markhópur þáttarins er börn á
aldursbilinu níu til fjórtán ára. For-
svarsmenn Nickolodeon hafa leitað
til Lindu Ellerbee, sem hefur áður
verið kynnir í þáttum fyrir börn
þar sem samkynhneigðir foreldrar,
alnæmi og skotárásin í Columbine-
skólanum voru meðal umfjöllunar-
efna. „Þetta er stórkostlegt tæki-
færi fyrir foreldra til að tala við
börnin sín um þetta, og það sem
mikilvægara er, að hlusta á hvað
börnin segja,“ segir Ellerbee.
Óttast að Britney hafi
slæm áhrif á Jamie Lynn
Jenna Jameson er að hverfa. Eða
það er að minnsta kosti mat breska
blaðsins The Sun. Jenna mætti í
jólateiti LAX-næturklúbbsins í
Vegas og þóttu hinar kvenlegu línur
hennar víðsfjarri. Í staðinn fyrir
hina íturvöxnu leikkonu var Jenna
nánast bara skinn og bein. Leikkon-
an lét nýverið minnka á sér brjóstin
og þótt það sé varla slæmt hafa
aðrir líkamspartar einnig mátt þola
niðurskurð. Jenna kemst því í hóp
með leikkonum á borð við Töru Reid
og Keiru Knightley úr hinum enda
Hollywood sem báðar hafa sætt
mikilli gagnrýni fyrir of lítið hold.
Jenna varð heimsfræg undir lok
síðustu aldar fyrir bláar kvikmynd-
ir sínar og græddi milljónir á millj-
ónir ofan á því að birta nekt sína á
síðum karlablaða. En þótt Jameson
hafi lagt beðmálskúnstir sínar fyrir
framan tökuvélarnar á hilluna hefur
stjarna hennar sjaldan eða aldrei
skinið jafn skært. Jameson er nú
orðin vellauðug athafnakona sem
rekur sitt eigið framleiðslufyrir-
tæki, ClubJenna, en það framleiðir
erótísk leiktæki og myndir fyrir
fullorðna. Og þá hafa bækur hennar
um heilræði fyrir kynlífið selst eins
og heitar lummur.
Jenna að hverfa
FYRIR OG EFTIR Eins og sjá má hefur
Jenna látið verulega á sjá og grennst
meira en góðu hófu gegnir.
Leonardo DiCaprio segist oft og iðulega
hafa verið laminn af melludólgum þegar
hann var yngri. DiCaprio átti heima
ásamt móður sinni í einu versta hverfi
Hollywood í æsku, þar sem vændi og
eitur lyfjasala var daglegt brauð. Leo
sagði við breska blaðið The Mirror að
hann hefði á sínum yngri árum oft séð
fólk stunda kynlíf í dimmum skúma-
skotum og fólk sprauta sig nánast á
götum úti. „Þegar ég var fimm ára
króaði krakkfíkill mig af og reyndi
að lemja mig,“ segir DiCaprio og
melludólgum var víst einnig ákaf-
lega í nöp við drenginn ef hann
var of mikið að hnýsast í þeirra
mál.
Og DiCaprio segist búa að þess-
ari reynslu alla ævi. „Eftir að
hafa orðið vitni að allri þessari
óhamingju sem fylgir eiturlyfjum og
vændi þá hefur mér aldrei dottið í hug
að prófa slíka hluti,“ útskýrir leikarinn
en hann var eftirminnilegur í hlutverki
hins efnilega Jims Caroll sem varð
heróíni að bráð í kvikmyndinni The
Basketball Diaries. „Þetta hefur líka
kennt mér að þessi efnislegu hlutir
skipta mig litlu máli. Ég flýg ekki um á
einkaþotu (nema þegar hann kom til
Íslands), ég kaupi mér ekki fáránlega
hluti og ég er ekki með lífverði,“ segir
DiCaprio.
DiCaprio oft laminn í æsku
ERFIÐ ÆSKA DiCaprio ólst upp í hverfi
þar sem ógæfufólk var í meirihluta og
eiturlyfjasalar gengu lausir.
>VISSIR ÞÚ?
Jackie Chan tókst að leyna syni
sínum fyrir almenningi í ellefu ár
en sonurinn, Jaycee, er fæddur
árið 1982. Jaycee stefnir einnig á
frama í kvikmyndum og er Jackie
mikið í mun að sonurinn leyni fað-
erninu og skipti jafnvel um nafn til
að fá verkefni út á eigið ágæti en
ekki fjölskyldunafnið.
Nr. 53 - 2007 Verð 659 kr. 27. des. – 2. jan.
HVENÆR KEMUR PABBI AFTUR?9 7
7
1
0
2
5
9
5
6
0
0
9
Selma Stefánsdóttir og dætur syrgja Jónsa:
HRINGDI AFTUR Í BUSH!
Laddi
lofar góðu Skaupi:
KAMPAVÍNSBOMBA!
HEITUSTU PÖR
ÁRSINS!
Ástin skíðlogaði árið 2007:
ÞokkadísinOrnella:
Hrekkjalómurinn Vífill Atlason:
Gerir árið
skemmtilegra!
Auður Laxness hætt komin:
LOKAÐIST ÚTI!
Áramóta
-
bomba!
GERIR ÁRIÐ
SKEMMTILE RA!
ÁHYGGJUFULL FJÖLSKYLDA
Fjölskylda Spears-systranna
hefur áhyggjur af því að
Britney hafi slæm áhrif á hina
óléttu Jamie Lynn. Hér sést sú
yngri með móður sinni, Lynne
Spears. NORDICPHOTOS/GETTY
NÁNAR SYSTUR
Britney vill nú ólm
styðja við bakið á litlu
systur, en mikið hefur
gengið á hjá sjálfri
henni þetta árið.