Fréttablaðið - 27.12.2007, Page 45
FIMMTUDAGUR 27. desember 2007 37
Breski tónlistarmaðurinn Tim
Ten Yen hélt tónleika á skemmti-
staðnum Organ á dögunum. Hann
þykir heldur óvenjulegur enda
kom hann einungis fram með
hljómborð og reykvél meðferðis.
Tim vakti sérstaka lukku á tón-
leikunum þegar hann skildi
hljómborðið sitt eftir á „sjálf-
spilun“, steig fram á dansgólfið
og sýndi skemmtilega takta.
Hljómsveitirnar Hellvar og Sexy
Jazz sáu um upphitun á tónleik-
unum og stóðu þær einnig vel
fyrir sínu.
Dansinn dunaði hjá Tim á Organ
TIM TEN YEN Breski tónlistarmaðurinn sat einn við hljómborðið og söng öll sín bestu
lög. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
DANSINN DUNAR Tim Ten Yen vakti
mikla lukku þegar hann tók dansspor
fyrir áhorfendur.
VINKONUR Þær Inga, Sveinborg og Elsa
kíktu á tónleikana og skemmtu sér vel.
SAMAN Á ORGAN Saxófónleikarinn
Ragnar og Kolfinna létu sig ekki vanta á
tónleikana.
Bee Movie TM & © 2007 DreamWorks Animation L.L.C. All Rights Reserved
BEEMOVIE.COM
LUK
KULEIKUR
BY
RS
OG
HONEY NUT CHEERIOS
Milljón ástæður til að taka þátt!
Vinningur að verðmæti
300.000,-
Ferðavinningur fyrir tvo
50.000 króna ferðaávísun
Gjafakörfur frá Nathan &
Olsen
Árskort í bíó
Miðar í bíó
DVD myndir
VINNINGAR Í LUKKULEIKNUM
Nældu þér í Honey Nut Cheerios í næstu búð og
taktu þátt í léttum leik. Fjöldi glæsilegra vinninga!
Heildarverðmæti
vinninga er
1 milljón króna!
Barþjónn á Ritz-hótelinu, þar sem
Dodi og Díana prinsessa snæddu
áður en þau létu lífið í árekstri í
París, segir að bílstjóri þeirra,
Henri Paul, hafi
verið fullur
þegar hann
settist undir
stýri. Hann
bætti því hins
vegar við að
þjónustufólkinu
hefði verið skip-
að að segja að
Paul hefði ein-
göngu drukkið
appelsínusafa
„til að verja
konungsfjöl-
skyld-
una“.
Því
hefur
lengi
verið
haldið
fram að
Paul hafi verið vel við skál þegar
hann keyrði Diönu og Dodi en það
hefur aldrei fengist staðfest. Bar-
þjónninn Alain Willaumez er hins
vegar viss í sinni sök og segir Paul
hafa verið glaseygan og reikulan í
spori.
Bílstjórinn
var fullur
UNDIR STJÓRN ÖLVAÐS
MANNS Díana og Dodi
settust upp í bíl hjá ölvuð-
um manni.
Yfirstjórn Vatíkansins í Róm er
ákaflega glöð þessa dagana. Ekki
þó af því að jólin eru komin heldur
vegna þess að aðsóknin á ævintýra-
myndina The Golden Compass
hefur verið langt undir væntingum
á heimsvísu. Í leiðara dagblaðsins
l‘Osservatore Romano sem Vatík-
anið gefur út stendur að þetta séu
gleðileg tíðindi. The Golden
Compass verður tekin til sýningar
hér á Íslandi annan í jólum en hún
skartar þeim Daniel Craig og Nicole
Kidman í aðalhlutverkum. Myndin
er byggð á bók Philips Pullman,
einhvers þekktasta guðleysingja
Bretlands, og hefur ekki þótt mæta
þeim kröfum sem til hennar voru
gerðar.
Og þótt framleiðendur og leik-
stjóri myndarinnar hafi í lengstu
lög reynt að sneiða framhjá guð-
leysinu óttuðust æðstu menn í kaþ-
ólsku kirkjunni að The Golden
Compass myndi vekja áhuga barna
á bókum Pullmans. „Og bækurnar
eru gerilsneyddar allri von,“ stend-
ur í leiðara dagblaðsins. Kaþólska
kirkjan í Bandaríkjunum hvatti
fylgismenn sína til að sniðganga
myndina og aðrar kirkjur þar tóku í
sama streng.
Kaþólikkar
kætast
Í ÓNÁÐ Nýjasta kvikmynd Nicole Kid-
man er ekkert sérstaklega vel séð hjá
kaþólsku kirkjunni.