Fréttablaðið - 27.12.2007, Síða 49
FIMMTUDAGUR 27. desember 2007 41
Enska úrvalsdeildin
Chelsea-Aston Villa 4-4
0-1 Shaun Maloney (14.), 0-2 Shaun Maloney
(44.), 1-2 Andreiy Shevchenko, víti (45.), 2-2
Andreiy Shevchenko (50.), 3-2 Alex (66.), 3-3
Martin Laursen (72.), 4-3 Michael Ballack (88.),
4-4 Gareth Barry, víti (90.).
Tottenham-Fulham 5-1
1-0 Robbie Keane (27.), 2-0 Tom Huddlestone
(45.), 2-1 Clint Dempsey (60.), 3-1 Keane (62.),
4-1 Huddlestone )(71.), 5-1 Jermain Defoe (90.).
West Ham-Reading 1-1
1-0 Nolberto Solano (42.), 1-1 Dave Kitson (60.).
Birmingham-Middlesbrough 3-0
1-0 sjálfsmark (22.), 2-0 Mikael Forssell (45.),
3-0 Gary McSheffrey (90.).
Derby-Liverpool 1-2
0-1 Fernando Torres (12.), 1-1 James McEveley
(67.). 1-2 Steven Gerrard (90.).
Everton-Bolton 2-0
1-0 Phil Neville (51.), 2-0 Tim Cahill (70.).
Sunderland-Man. United 0-4
0-1 Wayne Rooney (20.), 0-2 Louis Saha (30.),
0-3 Cristiano Ronaldo (45+3.), 0-4 Louis Saha
(86.).
Wigan-Newcastle 1-0
1-0 Ryan Taylor (65.).
Portsmouth-Arsenal 0-0
STAÐAN Í DEILDINNI
Man. United 19 14 3 2 36-9 45
Arsenal 19 13 5 1 36-15 44
Chelsea 19 11 5 3 29-14 38
Liverpool 18 10 6 2 33-12 36
Man. City 18 10 4 4 25-20 34
Everton 19 10 3 6 34-18 33
Portsmouth 19 8 7 4 29-19 31
Aston Villa 19 8 6 5 33-25 30
West Ham 18 7 5 6 23-16 26
Blackburn 18 7 5 6 23-25 26
Newcastle 19 7 5 7 26-29 26
Reading 19 6 4 9 25-36 22
Tottenham 19 5 6 8 35-32 21
Birmingham 19 5 3 11 21-30 18
Bolton 19 4 5 10 21-29 17
Middlesbrough 19 4 5 10 17-33 17
Wigan 19 4 4 11 19-34 16
Fulham 19 2 8 9 20-34 14
Sunderland 19 3 5 11 17-38 14
Derby 19 1 4 14 9-43 7
ÚRSLITIN Í GÆR
KÖRFUBOLTI Scott Skiles fékk ekki
góða jólagjöf frá liði sínu Chicago
Bulls, sem rak hann á aðfanga-
dagskvöld.
Chicago hefur verið í tómu
tjóni eftis að væntingarnar voru
miklar til liðsins í vetur en eftir
þrjú töp í síðustu fjórum leikjum
þraut þolinmæði forráðamanna
félagsins.
Skiles var búinn að þjálfa
Chicago síðan í nóvember 2003 og
undir hans stjórn vann liðið 165
leiki og tapaði 172. Aðstoðarmenn
Skiles munu líklega klára
tímabilið hjá liðinu. - óój
Chicago Bulls rak Scott Skiles:
Slæm jólagjöf
KÖRFUBOLTI Portland Trailblazers
er svo sannarlega spútniklið
NBA-deildarinnar í vetur en
yngsta lið deildarinnar er nú búið
að vinna ellefu leiki í röð.
Portland, sem tapaði 50 leikjum
á síðasta tímabili, missti fyrsta
valrétt sinn, Greg Oden, í meiðsli
og tapaði 12 af fyrstu 17 leikjum
vetrarins, vann nú síðast Seattle
89-79. Þetta er lengsta sigurganga
félagsins síðan tímabilið 2001-02.
„Það hafa allir smollið saman.
Allir eru að tala saman í vörninni
og það kvartar enginn. Þetta er
einstakt lið,“ sagði Channing
Frye. Brandon Roy, besti nýliðinn
í fyrra, var atkvæðamestur með
17 stig og 7 stoðsendingar en
umræddur Frye var með 12 stig
og 8 fráköst á 23 mínútum en 9
leikmenn liðsins spiluðu á milli 20
og 30 mínútur í leiknum. - óój
Yngsta lið NBA-deildarinnar:
Portland með
ellefu í röð
NÁ VEL SAMAN Brandon Roy og Steve
Blake hjá Portland. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Portsmouth og Arsenal
skildu jöfn á Fratton Park í ensku
úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Ars-
enal var meira með boltann en
náði ekki að brjóta vörn Ports-
mouth á bak aftur.
Fyrri hálfleikurinn var fremur
tíðindalítill á Fratton Park. Arsen-
al var meira með boltann heilt yfir
í fyrri hálfleik án þess þó að koma
sér í nægilega góð sóknarfæri og
staðan var því enn 0-0 þegar hálf-
leiksflautan gall.
Seinni hálfleikurinn byrjaði
fjörlega með hörkusókn hjá Ars-
enal sem gaf fögur fyrirheit um
það sem koma skyldi. Það var hins
vegar allt með kyrrum kjörum
þangað til um stundarfjórðungur
lifði leiks að Benjamin Mwaru-
wari, framherji Portsmouth, fékk
gott færi. Mwaruwari komst einn
inn fyrir vörn Arsenal og náði að
leika á Manuel Almunia í markinu,
en missti boltann of langt frá sér.
Varamaðurinn Nicklas Bendtner,
sem frískaði upp á leik Arsenal,
lagði upp frábært færi sem Tékk-
inn Tomas Rosicky misnotaði í
uppbótartíma og þar með rann síð-
asta tækifærið í sandinn og 0-0
jafntefli því niðurstaðan. - óþ
Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth gerðu markalaust jafntefli við Arsenal á Fratton Park í gær:
Fyrstir til að halda hreinu gegn Arsenal
BARÁTTA Hermann Hreiðarsson gefur
hér ekkert eftir í baráttunni við Alexander
Hleb í markalausum leik á Fratton Park í
gærkvöldi. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES