Fréttablaðið - 27.12.2007, Síða 50
42 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Manchester United
mætti í heimsókn til Roy Keane
og lærisveina hans í Sunderland
sem voru ekki mikil fyrirstaða á
Leikvangi ljósanna í gærdag.
United vann leikinn örugglega 0-
4 og komst þar með á topp deildar-
innar, í það minnsta tímabundið.
Wayne Rooney skoraði fyrsta
markið fyrir Manchester United
á tuttugustu mínútu með laglegu
skoti frá vítateigslínunni. Hinn
meiðslumhrjáði Louis Saha fékk
svo uppreisn æru þegar hann
bætti öðru marki við þegar hálf-
tími var liðinn af leiknum eftir
góðan undirbúning Rooneys.
Þriðja markið var einkar glæsi-
legt og ekki á allra færi, en Cristi-
ano Ronaldo skoraði þá gull af
marki beint úr aukaspyrnu upp í
markhornið vinstra megin.
Í seinni hálfleik róaðist leikur-
inn talsvert og þó
svo að Sunderland
hafi reynt að
klóra í bakkann
var United
frekar líklegra
til að bæta við
marki en Sund-
erland til að
minnka muninn.
Sú varð líka raun-
in á lokamínút-
unum þegar
brotið var á
Nani innan
vítateigs
Sunderland
og víta-
spyrna
dæmd sem
Saha skor-
aði úr og
þar við
sat. Sigur United var aldrei í
hættu í leiknum og stuðnings-
menn liðsins gátu einnig glaðst
yfir endurkomu Ji-Sung
Park sem kom inn á fyrir
Ronaldo í seinni hálfleik
eftir að hafa verið frá
vegna meiðsla síðan í
mars.
Carlos Queiroz, aðstoðar-
stjóri United, var kátur
með sína menn í leikslok.
„Þetta var frábær frammi-
staða Manchester United.
Liðið lék með sterkum
vilja, góðri einbeitingu
og mikilli hreyfingu leik-
manna án bolta. Fyrsta
markið var gríðarlega
mikilvægt og það gerði
okkur vissulega lífið léttara
að komast yfir svona snemma í
leiknum.“ - óþ
Englandsmeistarar Manchester United gerðu góða ferð á leikvang Ljósanna:
Sigur United aldrei í hættu
MARKA-
HRÓKAR
Saha og
Rooney.
NORDICPHOTOS/
GETTY
FÓTBOLTI Hvort sem það voru
mörkin átta, vítin tvö, rauðu
spjöldin þrjú, markmannsmistök
Petr Cech eða glæsimark Michael
Ballack beint úr aukspyrnu, þá
fengu áhorfendurnir á Stamford
Bridge eða heima í stofu stóran og
úttroðinn jólapakka frá leikmönn-
um Chelsea og Aston Villa í dram-
atísku 4-4 jafntefli liðanna í gær.
Chelsea lenti 0-2 undir en And-
riy Shevchenko jafnaði leikinn
með tveimur mörkum sitt hvoru
megin við hálfleik og Chelsea-liðið
komst síðan tvisvar sinnum yfir í
seinni hálfleik áður en Gareth
Barry tryggði Aston Villa stig með
marki úr vítaspyrnu í uppbótar-
tíma.
Áður en yfir lauk höfðu Chel-
sea-mennirnir Ricardo Carval-
ho og Ashley Cole fengið að
líta rauða spjaldið og Gareth
Barry jafnaði leikinn úr víti
sem dæmt var á Cole fyrir
að verja með höndum á
marklínu.
Martin O’Neill, stjóri
Aston Villa, var ekki
sáttur við vítaspyrnu-
dóminn í lok fyrri
hálfleiks.
„Rauða spjaldið
hans Zat Knight var
lykildómur í leikn-
um. Ég er búinn að
sjá þetta nokkrum
sinnum aftur og
þetta var ekki víti.
Það var engin snert-
ing. Við vorum að
spila frábærlega og
áttum skilið að vera
komnir í 2-0. Allt í
einu er staðan orðin
2-1 og við manni
færri allan seinni
hálfleikinn,“ sagði
O’Neill, sem var
ánægður með spila-
mennskuna hjá sínum
mönnum. „Við vorum frábærir og
áttum skilið ekkert minna en stig
enda gerðum við nóg til þess að
vinna þrjá leiki. Við gáfumst líka
aldrei upp og risum tvisvar upp
frá dauðum,“ bætti O´Neill við.
Avram Grant, stjóri Chelsea,
hafði áhyggjur af leikmannhópn-
um sínum því Frank Lampard fór
út af meiddur í fyrri hálfleik,
Ashley Cole og Ricardo Carvalho
eru á leiðinni í þriggja leikja bann
í kjölfar rauðu spjaldanna og fyrir
eru þeir Didier Drogba og John
Terry á meiðslalistanum.
„Við spiluðum ekki vel í
fyrri hálfleik en við
áttum seinni hálf-
leikinn enda var
þetta mun auð-
veldara gegn tíu
mönnum. Þetta var
skemmtilegur leikur
fyrir áhorfendur en
fyrir okkur voru
þetta tvö töpuð stig,“ sagði Grant
eftir leikinn.
Rautt á Brynjar Björn
Brynjar Björn Gunnarsson hjá
Reading fékk beint rautt spjald
fyrir tveggja fóta tæklingu eftir
aðeins 29 mínútna leik og Nolberto
Solano kom West Ham yfir rétt
fyrir hálfleik en samt tókst Ívari
Ingimarssyni og
hinum níu leik-
mönnum
Reading að
landa stigi á
Upton Park.
Dave Kit-
son
skoraði jöfnunar-
markið eftir hornspyrnu
þegar klukktími var lið-
inn og vörn Reading hélt
út með Ívar í fararbroddi.
„Við byrjuðum vel en stólnum
var kippt undan okkur þegar
Brynjar var rekinn út af. Ég vil
eins og allir aðrir losna við tveggja
fóta tæklingar úr leiknum. Ég veit
að Brynjar var ekki að reyna að
meiða neinn en þetta er bara rautt
spjald samkvæmt bókinni,“ sagði
Steve Coppell, stjóri Reading, sem
sagðist æfa liðið sitt í að spila
manni færri og það skilaði stigum
í gær.
Alan Curbishley, stjóri West
Ham, var pirraður í leikslok. „Við
erum rosalega vonsviknir. Við töp-
uðum tveimur stigum og þó að
þetta hafi ekki verið frábær
frammistaða fengum við færin til
þess að klára leikinn,“ sagði
Curbishley.
Gerrard bjargaði málunum
Steven Gerrard tryggði Liverpool
nauman sigur á botnliði Derby
þegar hann fylgdi á eftir skoti
Fernando Torres
sem hafði áður
komið Liverpool
yfir í upphafi
leiks með flottu
marki. Sigur-
mark
Gerrards kom á síðustu stundu
þegar allt stefndi í afar óvænt
jafntefli og enn eitt áfallið fyrir
meistaravonir Liverpool-liðsins.
„Við vorum miklu betri í fyrri
hálfleik en tókst ekki að klára leik-
inn. Þetta varð því mjög erfitt en
Gerrard er einmitt leikmaður sem
getur bjargað málunum fyrir
okkur,“ sagði Rafael Benitez,
stjóri Liverpool.
„Við áttum þetta ekki skilið eftir
að hafa barist á fullu allan leikinn.
Við vorum bara hræddir í fyrri
hálfleik en í seinni hálfleik vorum
við grimmir og sýndum það sem
stuðningsmennirnir okkar vilja
sjá,“ sagði Paul Jewell, stjóri
Derby.
Juande Ramos, stjóri Totten-
ham, heimtaði að nokkrir leik-
manna liðsins léttust og Tom
Huddlestone, sem skoraði tvö í 5-1
sigri á Fulham í gær, var einn af
þeim.
„Við erum ánægðir með að leik-
menn hafa náð að létta sig. Við
höfðum áhyggjur af þyngd Toms
en hann hefur lagt mikið á sig og
er að uppskera samkvæmt því,“
sagði Ramos en Huddlestone skor-
aði tvö mörk og lagði upp eitt.
Ramos leyfði samt
sínum mönnum
að fá kalk-
ún á jóla-
dag.
„Kalkúnn er
hollur og eitt af því sem
ég hef mælt með fyrir mína
menn,“ sagði Ramos en Tottenham
hefur unnið þrjá af síðustu fjórum
leikjum sínum.
ooj@frettabladid.is
LIVERPOOL-
HJARTAÐ
Steven Gerr-
ard fagnar
sigurmarki
síknu.
NORDICPHOTOS/GETTY
LÉTTIR Tom Huddlestone og Robbie
Keane skoruðu báðir tvö mörk.
NORDICPHOTOS/GETTY
RIFUST Það gekk á ýmsu hjá Rafael Ben-
itez og Paul Jewell, sem eru hér ósáttir
með hvorn annan. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikurinn sem bauð upp á allt
Það voru átta mörk, þrjú rauð spjöld og tvö víti í uppbótartíma í 4-4 jafntefli Chelsea og Aston Villa á
Stamford Bridge í gær. Brynjar Björn Gunnarsson var rekinn út af á 29. mínútu en Reading náði samt í stig.
SVEKKTUR Brynjar
Björn Gunnarsson
gengur af velli eftir að
hafa fengið að líta rauða
spjaldið. NORDICPHOTOS/GETTY
DUGÐI EKKI Michael Ballack hélt að hann hefði tryggt Chelsea öll
stigin þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu rétt fyrir leikslok.
NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI HK Malmö, lið
Valdimars Þórssonar og Guðlaugs
Arnarssonar, tapaði 36-29 gegn IF
Guif í sænska handboltanum í
gær og liðið er því aðeins með níu
stig eftir átján leiki í þrettánda og
næst neðsta sæti þegar deildin
fer í frí fram yfir Evrópukeppn-
ina í Noregi.
Valdimar átti góðan leik með
HK Malmö og skoraði sjö mörk
úr ellefu skotum sínum og
Guðlaugur skoraði eitt mark úr
tveimur skotum í leiknum. - óþ
Sænski handboltinn:
Valdimar með
sjö í tapleik
MARKAHÆSTUR Í GÆR Valdimar Þórs-
son hjá Malmö. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Gummersbach tapaði
33-38 fyrir Rhein-Neckar Löwen á
útivelli í þýska boltanum í gær.
Guðjón Valur Sigurðsson
skoraði 5 mörk úr 8 skotum gegn
sínum verðandi félögum og
Róbert Gunnarsson var með 2
mörk úr sínum 3 skotum. Sverre
Andreas Jakobsson skoraði ekki.
Tapið þýðir að Gummersbach
er áfram í 6. sæti í þýsku
deildinni en með sigri hefðu
lærisveinar Alfreðs Gíslasonar
hinsvegar komist upp fyrir
Rhein-Neckar Löwen í 5. sætið.
- óój
Gummersbach tapaði í gær:
Fimmta sætið
úr myndinni?
FIMM MÖRK Guðjón Valur Sigurðsson
leikmaður Gummersbach.