Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 11.19 13.31 15.44 Akureyri 11.32 13.16 15.01 SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er miðvikudagurinn 2. janúar, 2. dagur ársins. Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322 OPIÐ VIRKA DAGA 10 – 18 LAUGARD. 11 – 16 STÓRÚTSALA Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Allir þurfa einhversstaðar að eiga heima. Einkar ánægjuleg og spennandi var frásögnin sem ég las á dögunum af því hvernig frumefnin eignuðust samastað sinn í lotukerfinu, enda stílgáfa höfundarins með eindæmum. Fyrirfram hefði ég ekki giskað á að hægt væri að prjóna svo skemmtilegan texta úr jafn jarð- bundnum efnivið. Jólabókin í ár var því óvæntur happafengur sem lúmskur áhugi á vísindum og gjaf- mild fjölskyldan fleytti til mín. Fyrir þá sem fá aldrei nóg af skemmtilegu lesefni er þar stiklað á stóru um næstum allt. ÞESSI heillandi rúmfélagi minn- ist með öllu hinu á þrjú lögmál Newtons um hreyfingu. Þau bera sjaldgæf einkenni snilligáfu og eru nógu skiljanleg til að furðu- legt virðist að enginn hafi upp- götvað þau fyrr... svona eftir á að hyggja. Ég minnist þess reyndar ekki að hafa fundist þetta allt saman svona undursamlegt í eðlis- fræðitímunum í gamla daga, en trúlega var matreiðsla fræðsl- unnar þá ekki jafn innblásin. Í lög- málunum segir frá því að sérhver kraftur eigi sér gagnstæða og jafn stóra gagnverkun. Þetta gæti verið hægt að heimfæra upp á ýmislegt fleira en beinharða eðlis- fræði. Í veröld sem forgangsraðar innri líðan æ framar er þetta ágæta lögmál lifandi sprottið ein- mitt í daglegri togstreitu. Hinum ótal ólíku kröfum þar sem hver og ein virðist einmitt eiga sér gagn- stæða kröfu. SVO það er semsagt náttúrulög- mál að okkur finnst við verða að eiga stórkostlegan starfsferil og frábært félagslíf um leið og við umvefjum heimilið af ástúð. Veita börnunum endalausan tíma, kær- leiksríka andlega örvun og öryggi en hafa samt alltaf tvo tíma lausa fyrir líkamsrækt. Vera frábærir unaðskokkar en jafnframt slank og fit. Ástríðufullir elskhugar en samt ævinlega tilfinningalega sjálfstæð. Eigum semsagt að rækta allt og vanrækja ekkert. Á nýju ári er hefð fyrir því að setja markmið og vinna heit. Í fyrra og hitteðfyrra gerði ég það ábyggilega þótt bæði loforðin og efndirnar séu gleymd og grafin. En nú þegar ég veit að allt sem reynt er að toga eitthvað áleiðis mun af náttúrunnar hendi spyrna á móti finnst mér best að sleppa öllum heitstrenginum. Þetta er fyrirfram tapað spil og það er allt saman Isaac Newton að kenna. Lögmál um togstreitu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.