Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 10
10 2. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
Kannski höfum við ekki
verið nógu dugleg að
auglýsa og halda lambakjötinu
fram.“
JÓHANNES SIGFÚSSON
FORMAÐUR LANDSSAMTAKA
SAUÐFJÁRBÆNDA
www.utflutningsrad.is www.utn.stjr.is
Viðskiptafulltrúar sendiráða Íslands
verða með viðtalstíma í Reykjavík
dagana 7.-9. janúar 2008
Fulltrúarnir verða til viðtals fyrir þau fyrir tæki sem leita markaðsráðgjafar
á umdæmissvæðum sendiráðanna og óska aðstoðar þeirra í viðskiptamálum
erlendis.
Nánari upplýsingar um sendiráðin og umdæmi þeirra eru á vef Útflutningsráðs,
www.utflutningsrad.is.
Pantaðu viðtalstíma í síma 511 4000 eða hjá utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Fundarstaður er hjá Útflutningsráði, Borgartúni 35.
Leitar hugurinn út í heim?
París Peking
Moskva
New York
Nýja Delhi
London
Tókíó
Berlín
Kaupmannahöfn
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
72
56
0
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
72
56
0
GÖTULISTAAPI Lítill api sýnir listir sínar
við verslanamiðstöð í Djakarta, höfuð-
borg Indónesíu, þar sem níu milljónir
manna búa. Tæplega helmingur
almennings í Indónesíu lifir á minna
en 120 krónum á dag. NORDICPHOTOS/AFP
LANDBÚNAÐUR „Það er meiri sam-
keppni en áður og meira úrval,“
segir Jóhannes Sigfússon, bóndi á
Gunnarsstöðum í Þistilfirði og
formaður Landssamtaka sauð-
fjárbænda.
Minna seldist af kindakjöti í
síðastliðnum
nóv embermán-
uði heldur en í
sama mánuði
síðustu ár. Nam
salan rúmum
500 tonnum og
tæpum 600 með
útfluttu kjöti. Í
nóvember á síð-
asta ári seldust
rúmlega 580
tonn á innan-
landsmarkaði
og rúm 200 tonn voru flutt út.
Salan innanlands á nýliðnu ári
er tæpu einu og hálfu prósenti
minni en á fyrstu ellefu mán uðum
síðasta árs. Á sama tíma hefur
orðið rúmlega níu prósenta
samdráttur í útflutningi.
Kindakjötssalan hefur risið og
hnigið það sem af er 21. öldinni.
Salan jókst jafnt og þétt frá 2001
til 2004 en hefur farið minnkandi
frá 2005.
Jóhannes Sigfússon getur ekki
skýrt samdrátt í sölu kindakjöts
með öðru en aukinni samkeppni.
Horfir hann þar helst til aukinnar
kjúklinganeyslu sem komi í stað-
inn fyrir lambakjötsát.
„Kannski höfum við ekki verið
nógu dugleg að auglýsa og halda
lambakjötinu fram,“ segir hann
og kveður þann tíma augljóslega
liðinn að lambakjötið seljist af
sjálfu sér. Eftirleiðis ráðist salan
af markaðssetningu og verð-
lagningu. Hann bendir þó á að
markaðshlutdeild lambakjöts hafi
verið mjög góð á Íslandi, mun
betri en í öðrum löndum.
Jóhannes bindur áfram vonir
við útflutning kindakjöts. Víða sé
nokkur eftirspurn, til dæmis í
Bandaríkjunum, Noregi og Dan-
mörku. „Norðmenn vilja kaupa
verulegt magn og borga mun
hærra verð en áður,“ segir hann
og leggur áherslu á að útflutt kjöt
verði unnið á Íslandi svo virðis-
auki skapist með fjölgun starfa.
Enn fremur segir Jóhannes
gæði íslenska lambakjötsins
meiri en víða annars staðar og
bendir á nýjar fregnir af óæski-
legum fitusýrum og gerlum í
dönsku lambakjöti, máli sínu til
stuðnings.
bjorn@frettabladid.is
Lambakjötið
selst ekki leng-
ur af sjálfu sér
Meðaltalssala lambakjöts á mánuði er nú rúmum
hundrað tonnum minni en hún var 2004. Formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda segir söluna í fram-
tíðinni ráðast af verði og markaðssetningu.
JÓHANNES
SIGFÚSSON
ÚR HAGANUM Minna seldist af lambakjöti árið 2007 ári en árin þar á undan. Útflutn-
ingur hefur líka minnkað.
SALA KINDAKJÖTS
Innanlands og útflutt (í tonnum).
2001 7.538
2002 7.730
2003 8.198
2004 8.701
2005 8.006
2006 7.698
2007 7.498
Heimild: Landssamtök
sauðfjárbænda
MENNTUN Desemberhefti veftíma-
ritsins Stjórnmál og stjórnsýsla
er komið út.
Markmið tímaritsins er að
skapa vettvang fyrir fræðimenn,
sem þannig geti gert rannsóknar-
niðurstöður sínar aðgengilegar en
einnig er ritinu ætlað að vera
vettvangur skoðanaskipta.
Ritið má finna á vefnum www.
stjornmalogstjornsysla.is og er
það öllum opið. - ovd
Stjórnmál og stjórnsýsla:
Umræðan nái
til sem flestra
TÆKNI Kominn er út bæklingur með
leiðbeiningum og ráðleggingum til
foreldra vegna farsímanotkunar
barna og unglinga. Vodafone gefur
bæklinginn út í sambandi við SAFT,
Samfélag fjölskyldu og tækni.
Í bæklingnum segir að níu af
hverjum tíu börnum í 4. til 10. bekk
á Íslandi eigi farsíma. Helmingur
þeirra segi að engar reglur hafi
verið settar um farsímanotkun
þeirra þótt símarnir verði sífellt
fullkomnari og bjóði meðal annars
upp á að skoða netið og taka ljós-
myndir.
Þar er einnig tæpt á reglum um
áreiti, tillitssemi og ábyrga notkun.
Til dæmis sé mikilvægt að fá leyfi
fólks áður en ljósmynd er tekin af
því, barnið segi ekki hverjum sem
er símanúmerið sitt og að það skuli
aldrei svara textaskilaboðum frá
ókunnugum.
„Foreldrar verða að ákveða,
hverjir fyrir sig, hvenær þeir telja
barnið sitt nægilega þroskað til að
nota farsíma. Bæði foreldrar og
börn verða að átta sig á mikilvægi
ábyrgrar notkunar og skynsamlegt
er að setja skýrar reglur um far-
símanotkunina þar sem væntingar
beggja aðila eru uppi á borðinu,“
segir í bæklingnum um það hvenær
börn hafi þroska til að nota farsíma.
- sþs
Bæklingur með leiðbeiningum og ráðleggingum til foreldra barna og unglinga:
Foreldrar fræddir um farsímanotkun
FORSÍÐA Bæklingurinn liggur frammi í
verslunum Vodafone og hjá umboðs-
mönnum um land allt.
IÐNAÐUR Ólíklegt er að fólk frá Ísa-
fjarðarbæ sæki vinnu í Hvestu í
Arnarfirði ef olíuhreinsunarstöð
kemur þar, jafnvel þótt vegsam-
göngur yrðu bættar verulega.
Þetta er niðurstaða skýrslu sem
Rannsókna- og þróunarmiðstöð
Háskólans á Akureyri hefur unnið
fyrir Fjórðungssamband Vest-
firðinga.
Fyrirhugað er að um 500 manns
starfi við stöðina en samkvæmt
skýrslunni búa 1.200 á vinnu-
markaði Hvestu en 4.100 á vinnu-
markaði Sanda.
Aðalsteinn Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunar-
félags Vestfjarða og verðandi
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambandsins, segir að nú hafi
aðstæður í Hvestu og á Söndum í
Dýrafirði verið rannsakaðar með
tilliti til náttúrufars og samfélags-
þátta og hafi ekkert komið fram
sem hamli því að olíuhreinsunar-
stöð verði á öðrum hvorum staðn-
um.
„Nú liggja öll gögn fyrir og bolt-
inn er því nú hjá forsvarsmönnum
fyrirtækisins sem lögðu upp með
þessa viðskiptahugmynd,“ segir
Aðalsteinn. Efnt verður til mál-
þings um málið þar sem heima-
mönnum gefst færi á að kynna sér
málin snemma á næsta ári. - jse
Hugsanleg olíuhreinsunarstöð í Hvestu í Arnarfirði:
Of langt fyrir Ísfirðinga
OLÍUHREINSUNARSTÖÐ Þessi olíuhreins-
unarstöð í Þýskalandi er álíka þeirri og
fyrirhugað er að reisa á Vestfjörðum.
INDLAND, AP Yfir 1.000 kristnir
Indverjar tóku á sunnudag þátt í
mótmælagöngu í höfuðborginni
Nýju-Delí og kröfðust þess að
ríkisstjórnin refsaði mönnum
sem ofsótt hafa kristna menn í
Kandhamal á Austur-Indlandi
undanfarna daga.
Minnst fjórir hafa látið lífið í
átökunum, sem hófust á aðfanga-
dagskvöld er harðlínuhindúar
kveiktu í kirkju. Þeir hafa síðan
kveikt í fleiri kirkjum og
heimilum kristinna og hafa
kristnir í hefndarskyni kveikt í
heimilum hindúa. Um 700 kristnir
íbúar hafa forðað sér í neyðar-
skýli undan átökunum. - sdg/aa
Kveikt í kirkjum og heimilum:
Átök milli krist-
inna og hindúa
Tveggja ára bíóhlé rofið
Eftir tveggja ára hlé á kvikmyndasýn-
ingum á Hornafirði var myndin Veðra-
mót sýnd í Sindrabæ í síðustu viku.
Á horn.is segir að verið sé að kanna
hvort hægt sé að breyta sýningarvél
þannig að hægt sé að sýna textaðar
myndir.
HORNAFJÖRÐUR
Farsímanotkun
barna og unglinga