Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 2. janúar 2008 17 Í almennri umræðu lengi framan af árinu var útrás orkufyrirtækja lýst sem stóra-sannleik. Gilti einu hvort það var forseti lýðveldisins, ráðherra í ríkisstjórn, alþingismaður eða sveitarstjórnarmaður sem talaði, orku útrásin var sá vaxtarbroddur sem átti að taka við af útrás fjármálafyrirtækja og bera Ísland áfram á vegi velmegunar og hagvaxt- ar. Sameining REI, dótturfyrirtækis Orku- veitu Reykjavíkur og einkafyrirtækisins Geysis Green Energy virtist eðlilegt fram- hald þess lausnarorðs sem orkuútrásin var. Málið fór fyrst að súrna þegar einstök atriði í samningnum komu upp á yfirborðið og hinn sjálfumglaði tónn í öllum vinnubrögðum varð ljós. Umræða um hugsanlega spillingu og skjótfenginn gróða einstaklinga er jafnan trygging fyrir athygli og gagnrýni – og svo var nú. Á nokkrum dögum breyttist þannig mál, sem hafði snúist um útfærslu á langvar- andi stefnumótun nær allra stjórnmálaflokka, í hatrammar deilur. Valdabrölt og bræðra- byltur birtust þá landsmönnum sem illskilj- anleg pólitísk sápuópera. Í yfirlýsingum fékk þessi sápa yfirbragð „hagsmunagæslu fyrir almenning“. Annars vegar voru sjálfstæðis- menn sakaðir um að vilja selja á brunaútsölu verðmætar eignir almennings, og hins vegar voru andstæðingar sjálfstæðismanna sagðir vilja spila happdrætti á áhættumarkaði með þessar almenningseignir. Hér dúkkaði upp hugmyndafræði um hlutverk opinberra aðila í áhætturekstri og var hún notuð sem göfg- andi skýring þegar meirihlutasamstarf Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks sprakk með miklum hvelli í október. Ættarbölvun óeiningar Línurnar voru þó engan veginn eins skýrar í aðdraganda falls meirihlutans og yfirlýsing- ar gáfu til kynna. Ýmsir fleiri þættir skiptu máli varðandi aðdraganda og afleiðingar þessa pólitíska vendipunkts. Sérstaklega mikilvægt var að sjálfstæðis- menn voru ekki samstiga í málinu. Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, hafði keyrt ákveðna línu ásamt sínu fólki í stjórn Orkuveitunnar. Þegar sú lína var dreg- in í efa af hans eigin borgarstjórnarflokki neyddist hann til að draga í land og meðal annars fórna sínum gamla samherja og vini Hauki Leóssyni sem verið hafði formaður stjórnar Orkuveitunnar. En trúverðugleiki hans sem leiðtoga var líka að verulegu leyti horfinn – einkum vegna þess að hann virtist ekki eiga tryggt bakland í borgarstjórnar- flokknum. Hér virðist sem hin gamalkunna ættarbölvun óeiningar um leiðtoga, sem plag- að hefur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá því að Davíð Oddsson fór úr Ráðhúsinu, hafi enn einu sinni spunnið örlagaþræði flokksins. Það er hátt í áratugur síðan sá sem þetta ritar taldi sig fyrst sjá sláandi samlíkingu með borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og „ríki náttúrunnar“ hjá 17. aldar heimspekingnum Tómasi Hobbes. Þessi lík- indi hafa ekki minnkað. Í ríki náttúrunnar hjá Hobbes stjórnast menn af eigin hagsmunum. Enginn getur treyst náunganum, enda engar almennar samfélagsreglur í gildi. Lífið í ríki náttúrunnar er því óþolandi, andstyggilegt, grimmt og stutt („arbitrary, nasty, brutish and short“). Til að tryggja öryggi sitt geta menn þó samaneinast um konung – „Leviathan“ – sem fær að ráða því sem hann vill, en hann verður á móti að halda uppi lögum og reglu. Eftir að Davíð fór úr borginni hafa sjálfstæðismenn einfaldlega ekki fundið sinn Leviathan. Markús Örn Antonsson var dreginn í efa sem foringi og hann vék korteri fyrir kosningar 1994. Árni Sigfússon var jafnframt dreginn í efa af því hann hélt ekki borginni og átti Björn Bjarnason ekki að vera svo miklu betri en Inga Jóna Þórðardóttir? Loks þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son náði borginni var það ekki með mjög sannfærandi hætti og raddir sem telja að aðrir séu betri foringj- ar hafa ekki þagnað. Til – án Villa! Í þessu samhengi má ekki mikið út af bregða til að hrinda af stað mik- illi atburðarás. Þetta sást e.t.v. best á því hvað lítil sakleysisleg sms- skilaboð ollu miklum usla í október. „Til í allt án Villa!“ Hvort skilaboð- in voru raunveruleg eða bara kjaftasaga skiptir litlu. Augljóst var að mikilvægir spilarar mátu það þannig að einhver hluti borgar- stjórnarflokks sjálfstæðismanna, þ.e. flokkurinn að Vilhjálmi undan- skildum, væri tilbúinn að reyna fyrir sér um nýtt meirihlutasam- starf. Staðan varð síðan enn eldfim- ari þegar þetta ástand í Sjálfstæðis- flokknum er sett í samhengi við: a) harða og stöðuga gagnrýni Svandísar Svavarsdóttur á REI- málið í stjórn Orkuveitunnar; b) vakandi auga Samfylkingar- innar við að koma fleyg inn í meiri- hlutasamstarfið til að komast sjálf í meirihlutaaðstöðu; c) erfiða stöðu Björns Inga Hrafnssonar sem hafði náð að halda Framsókn við borgarstjórnarborðið með því að tefla djarft og án hiks í hinni pólitísku refskák. Sigrar og ósigrar Þetta var bakgrunnur þeirra pólitísku svipt- inga sem urðu til þess að Björn Ingi söðlaði um og þáði meirihlutafaðmlag VG, Samfylk- ingar og Frjálslyndra. Sjálfstæðismenn hafa litlar þakkir kunnað Birni Inga fyrir og Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður talaði, eins og raunar fleiri sjálfstæðismenn, um rýtingsstungu frá honum. Á móti hafa bæði Björn Ingi og nýir samherjar hans í meirihluta dregið fram sundur- lyndið í Sjálfstæðisflokknum og sagt að flokkurinn hafi viljað einkavinavæða REI með skyndi- sölu. Báðar eða kannski öllu held- ur allar fylkingar í málinu hafa náð að sveipa málið allt þeim hug- myndafræðilega blæ sem áður var nefndur, enda er það mikilvægt fyrir flokkana upp á framhaldið og hvernig þeir spila úr þessari stöðu í framtíðinni. Borgarstjórnarfull- trúar hafa verið í sókn og vörn og niðurstaðan nokkuð ólík eftir flokkum og einstaklingum. Gæfa eða gjörvileiki Sjálfstæðismenn hafa náð að berja merkilega vel í brestina og láta eins og aldrei hafi verið neinn ágreiningur uppi í þeirra röðum. Vilhjálmur er enn í oddvitastól og sexmenningarnir, þ.e. hinir borg- arfulltrúarnir, hamra á því að þeir hafi staðið fast á einhverjum prinsippum varðandi aðild opin- berra aðila að útrás orkufyrir- tækjanna. Þessi prinsipp eru hins vegar torskilin almenningi, sem horfir síðan upp á þessa sömu sjálfstæðismenn verja orkuútrás Landsvirkjunar í sérstöku félagi. Eftir stendur að Sjálfstæðisflokk- urinn missti borgina með fremur snautlegum hætti og fáir trúa því í alvöru að Vilhjálmur verði þaul- sætinn á oddvitastóli. Þó svo að í hópi sexmenninganna séu glæsi- leg leiðtogaefni, þá sannast e.t.v. enn hið fornkveðna að sitt er hvað gæfa eða gjörvileiki. Öll eru þau nokkuð brennd af þessari sér- kennilegu REI-uppákomu sem leiddi samfylkingarmanninn Dag B. Eggertsson – einn höfuðand- stæðing sjálfstæðismanna í síð- ustu kosningum – beint til hásætis. Samfylkingin kemur hins vegar jafn vel út úr þessum vendingum og Sjálfstæðisflokk- urinn kemur illa út. Flokkurinn fær tæki- færi til að vera í leiðandi stöðu í nýjum meiri- hluta og vinna þannig sigra í miðtafli kjörtímabilsins, sigra sem ekki tókst að vinna í kosningunum sjálfum. Sama má í raun segja um Frjálslynda flokkinn, sem skyndilega verður að mikil- vægum hlekk í meirihluta í stað þess að vera einmana rödd hrópanda í andstöðunni. Svandís valdi vinstri Þessi umskipti í borgarstjórn eru þó fyrst og fremst vendipunktur fyrir oddvita Fram- sóknar og VG, þau Björn Inga Hrafnsson og Svandísi Svavarsdóttur. Svandís stendur uppi sem skeleggur sig- urvegari sem nýtur trausts vinstri manna. Óumdeilt er að það var ekki hvað síst gagn- rýni hennar á vinnulagið við sameiningu REI og Geysis Green sem kom því máli á dag- skrá. Hún kaus jafnframt að fara í samstarf við gömlu R-lista flokkana frekar en t.d. að taka undir meint tilboð um samstarf við sjálfstæðismenn. Hvort sem slík tilboð hafa komið fram einhvers staðar annars staðar en í Morgunblaðinu eða ekki, þá er ljóst að mikilvægur hópur í baklandi hennar er mjög sáttur við að hún valdi „valkost til vinstri“. Hún hefur þannig styrkt sig og mun ganga inn í nýtt ár sem foringjaefni hjá Vinstri grænum. Björn Ingi skorar Sömuleiðis má ætla að Björn Ingi hafi náð að framlengja og styrkja pólitískt líf sitt með því að segja Sjálfstæðisflokknum stríð á hendur. Björn fær vissulega á sig orð fyrir að vera slóttugur pólitíkus og jafnvel tæki- færissinni og svikari. Þetta kemur ekki síst til af því að þegar hann myndaði meirihluta með Vilhjálmi á sínum tíma sakaði Ólafur F. Magnússon forustumenn hins nýja meiri- hluta um að hafa beitt brögðum. Á móti kemur að flestir hafa fylgst með því hvernig Framsókn stóð af óendanlegu trygglyndi með sjálfstæðismönnum í landsmálum og framdi með því pólitískt sjálfsmorð, til þess eins að líkinu yrði hent á haugana þegar Geir Haarde myndaði núverandi ríkisstjórn. Innan Framsóknarflokksins í það minnsta er ljóst að Björn Ingi framdi engin helgispjöll gagnvart sjálfstæðismönnum, og styrkti sig mikið sem leiðtogaefni. Baklandsbrestur Meirihlutaskiptin í borgarstjórn í október voru mikill vendipunktur í íslenskri pólitík. En þótt málefni orkuútrásarinnar sé nýtt á hinni pólitísku dagskrá og hafi á sér yfir- bragð mikilla hugmyndafræðilegra grund- vallardeilna, þá eru átökin að mörgu leyti gamalkunnug. Togstreitan um borgina milli „félagshyggjuflokka“ og Sjálfstæðisflokks og ættarfylgja sjálfstæðismanna um bak- landsleysi borgarstjórnarleiðtoga flokksins leika enn stórt og sennilega stærstu hlutverkin. Ættarbölvun og refskák – nýr meirihluti í Ráðhúsið Það líktist einna helst revíu að fylgjast með þegar slitnaði upp úr í haust milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgar- stjórn Reykjavíkur. Deilt var um útrás Orkuveitunnar, hver myndi hvað og hver hafði lofað hverju. Birgir Guðmundsson fer yfir refskákina og leyndardómsfull smáskilaboð sem fóru eða fóru ekki milli manna. REYNT AÐ HALDA BORGARSTJÓRN SAMAN Deilt var um hvernig málin stóðu eftir síðasta borgarstjórnarfund gamla meirihlutans, en daginn eftir hafði Björn Ingi Hrafnsson myndað nýjan meirihluta með Samfylkingu, Vinstri grænum og Frjálslyndum. Hann skildi þó ekki þarna vera að fá boð um nýjan meirihluta, með SMS. INNLENDIR VENDIPUNKTAR 2007 Birgir Guðmundsson er lektor í fjölmiðla- fræði við Háskólann á Akureyri. Hann er gamalreyndur blaðamaður og pistla- höfundur og hefur fylgst með íslenskum stjórnmálum í áratugi. Innlendir vendi- punktar 2007 Fréttablaðið gerir nú upp árið með greinum um innlenda vendipunkta eftir landskunna Íslendinga. Vendipunktarnir snúast um mark- verðar fréttir á árinu, sem eiga það sammerkt að vera fréttir um eitthvað nýtt sem gerðist eða breytingar sem hafa áhrif til frambúðar. Hér virðist sem hin gamalkunna ættarbölvun óeiningar um leiðtoga, sem plagað hefur Sjálf- stæðisflokks- inn í Reykja- vík frá því að Davíð Oddsson fór úr Ráðhús- inu, hafi enn einu sinni spunnið örlagaþræði flokksins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.