Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 2. janúar 2008 27 Danska uppboðshúsið Bruun Rasmussen hefur frá því fyrir jól ítrekað minnt á stóruppboð sitt sem hald- ið verður í mars. Þar er megináhersla á verk CoBrA- málaranna en þá verða sextíu ár liðin frá upphafi hreyfingarinnar. Hefur uppboðshúsið safnað verk- um til uppboðsins um nokkurt skeið og verður þar meðal annarra verka CoBrA-málara boðið til kaups stórt verk eftir Asgert Jorn sem prýddi vegg í húsi Roberts Dahlman Olsen á Drageyri sem Jorn málaði beint á vegginn 1964 sem afmælisgjöf til félaga síns. Hefur miklu fé verið kostað til að ná málverkinu af veggnum og hafa pólskir forverðir unnið að því verki um margra mánaða tíma með ærnum tilkostnaði. Þótt CoBrA teldist ekki starfa nema um þriggja ára skeið frá 1948 til 1951 með óformlegu sam- starfi listamanna frá Danmörku, Hollandi, Belgíu, Bretlandi, Íslandi og víðar að hafði hreyfingin gríðar- leg áhrif og átti sér framhaldslíf víða um álfuna: leitar uppboðs- húsið eftir verkum eftir helstu forkólfa hreyfingarinnar og sæk- ist eftir verkum eftir Pierre Alech- insky, Else Alfelt, Karel Appel, Jean-Michel Atlan, Mogens Balle, Ejler Bille, Eugène Brands, Con- stant, Corneille, Christian Dotrem- ont, Jacques Doucet, Sonju Ferlov Mancoba, William Gear, Stephen Gilbert, Svavar Guðnason, Karl Otto Götz, Henry Heerup, C.O. Hultén, Egil Jacobsen, Asger Jorn, Lucebert, Tage Mellerup, Jan Nieuwenhuys, Erik Ortvad, Carl- Henning Pedersen, Reinhoud d’Haese, Anton Rooskens, Shink- ichi Tajiri, Erik Thommesen, Theo Wolvecamp og Anders Österlin. Að auki ætla þeir hjá Bruun að leggja áherslu á verk listamanna frá eyjunum í Norður-Atlantshafi eins og þeir kalla Færeyjar og Ísland, sem þeir segja að eigi æ meiri áhuga að fagna um þessar mundir og vitna þá einkum til hins háa verðs sem fengist hefur fyrir verk íslenskra málara á uppboðum í Breiðgötu: Ásgríms Jónssonar, Jóns Stefánssonar og Gunnlaugs Blöndal auk Hvítasunnumorguns Kjarvals sem nú hangir uppi í Listasafni Reykjavíkur ásamt öðrum verkum úr eigu Landsbank- ans. Þeir vilja fá til uppboðsins verk eftir Þórarin B. Þorláksson, Guðmund Thorsteinsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Sigurjón Ólafsson, Þorvald Skúlason, Svavar Guðna- son og fleiri auk verka eftir Fær- eyingana Joen Waagstein, William Heinesen, Ruth Smith, Jóannis Kristiansen, Jack Kampmann, Hans Jákup Glerfoss, Steffan Danielsen, Sven Havsten-Mikkel- sen, Zacharias Heinesen, Thomas Arge, Trónd Patursson, Amariel Nordoy, Eydun av Reyni meðal annarra. Í þriðja lagi er óskað eftir verk- um danskra samtímamálara. Þeir sem vilja koma verkum sínum til uppboðs ytra í mars er hollast að hafa samband við starfsmenn Bruun Rasmussen sem fyrst. pbb@frettabladid.is Marsuppboð í Höfn Hinn árvissi gleðigjafi í upphafi árs, Vínartón- leikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, fara fram fjór- um sinnum næstu þrjá dagana; annað kvöld, á föstudagskvöld og tvívegis á laugardag. Efnisskráin er að vanda hefðbundin, enda vart hægt að bjóða aðdáendum og fastagestum þessara tónleika upp á ann- að. Tónleikarnir hafa fyrir margt löngu fest sig í sessi sem einn af hápunktum tónleikaársins. Áherslan verður á vínarvalsa og aðra lífsgleðitónlist af léttara taginu frá Vínarborg og nágrenni. Meðlimir hinnar afkastamiklu Strauss-fjölskyldu fá að sjálf- sögðu sitt pláss á efnisskránni, ásamt óperettutónskáldunum Lehár og Kálmann og fleirum. Einsöngvari á tónleikunum er Auður Gunnarsdóttir og stjórn- andi er Erns Kovacic. Þess má til gamans geta að í verkinu Zigeuner weisen eftir Pablo Sara- sate, sem leikið verður á tónleik- unum, mun stjórnandinn sjálfur munda fiðluna. Á tónleikunum fá aðdáendur valsatónlistar eitthvað fyrir sinn snúð. Það kann að koma einhverj- um á óvart að valsinn var á sínum tíma hneykslunarhella betri borg- ara í Vínarborg sakir meintrar ósiðsemi, en blessunarlega hefur hann löngu hrist af sér það orð og hefur nú frekar á sér yfirbragð saklausrar og fágaðrar skemmt- unar og græskulausrar lífsgleði. Um uppruna valsins er margt á huldu, enda er hann aðeins einn af mörgum sveitadönsum sem nutu vinsælda í Þýskalandi, Austurríki og Bæheimi á 18. öld. Þessir þýsku dansar voru í þrí- skiptum takti og þóttu óvenju djarfir fyrir það hversu nánar hreyfingar dansaranna gátu orðið miðað við það sem áður þekktist. Um aldamótin 1800 var valsinn orðinn með vinsælustu dönsum og um leið hafði hraðinn aukist töluvert frá því sem áður var. Ekki voru þó allir sáttir við vinsældirnar, og valsinum var til dæmis harðlega mótmælt af heilsufarsástæðum þar sem hann þótti svo hraður að varfærnari mönnum þótti nóg um. Valsinn var þó ekki síður umdeildur vegna hinna ósiðlegu hreyfinga sem honum fylgdu. Í sveitadöns- um hélt herrann þétt um dömuna, sem aðalsfólki þótti fráleitt enda tíðkaðist ekki nema lítilsháttar snerting handanna í flestum hirðdönsum. Ekki urðu þessi mótmæli þó til að draga úr sívaxandi vinsældum valsins, sem sló rækilega í gegn í Vínarborg á fyrstu áratugum 19. aldarinnar. Í Vínarborg voru danssalir sem hvergi áttu sinn líka, til dæmis Appollósalurinn, sem gat rúmað sex þúsund dansara. Á þessum tíma var það Strauss-fjölskyldan sem óum- deilanlega bar höfuð og herðar yfir aðra þegar kom að valsagerð. Þessara yfirburða fá svo tónleika- gestir Vínartónleika Sinfóníunnar að njóta. Djarfir dansar í ársbyrjun AUÐUR GUNNARSDÓTTIR Syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Vínar- tónleikum. KRÍSUVÍK Ljósmynd Ellerts sýnir okkur fegurð fyrirhugaðs virkjunarsvæðis. Ellert Grétarsson, ljósmyndari blaðsins Víkurfréttir, opnar sölu- sýningu á ljósmyndum sínum í Saltfisksetrinu í Grindavík á laugardaginn næstkomandi. Á sýningunni má sjá myndir sem Ellert hefur tekið síðastliðin ár af íslenskri náttúru og landslagi og má því fara nærri um að þær séu sumar ægifagrar líkt og viðfangs- efnið. Ellert hefur gert víðreist með myndir sínar og sýnt þær víða um heim undanfarin ár. Meðal annars hafa myndir hans ratað á sýningar í New York, Barcelona, Los Angel- es og Sofíu. Haustið 2006 hélt hann stóra einkasýningu í Narrows Center for The Arts í Fall River í Massachusetts. Þrátt fyrir vel- gengni Ellerts erlendis höfum við Íslendingar ekki farið varhluta af verkum hans þar sem hann hefur jafnframt sýnt víða hér heima. Myndir hans hafa meðal annars verið til sýnis á Eiðum, Skriðu- klaustri, Café Milanó og nú síðast á Ljósanótt í Byggðasafninu á Vatnsnesi þar sem viðfangsefni hans var brúðusafn Helgu Ingólfs. Myndir Ellerts hafa ennfremur víða birst á prenti í útbreiddum blöðum og tímaritum eins og Art Business News, Direct Art og menningarblaði Herald News. Ellert hlaut í haust þrjár svo- kallaðar „Honorable Mention“ viðurkenningar við veitingu Inter- national Photography Awards verðlaunanna 2007. Viðurkenning- arnar hlaut hann fyrir náttúruljós- myndun í flokki atvinnumanna. Verðlaunamyndirnar verða á sýn- ingunni í Grindavík auk fjölda annarra ljósmynda sem hann hefur tekið á göngu- og fjallaferð- um sínum um Ísland, meðal annars myndir af náttúruperlum á Reykjanesskaga. - vþ Landslag með augum Ellerts MYNDLIST Óskað er sérstaklega eftir íslenskum verkum til uppboðs í Kaupmanna- höfn í mars. Þjóðleikhúsið um helgina Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Ívanov e. Anton Tsjekhov Aðlögun og leikstjórn: Baltasar Kormákur fös. 4/1 & lau. 5/1 örfá sæti laus Konan áður e. Roland Schimmelpfennig lau. 5/1 Skilaboðaskjóðan e. Þorvald Þorsteinsson sun. 6/1 kl. 14.00 uppselt sun. 6/1 kl. 17.00 aukasýn. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 2. janúar 11. janúar 19. janúar 25. janúar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.