Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 34
30 2. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is 10.September nk. Ungbarnasund Námskeiðið hefst 5. f brúa nk. í Árbæjarlaug. Sunddeild Ármanns Barnasund Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára hefst laugardaginn 15. janúar nk. í Árbæjarskóla Innritun virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 13:00 í síma 557-6618 (Stella) og Eygló í síma 866-0122 i ið hefst 12 janúar nk. í Árbæjarlaug. Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00 í síma 866 0122 Eygló. eyglo@sjukratjalfun.is Stella 557-6618. stella.gunnarsdottir@reykjavik.is Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára hefst laugardaginn 12. janúar nk. í Árb jarskóla > DÝRIR LEGGIR „Þetta er fáránlegt. Erfða- fræðilega séð ættu fótleggirn- ir á mér að vera risavaxnir. Ég get ekki hugsað um þetta, ég verð bara rugluð,“ segir söng- konan Rihanna um þá stað- reynd að fyrirtækið Gillette tryggði fótleggi hennar fyrir eina milljón dollara, vegna auglýsinga her- ferðar fyrir rakvörur.“ Vel fór á með Paris Hilton og Kevin Federline í Las Vegas um áramótahelg- ina, en þau sóttu sömu skemmtistaði bæði á laugardags- og sunnudags- kvöldi. Bæði Paris og K-Fed voru stödd í Vegas til að vera gestgjaf- ar hvort fyrir sitt áramótapartí- ið. Sjónarvottar sögðu Paris hafa hlegið og grínast með Federline á skemmtistaðnum LAX á laugardagskvöldi, en hún og Britney, fyrrverandi eiginkona hans, hafa verið ágætis vinkonur á liðnu ári. „Kevin og Paris skemmtu sér vel. Hann var alltaf að hrópa nafnið hennar og kyssti hana á kinnina og hvíslaði einhverju í eyrað á henni. Það leit út fyrir að þau væru mjög vinaleg hvort við annað,“ segir einn gesta á skemmtistaðnum. Annar lét þau ummæli falla að Britney myndi verða brjáluð, en hún ku ekki vera hrifin af því að vinir hennar umgangist Federline. Hjónin fyrrverandi heyja nú hatramma baráttu um forræði yfir sonum sínum tveimur, eins og margir vita. Synirnir vörðu jólunum í félagsskap föður síns, fyrrverandi kærustu hans og barna þeirra, Kori og Kaleb. Lögmaður Federline sagði í viðtali við People að jólin hefðu verið afar ánægju- leg fyrir alla. „Kevin var með öll börnin sín og þetta var ein, stór, hamingjusöm fjölskylda. Hann var mjög ánægður, og börnin voru ánægð,“ sagði hann. Paris og K-Fed saman í Vegas MEÐ K-FED Í VEGAS Svo vel fór á með Paris Hilton og Kevin Federline um síðustu helgi að eftir því var tekið. MEÐ BÖRNIN UM JÓLIN K-fed var gestgjafi í ára- mótapartíi í Vegas, eftir að hafa varið jólunum með börnum sínum fjórum. Viðburðafyrirtækið Jón Jónsson flytur inn hina heimsþekktu rokkstjörnu Tommy Lee nú í mánuð- inum. Hann kemur fram í Burn-partíi Nasa í nýjum og dansvænni búningi, þar sem hann treður upp ásamt plötsnúðnum Dj Aero. Rokkstjarnan Tommy Lee er væntanlegur til landsins í lok mánaðar, þegar hann treður upp á Nasa á tónleikum á vegum viðburðafyrirtækisins Jóns Jóns- sonar. Þetta staðfesti Margeir Ingólfsson, einn aðstandenda Jóns Jónssonar, í viðtali við Fréttablað- ið. Með Lee í för verður plötusnúð- urinn Dj Aero, en saman mynda þeir plötusnúðatvíeyki. „Þetta er Tommy í svolítið nýjum búningi. Hann er að pródúsera elektrón- íska músík núna, og þeir Aero verða með trommur og syntha og ýmislegt. Þetta verður mjög líf- legt og flott, miðað við það sem ég hef séð,“ segir Margeir. Tommy Lee er fyrsta alþjóðlega stjarnan sem kemur hingað á vegum Jóns Jónssonar, enda er fyrirtækið nýstofnað. Það stóð hins vegar fyrir lokatónleikum Gus Gus nú rétt fyrir áramót. Margir hér á landi þekkja Tommy Lee sem einn af stofnend- um rokksveitarinnar Mötley Crue, aðrir sem fyrrverandi eiginmann Pamelu Anderson, og enn aðrir úr þáttunum Rockstar: Supernova, þar sem Magni nokkur Ásgeirsson komst í návígi við rokkarann. Færri hafa séð hann í elektrón- ískum ham, en Margeir segist búast við því að miðar í Burn- partíið seljist hratt upp, miðað við þau viðbrögð sem hann hefur fengið. „Hann er náttúrulega alþjóðleg súperstjarna og er dug- legur að koma sér á for- síðurnar,“ segir hann og hlær við. Tónleikar Lees og Aeros, ef svo mætti kalla, fara fram 25. janúar næst- komandi, og hefst miðasala nú á föstudag. Tvíeykið mun dveljast hér á landi í nokkra daga. „Þeir hlakka mjög mikið til að koma, og verða nógu lengi til að geta farið á djammið. Þeir hafa víst heyrt sögur af þeim fögru fljóðum sem ganga hér um bæinn,“ segir Margeir og kímir. Miða er hægt að nálgast á miði. is, frá og með föstudegi. sunna@frettabladid.is Tommy Lee á leið til Íslands FLYTUR TOMMY INN Margeir Ingólfsson og aðrir aðstandendur hins nýstofn- aða viðburðafyrirtækis Jóns Jónssonar flytja rokkstjörnuna hingað Britney Spears er sögð kenna sjálfri sér um að litla systir henn- ar, Jamie Lynn, sé orðin ólétt aðeins sextán ára að aldri. Söng- konan mun hafa sagt vinum sínum að hún hafi reynt að vara hana við. „Ég hef gert ýmislegt misgáfulegt, og hef ekki verið góð fyrirmynd. Ég varaði hana við, ég gerði það í alvöru. Hún virtist ætla að fara að ráðum mínum,“ sagði söngkonan, sem sjálf upplifði ýmislegt á síðasta ári. Botninum var náð þegar hún missti forræð- ið yfir sonum sínum tveimur, Sean Preston og Jayden James. Hún kveðst hafa orðið fyrir vonbrigðum með litlu systur. „Ég sagði henni aftur og aftur að leyfa sér að vera barn og leyfa fullorðins- hlutum eins og kynlífi og drykkju og öllu þessu að bíða. Ég bara trúi því ekki að hún sé ólétt. Hún er allt of ung til að verða móðir. Hún ætti að vera að skemmta sér, ekki eignast barn,“ segir söng- konan. Áfellist sjálfa sig BRITNEY AÐ KENNA Britney segist kenna sjálfri sér um að sextán ára gömul systir hennar, Jamie Lynn, sé barns hafandi. Tímaritið People greindi frá því á dögunum að Heroes-stjörnurnar Hayden Panettiere og Milo Ventimiglia séu par. Þrá- látur orðrómur þess efnis hefur verið uppi síðustu mánuði, en frásögn People þykir vera til marks um að hann sé sannur, þó að parið hafi ekki enn staðfest sambandið. „Mamma Haydens elskar Milo. Henni finnst hann svo sætur,“ segir fjöl- skylduvinur við tímaritið. Venti- miglia hefur víst hitt alla í fjöl- skyldu Panettiere í New York í desember. „Hann hitti meira að segja afa hennar og ömmu. Hann smellpassar í fjölskylduna,“ segir heim ildarmaðurinn, sem bætir því við að parinu líði afar vel saman. „Þau eru mjög ástúðleg hvort við annað,“ segir hann. „Þau eru ekki hrædd við að sýna ást sína í kringum fjölskyldu og vini.“ Milo og Hayden hittust við tökur á þáttaröðinni Heroes. Hún er átján ára gömul, en Milo þrí- tugur. Fjölskylda Hayden dáir kærastann ÁSTÚÐLEG HVORT VIÐ ANNAÐ Milo og Hayden eru óhrædd við að sýna ást sína innan um fjölskyldu og vini, en hann hitti fjölskyldu hennar í desember. Jennifer Lopez, sem á von á sínu fyrsta barni ásamt eiginmannin- um Marc Anthony, segist hafa verið í „tilfinningalegu rusli“ á meðgöngunni. Hormónasveifl- urnar hafa ekki farið vel í söng- konuna, sem segist eiga í mestu vandræðum með að halda aftur af tárum sem vilja brjótast fram við hvert tækifæri. „Ég fer að gráta yfir öllu sem er hjartnæmt, jafnvel kjánalegri auglýsingu. Allt um feður lætur mig fara að gráta, sem er kannski út af sambandi mínu við föður minn. Í hvert skipti sem ég sé eitt- hvað um pabba með litlu stelpuna sína, og ef ég er of þreytt, fer ég af stað,“ segir Lopez. Erfingi Lopez og Anthony er væntanlegur í heiminn í vor. Eftir að hafa haldið þunguninni leyndri í lengstu lög tilkynnti söngkonan um væntanlega fjölgun í byrjun nóvember. Margir telja að Lopez beri tvíbura undir belti, en það hefur ekki verið staðfest enn. Í rusli á meðgöngu GRÆTUR YFIR ÖLLU Jennifer Lopez seg- ist hafa verið í „tilfinningalegu rusli“ á meðgöngunni, og kveðst gráta yfir öllu. NORDICPHOTOS/GETTY Í NÝJUM BÚNINGI Tommy Lee og DJ Aero spila á Nasa 25. janúar næstkomandi. Aðdáendur Mötley Crue geta búist við að sjá stjörnuna í nýjum búningi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.