Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 4
4 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR ERLENT Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars) Allt fyrir skrifstofuna undir 1 þaki DÓMSMÁL Maður sem grunaður er um stórþjófnaði og fjársvik hefur verið dæmdur í Hæstarétti til að sæta gæsluvarðhaldi til 1. febrúar. Maðurinn er grunaður um að hafa stolið tveimur tölvum úr verslun í desember 2006 og tveimur til viðbótar úr annarri verslun í október 2007. Í nóvember er hann grunaður um að hafa stolið fjórum tölvum, sjónvarpi og mynd- bandsupptökuvél auk fleiri hluta úr verslun og í desember tveimur fartölvum til viðbótar. Þá er hann grunaður um að hafa látið millifæra tæpar tvær milljónir króna af bankareikningi annars manns í heimildarleysi. - jss Dómur Hæstaréttar: Tíu tölva þjófur í gæsluvarðhaldi                   ! # $ %    &      &   '    # ( ! %'  ) # $  *+, -+, .+, /0 *+, 1+, 2+,  3/ 45+, 1+,0 3/ *+, *+,  3/ *+,  3/ 1+, 46+,  3/ 4*+,  3/ .4+,  3/        !"#$!%& '$()*+&#,%($-(). /&&+0-(+&*1$ #*( $#$&!2*  ()+3'"( $ !"#2++#./) $$+ (4$ $&) +#"+&)*)( !"#$&().-") "!-(-#"#1!%# '5$3#"$$*)- % ()-#&($*+&#+! 2*+&,&&(#66'#+&# 1$"(-($-+(-+#" 1'(./) () +3'--)--7+&# 82'")$ 1$(-*)(4$.   9:; ;< =7-!)#+&-'&&! +&> #5$.=(&(*()%!+& " . 7869 -8479   ":    ;" ?(#)#/.-++!-8 *)#%7)(-#            @  A A B B B C B @ B B         FISKELDI Fiskeldishópur AVS, sem er rannsóknarsjóður á vegum sjávarútvegsráðuneytisins, leggur til að á tímabilinu 2008-2010 verði opinbert framlag til rannsókna- og þróunarstarfs í þorskeldi 100 milljónir króna á ári. Til viðbótar kemur 25 milljóna árlegt framlag til kynbóta á þorski, 500 tonna árlegar aflaheimildir til þorskeld- is, framlag ríkissjóðs til stofnana, styrkir úr erlendum rannsókna- sjóðum og framlag fyrirtækja sem stunda tilraunaeldi á þorski. Stefnumótunin er meðal annars byggð á tillögum fimm faghópa á þorskeldisráðstefnunni „Stöðumat og stefnumótun í þorskeldi“ sem haldin var í nóvember. - shá Tillögur fiskeldishóps AVS: 100 milljónir í þróun þorskeldis ÞORSKELDI Miklar vonir eru bundnar við eldi þorsks í framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Rúmenía: Mega slátra að sið áfram Rúmenía hefur fengið sérstakt leyfi hjá Evrópusambandinu til að halda í aldagamlan sið í sveitahér- uðum landsins sem felur í sér að svínum og lömbum er slátrað án þess að þau séu svipt meðvitund áður. Lög ESB kveða á um að slík dýr séu aflífuð með mannúðlegum hætti, á sláturhúsum og séu deyfð fyrst. Rúmenar sögðu þessar reglur ógna þjóðararfi sínum. Bandaríkin: Flutti inn í Ikea-verslun Á meðan verið er að eiturúða íbúð grínistans Marks Malkoff vegna kakkalakka fékk hann að flytja inn í Ikea-verslun í New Jersey í Bandaríkjunum á mánudaginn. „Það að Ikea leyfi mér þetta er ráðgáta. Það er ekki möguleiki á að ég snúi til baka. Ég er alltof hrifinn af þessu íbúðarformi.“ Malkoff, sem er að gera heimild- armynd um þessa dvöl, kvartar þó yfir því að vaskar, klósett, ísskápar, sjónvörp, þvottavélar og þurrkarar virki ekki. Bandaríkin: Hundur drap eiganda sinn Sporhundur virðist hafa stigið á hlaðna haglabyssu sem lá aftan í pallbíl og með því skotið eiganda sinn í lærið meðan þeir voru í gæsaveiðiferð að því er lögreglan í Houston í Bandaríkjunum greindi frá. Eigandinn, Perry Alvin Price III lést skömmu síðar á sjúkrahúsi vegna blóðmissis. ÞRÓUNARAÐSTOÐ Þróunarsam- vinnustofnun Íslands afhenti á dögunum fjórðu þjónustumiðstöð- ina af tuttugu og fimm sem áætlað er að reisa við löndunar- staði á Srí Lanka. Miðstöðin er í Ulhitiya, og er hluti af þróunarað- stoð við fiskimannasamfélög á svæðinu. Í þjónustumiðstöðvunum er aðstaða fyrir skrifstofu sam- vinnufélags fiskimanna, aðstaða fyrir fundahöld, salerni, rafmagn og neysluhæft drykkjarvatn. - sþs Þróunarsamvinnustofnun: Afhentu þjón- ustumiðstöð DÝRAHALD „Í fyrstu munum við fara þess á leit við Íshunda að þeir felli þetta niður,“ segir Ólafur Garðarsson hæstaréttarlögmaður um mál sem komið er upp milli Íshunda, hundaræktarinnar í Dalsmynni og Hundaræktarfé- lags Íslands. Forráðamenn Íshunda hafa fengið einkaleyfis- skráningu á skammstöfuninni HRFÍ sem hefur verið skamm- stöfun Hundaræktarfélags Íslands í 40 ár eða allt frá stofnun þess. Stjórn HRFÍ hefur falið Ólafi að sjá til þess að einkaleyfisskrán- ingin verði afturkölluð eða felld niður. „Það er mat stjórnarinnar að Einkaleyfastofan hafi gert mistök með því að skrá HRFÍ sem einka- leyfi hjá Íshundum, en það hefur verið í notkun sem skammstöfun á nafni Hundaræktarfélags Íslands, frá stofnun þess 4. sept- ember 1969,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn félagsins. „Hundaræktarfélag Íslands á lénið hrfi.is og hrfí.is. Félagið hefur merkt fatnað sinn með þess- ari skammstöfun og notað skamm- stöfunina í merkjum á vegum félagsins. Ennfremur hafa bæði opinberar íslenskar og alþjóðleg- ar sýningar verið haldnar undir merkjum HRFÍ.“ - jss Hundaræktin í Dalsmynni hefur einkaleyfi á skammstöfuninni HRFÍ: Hundaræktendur í hár saman Í DALSMYNNI Lögmaður Hundarækta- félags Íslands segir að dómstólar muni skera úr um málið verði ekki orðið við tilmælum um niðurfellingu einkaleyfis- skráningarinnar. VINNUMARKAÐUR Skiptar skoðanir eru innan Starfsgreinasambands- ins um nýja sáttahugmynd sem lögð verður fram á fundi með Samtökum atvinnulífsins á morg- un. Tillagan er ekki fullmótuð, en gert er ráð fyrir samningi til tveggja ára, og að lægstu taxtar muni hækka um 20 þúsund og verða 139 þúsund krónur. Gert er ráð fyrir skattafríðindum fyrir þá lægst launuðu. Þá er lagt til að þeir sem ekki hafi notið launa- skriðs í rúmt ár fái nokkurra pró- senta hækkun og launaþróunar- tryggingu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness vill fylgja tillögunni sem lögð verði fram. Haldið verði fast við hækk- un lágmarskslauna um 20 þúsund á mánuði á fyrra ári samningsins og að tekjutrygging hækki í 150 þúsund á fyrsta samningsárinu. Undir lok samningstímans verði tekjutrygging orðin 165 þúsund krónur. „Þetta er grunnforsenda fyrir því að geta samþykkt slíkan samning,“ segir hann. Þessu er Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsa- víkur ekki endilega sammála. „Það er mikill óróleiki í efnahagslífinu og ekki ráðlegt að semja til of langs tíma,“ segir hann og leggur til að samið verði einungis til eins árs. Þá væri hægt að sækja meiri launahækkun þegar aðrir hafa gengið frá sínum samningum. Verkalýðshreyfingin hafi oft verið gagnrýnd fyrir það að ganga snemma frá samningum. Vilhjálmur Birgisson segir að þessi hugmynd hafi lítið verið rædd en vel sé hugsanlegt að menn skoði þann möguleika, komi til þess að endurmeta þurfi stöð- una. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, segir að í dag ber- ist svör frá ríkisstjórninni um skattbreytingar fyrir þá lægst launuðu. „Við verðum að vita hvað ríkisstjórnin vill gera,“ segir hún. Ef svar fæst ekki frá stjórnvöld- um má búast við að deilunni verði vísað til ríkissáttasemjara fyrir helgi. ghs@frettabladid.is Hugmynd um að semja til eins árs Svör berast frá ríkisstjórninni í dag við kröfum um skattabreytingar. Sáttatil- laga verður lögð fram á morgun en hún er að hluta enn ómótuð. Skiptar skoð- anir eru innan Starfsgreinasambandsins. Hugmynd er um að semja til eins árs. SKIPTAR SKOÐANIR Skiptar skoðanir eru innan Starfsgreinasambandsins um þá sáttatillögu sem verkalýðshreyfingin hyggst leggja fram á fundi með fulltrúum Sam- tökum atvinnulífsins á morgun. Tillagan er enn ekki að fullu mótuð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GENGIÐ 08.01.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 119,8053 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 61,77 62,07 122,15 122,75 90,81 91,31 12,19 12,262 11,513 11,581 9,677 9,733 0,5632 0,5664 97,63 98,21 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.