Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 19
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Ármúla 42 · Sími 895 8966 Lærðu kínversku á skemmtilegan hátt Námskeið byrjar 13. janúar Sæmundur Kristjánsson matreiðslumeistari naut hátíðanna í dýrindis jólakúlu ítölsku Alpanna. „Ég var svo lánsamur að vera í hópi 200 Íslendinga sem Árni Sæmundsson smalaði saman í jólaskíðaferð til fjallaþorpsins Santa Katarina í ítölsku Ölpunum, en þar hefur skíðaferðamennska legið niðri um langa hríð þar til nú að uppbygging er hafin aftur. Við vígð- um þar spánnýtt hótel og áttum fjöllin ein, því enn er staðurinn laus við massatúrisma en fullur af frið- sæld, fámenni og fegurð,“ segir Sæmundur Kristj- ánsson, eigandi veitingastaðanna Á næstu grösum, sem í þessari ferð eyddi jólum fjarri Íslandsbyggð í fyrsta sinn. „Santa Katarina stendur í þjóðgarði þar sem fjall- garðar, skóglendi og umhverfið allt er stórbrotið í fegurð sinni. Flesta dagana var heiðskírt og sólríkt, en þess á milli kyngdi niður hvítum jólasnjó þannig að maður fékk á tilfinninguna að vera staddur í feg- ursta jólakorti eða töfrandi jólakúlu,“ segir Sæmund- ur og skellir upp úr, og bætir við að ekki hafi hvarflað að honum að taka með sér íslenskan jólamat til Ítalíu. „Til hvers?“ spyr hann brosmildur. „Ítalir eru þekktir fyrir sælkeramatseld og við nutum þess í þeirra landi. Þótt ég sé matreiðslumaður reyni ég alltaf að stilla mig í útlöndum og njóta þess sem er í boði á hverjum stað, og þarna skorti ekkert upp á hátíðleikann eða velgjörning í mat og drykk,“ segir Sæmundur og rifjar upp aðfangadag í skíðabrekkun- um. „Þarna vorum við frúin og krakkarnir að skíða í frábæru færi þegar klukkan sló fjögur og við sögðum börnunum að nú væri aðfangadagur jóla. Þvílík for- réttindi; ekkert stress, bara friður og kyrrð í fjall- garðinum, og jólin að koma. Svo dóluðum við okkur niður brekkurnar til að fara í jólabaðið og borða jóla- matinn á hótelinu, og héldum síðar um kvöldið lítil jól í okkar vistarverum þar sem við opnuðum fáeina pakka og höfðum það notalegt saman,“ segir Sæmund- ur sem er alveg til í að sleppa takinu á íslenskum jólum aftur til að komast í slíka jóladýrð á ný. „Það er dálítil fyrirhöfn að komast til Santa Katar- ina, en hægt að fara styttri leið en við gerðum. Við ókum frá Þýskalandi í gegnum Alpana í alls sjö tíma og það var heldur langt fyrir börnin eftir flugferðina að heiman, en algjörlega ógleymanlegur bíltúr sökum náttúrufegurðar. Fjölskyldan var alsæl með ferðina og þessar tvær vikur frá 22. desember til 5. janúar liðu hratt við útivist, hreyfingu, lúxusfæði, góða hvíld og samveru í undraverðu jólalandi. Ætli ég sé bara nógu hollur fósturjörðinni að grípa ekki hangikjöts- lærið með mér, en þarna var jólalegt fram úr hófi og gott að vera laus við lætin heima síðustu dagana fyrir jól og háannatíma matreiðslumanna í desember.“ thordis@frettabladid.is Skíðað í jólakorti BENSÍNIÐ SPARAÐ Runólfur Ólafsson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda kann ýmis ráð til að spara eldsneyti. Hann ráðleggur fólki meðal annars að aka á löglegum hraða. BÍLAR 2 MISSTI AF FLUGI Reynir Freyr Reynisson lagðist í þriggja vikna lestarferðalag um Evrópu fyrir tveimur árum, eftir að hafa misst af flugi heim frá Róm. FERÐIR 3 Sæmundur Kristjánsson er eigandi veitingahússins Á Næstu grösum og naut þess að láta stjana við sig í mat og drykk í ítölsku Ölpunum yfir hátíð- arnar á milli þess sem hann skíðaði í púðursnjó ofan við fjallaþorpið Santa Katarina. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM Laugavegi 51 • s: 552 2201
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.