Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 6
6 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR VIÐSKIPTI Aðgangur fjármálafyrir- tækisins Existu að lausu fé nægir til að mæta endurfjármögnunar- þörf félagsins nær allt árið, að sögn Erlends Hjaltasonar, for- stjóra félagsins. Gengi bréfa Existu hefur lækk- að hratt síðustu vikur, nokkuð í takt við lækkanir á stærstu eign- um félagsins erlendis. Sam- kvæmt útreikningi blaðsins nemur sú lækkun um þessar mundir nálægt 33 milljörðum króna. Í kjölfarið hafa vaknað spurningar um getu félagsins til að standa við að sölutryggja til hálfs væntanlegt hlutafjárútboð Kaupþings. „Í áætlunum okkar tökum við að sjálfsögðu tillit til þeirra skuld- bindinga sem Exista hefur tekist á hendur, til dæmis í væntanlegu útboði Kaupþings, jafnvel þótt fjárhæð þess hlutar sem mun falla Exista í skaut í útboðinu sé óviss á þessari stundu,“ segir Erlendur og bætir við að félagið leggi ríka áherslu á öfluga lausafjárstöðu. „Aðgangur okkar að lausu fé í árs- lok mætir endurfjármögnunarþörf félagsins til næstu 50 vikna og eru þá ekki taldar með auðseljanlegar eignir.“ Hann bendir jafnframt á að endurfjármögnun á árinu nemi einungis um fjórðungi af heildar- fjármögnun síðasta árs. - óká Gera ráð fyrir skuldbindingum vegna hlutafjárútboðs Kaupþings á næstu vikum: Lausafé Existu dugar út árið Á AÐALFUNDI 2007 Engu er líkara en þeir séu í þungum þönkum Ágúst Guðmundsson stjórnarmaður (lengst til hægri) og Erlendur Hjaltason, forstjóri Existu. Til vinstri glittir í Lýð Guðmunds- son stjórnarformann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BANDARÍKIN Búðarþjófur í Grand Rapids í Bandaríkjunum liggur á gjörgæsludeild með stungusár á maga eftir misheppnaða þjófnað- artilraun á mánudag. Hann reyndi að stinga af á hlaupum með stolinn eldhúshníf innan klæða, en hrasaði þannig að hann stakkst í magann á honum. Samkvæmt fréttavef CBS fundu lögregluþjónar manninn liggjandi meðvitundarlausan á gólfi verslunarinnar, og komu honum þegar í stað á sjúkrahús. Honum var sleppt úr varðhaldi þar sem brot hans þótti ekki alvarlegt. - sþs Hrasaði á harðahlaupum: Stakk sig á stolnum hníf Stækka N1 í Ártúnsbrekku N1 hyggur á mikla stækkun starfs- stöðvar sinnar við norðanverða Ártúnsbrekku. Byggja á nýja 515 fermetra þjónustustöð og hins vegar verður byggt um 500 fermetra dekkja- og smurverkstæði með dekkjahóteli. Metanlögn frá Álfsnesi verður tengd inn á stöðina sem jafnframt verður átöppunarstaður fyrir metangáma. REYKJAVÍK Landvarðanámskeið 2008 Umhverfi sstofnun auglýsir námskeið í landvörslu sem haldið verður í húsnæði stofnunarinnar, Suðurlandsbraut 24, í febrúar og mars n.k. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvar- ðaréttindi og forgang um landvörslustörf á vegum Um- hverfi sstofnunar. Námskeiðsgjald er kr. 65.000.-. Námskeiðið er háð því að viðunandi þátttaka fáist. Umsóknum skal skilað bréfl ega til Umhverfi sstofnunar, Suðurlandsbraut 24 eða í tölvupósti á netfangið ust@ust.is fyrir 1. febrúar 2008. Í umsókn komi fram nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Skilyrði er að umsækjendur séu fæddir 1988 eða fyrr. Aðallega er kennt um helgar og á kvöldin á virkum dögum og er lengd námskeiðsins í heild sinni 120 klst. Nánari upplýsingar um dagskrá námskeiðsins eru á heimasíðu Umhverfi sstofnunar www.ust.is. SÓMABAKKAR Nánari uppl‡singar á somi.is *Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr. PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING* Karlmaður áfram í farbanni Karlmaður sem grunaður er um að hafa ekið á fjögurra ára dreng í Reykjanesbæ í nóvember með þeim afleiðingum að drengur- inn lést hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi farbann til 29. janúar. DÓMSTÓLAR HOLLAND, AP Prestur frá Síerra Leóne lýsti hvernig uppreisnar- menn frömdu fjöldamorð á 101 manni, limlestu börn og nauðguðu konum þegar hann bar vitni við réttarhöldin yfir Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líberíu, hjá stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi í gær. Önnur vitni lýstu því hvernig þau voru misnotuð kynferðislega og aflimuð af upp- reisnarmönnunum sem rændu gimsteinanámur í Síerra Leóne. Taylor er sagður hafa stutt upp- reisnarmennina sem rændu dem- öntum að andvirði eins til 7,7 millj- arða króna á ári og smygluðu gegnum Líberíu. Taylor notaði gróðann til vopnakaupa fyrir upp- reisnarmennina sem leiddi til þess að farið var að tala um „blóðdem- anta“. Taylor, sem er 59 ára gamall, er sakaður um að hafa skipulagt nauðganir, morð og limlestingar í Síerra Leóne. Hann hefur lýst sig saklausan af öllum ellefu ákæru- liðunum. Réttarhöldin yfir Taylor hófust á ný á mánudag eftir sex mánaða hlé. Var þeim frestað í júní síðast- liðinn eftir fyrsta dag þeirra sem einkenndist af ringulreið. Taylor lét ekki sjá sig og rak lögfræðing sinn. Taylor er fyrsti fyrrverandi leiðtogi Afríkuríkis sem kemur fyrir alþjóðlegan dómstól. - sdg Réttarhöld yfir fyrrverandi forseta Líberíu við stríðsglæpadómstólinn í Haag: Morð og limlestingar á ábyrgð Taylors CHARLES TAYLOR Sat svipbrigðalaus meðan vitni sögðu frá grimmdarverkum uppreisnarmanna sem störfuðu í skjóli hans. NORDICPHOTOS/AFP LEIKSKÓLAR Mannekla er á leik- skólum hjá Reykjavíkurborg. Af tæplega 1.400 starfsmönnum vantar um tíu prósent, eða hátt í tvö hundruð í 130 stöðugildi. Af 80 leikskólum í borginni eru 25 fullmannaðir. Á tíu leikskóla vantar starfsmenn í hálft til eitt stöðugildi, á 25 leikskóla vantar fólk í eitt til þrjú stöðugildi og á átján leikskóla vantar fólk í þrjú stöðugildi eða fleiri. Miðað er við 1. janúar. Sigrún Elsa Smára- dóttir, for- maður Leik- skólaráðs, segir að leik- skólarnir hafi allar klær úti til að manna starfsemina. Hver leik- skóli hafi sína eigin viðbragðsáætlun ef fólk vantar eða veikindi koma upp. Illgerlegt sé að koma upp neyðarteymi til að fara á milli leikskóla þar sem fólk vilji frekar ráða sig á fastan stað. Þá geti leikskólarnir aðeins tekið inn fólk sem ekki hefur vald á íslensku að takmörkuðu leyti. Sigrún Elsa segir að ýmissa nýrra ráða sé leitað. Þannig hafi neyðarteymi verið rætt, einnig samstarf grunnskóla og leikskóla og að efla samstarf við aðra, til dæmis myndlistarskóla. Hún segir að fáir eldri borgarar hafi sóst eftir vinnu á leikskóla en að sjálfsögðu séu ráðnir 18 ára og eldri. Launin hafi hækkað um 11 prósent 1. nóvember. Ástandið er sums staðar svo slæmt að leikskólar eru farnir að senda börn heim. Þannig þurfa börn á leikskólanum Hálsaborg að vera einn dag heima af hverj- um þremur. Á Hálsaborg vantar fimm til sex starfsmenn af tólf. Eygló Guðmundsdóttir, formaður Foreldrafélagsins á Hálsaborg, segir að ástandið sé hræðilegt. „Ég leysi þetta með því að taka barnið með mér í vinnuna,“ segir hún. „Mér finnst ömurlegast að heyra viðbrögð okkar foreldr- anna við þessar aðstæður. Við látum ekki nógu mikið í okkur heyra. Við reynum alltaf að leysa málið, taka frí í vinnunni eða bjarga málinu með því að senda barnið til ömmu og afa. Það hefur ekki nógu mikil áhrif út í þjóðfé- lagið.“ Ólöf Helga Pálmadóttir, leik- skólastjóri á Hálsaborg, segir að auglýst hafi verið eftir starfs- mönnum og fyrirspurnir borist. „Fólk er ekki mikið í atvinnuleit í desember,“ segir hún og telur lausnina tæpast felast í að draga úr kröfum. „Við erum að vinna í þessu.“ Um 200 börn eru á biðlista, tæp sjötíu hafa fengið loforð um pláss en ekki komist inn. ghs@frettabladid.is Vantar starfsmenn á helming leikskóla Hátt í tvö hundruð starfsmenn vantar á leikskóla hjá borginni. Einn eða fleiri starfsmenn vantar á 55 af 80 leikskólum. Á átján skóla vantar þrjá eða fleiri. Á Hálsaborg vantar helming starfsmanna. Þar eru börnin heima þriðja hvern dag. Á LEIKSKÓLA ER GAMAN Mannekla er á leikskólunum hjá Reykjavíkurborg og hátt í tvö hundruð starfsmenn vantar, eða um tíu prósent starfsmanna. SIGRÚN ELSA SMÁRA- DÓTTIR Fylgist þú með aðdraganda bandarísku forsetakosning- anna? JÁ 54,7% NEI 45,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Telur þú að menntamálaráð- herra eigi að láta friða húsin við Laugaveg 4-6? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.