Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 46
26 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Óskarsverðlaunaleikkonan Nicole
Kidman á von á barni með
eiginmanni sínum, sveitasöngvar-
anum Keith Urban. Kidman, sem
er fertug, á tvö börn fyrir sem
hún ættleiddi með fyrrverandi
eiginmanni sínum Tom Cruise. Í
fyrra viðurkenndi hún að hafa
misst fóstur tvívegis á meðan á
tíu ára hjónabandi þeirra stóð.
Kidman, sem fékk Óskarinn
árið 2003 fyrir myndina The
Hours, giftist Urban árið 2006. Í
viðtali í fyrra sagðist hún
endilega vilja eignast barn með
Urban. „Það kemur í ljós. Það er í
höndum guðs,“ sagði hún.
Kidman á
von á barni
Ef allt gengur að óskum verður
kvikmynd Ridleys Scott um leiðtoga-
fundinn í Höfða tekin upp hér á landi.
Og í hinum fullkomna heimi verða
Hollywood-stjörnur í hlutverki Íslend-
inga sem léku stórt hlutverk á meðan
á þessum sögulega fundi stóð. Freyr
Gígja Gunnarsson beitti hávísindaleg-
um aðferðum við að aðstoða Scott og
félaga hans í að finna hentuga leikara
fyrir íslensku þjóðhetjurnar.
Með forritinu My Heritage er hægt að finna
með nákvæmum útreikningum hvaða tvífara
hver á. Með gömlum myndum úr ljósmynda-
safni Fréttablaðsins var unnt að leggja mat á
hvaða leikarar hentuðu best í hlutverk
Íslendinganna. Þegar hefur verið nefnt að
Warren Beatty leiki Ronald Reagan og
Anthony Hopkins verði Gorbatsjov. Með
hliðsjón af því má fastlega gera ráð fyrir að
engu síðri stórstjörnur verði í hlutverkum
Íslendinganna sem léku stórt hlutverk á
meðan á leiðtogafundinum stóð.
„Á bak við þessar luktu dyr...“, setning
sem er mörgum enn í fersku minni, sagði
hinn ungi sjónvarpsfréttamaður Hallur
Hallsson þar sem hann stóð fyrir utan Höfða,
mitt á meðal helstu fréttastofa heims, á
meðan Ronald Reagan og Mikhail Gorbat-
sjov sátu á rökstólum og reyndu að binda
enda á kalda stríðið. Þjóðin stóð á öndinni,
beið eftir því að eitthvað gerðist og á meðan
þurfti Hallur ásamt félögum sínum á RÚV
að lýsa því sem fyrir augu bar. Var hurðar-
húnninn á Höfða að hreyfast? Skyldi friður
komast á með þessum fjandmönnum sem
héldu heimsbyggðinni í heljargreipum?
Hallur man vel eftir þessum tíma en hann
var þá nýbyrjaður á fréttastofu Sjónvarps-
ins. „Mér líst bara vel á þessa hugmynd
Scotts enda er þetta sögulegur fundur,“ segir
Hallur en bætir því við að þetta hafi nú ekki
verið í fyrsta skipti sem augu alheimsins
beindust að Íslandi. Menn skyldu ekki
gleyma glímu Spasskís og Fischers um
heimsmeistaratitilinn í skák fjórtán árum
áður í Laugardalshöllinni. „En þarna voru
þungavigtarmennirnir sjálfir mættir og það
vakti að sjálfsögðu gríðarlega athygli,“ segir
Hallur.
Hollywood-stjörnur leika Íslendinga
VIGDÍS OG NAOMI WATTS
Glæsileiki Vigdísar Finn-
bogadóttur þegar hún
rölti með Ronald Reagan
vakti mikla athygli. Naomi
Watts þykir samkvæmt
My Heritage líklegust til
að hreppa hnossið.
HACKMAN OG INGVI HRAFN Hið
hörkulega útlit Ingva hefur síður en
svo elst af honum og því leikur ekki
nokkur vafi á að eðalnaglinn Gene
Hackman væri ákaflega heppilegur í
hlutverk íslenska fréttastjórans.
IDLE OG HALLUR Þrátt fyrir að
vera að lýsa einhverjum merkasta
viðburði í Íslandssögunni tókst
Halli alltaf að hafa létt yfirbragð yfir
fréttum sínum frá Höfða. Breski
húmoristinn Eric Idle, kunnastur
fyrir störf sín með Monthy Python,
er samkvæmt My Heritage líkastur
Halli og eflaust einn örfárra sem
gætu gert setninguna „Behind
these closed doors...“ að sinni.
Kannski er þarna líka kominn
titillinn á myndina.
WILSON OG STEINGRÍMUR Hið hæfilega kærulausa
fas forsætisráðherrans Steingríms Hermannssonar
kom erlendum fréttamönnum skemmtilega á óvart.
Og því er ekki að undra að tvífaraforritið skuli velja
Owen Wilson í hlutverk Denna.
COSTNER OG
ÖGMUNDUR Þingmað-
ur Vinstri grænna var
einn örfárra frétta-
manna sem lögðu leið
sína upp á flugvöll
þegar Gorbatsjov
mætti til landsins. Og
það skyldi ekki koma
neinum á óvart ef
Kevin Costner fengi að
bregða sér í hlutverk
íslenska sjónvarps-
mannsins.
Hætt hefur verið við Golden Globe-verðlaunahátíð-
ina vegna verkfalls handritshöfunda í Bandaríkjun-
um. Þess í stað verður haldinn klukkutímalangur
blaðamannafundur þar sem nöfn sigurvegaranna
verða lesin upp.
Útvarpsmaðurinn Ívar Guð-
mundsson hefur lýst hátíðinni
undanfarin ár á Stöð 2 og er
vitaskuld afar svekktur yfir
tíðindunum. „Maður var búinn
að gíra sig upp í næturvakt 13.
janúar en ætli maður
verði ekki bara að
fylgjast með frétta-
mannafundinum,“
segir Ívar, sem
hefur einnig lýst
Óskarsverðlaun-
um undanfarin ár. „Þetta er miklu léttari hátíð en
Óskarinn og skemmtilegri að því leytinu til að þarna
kemur bæði sjónvarps- og kvikmyndaliðið saman.
Síðan er það spurning hvort þetta teygist í Óskarinn.
Þetta er allt komið í tóman hnút,“ segir hann. „Þetta
sýnir samt styrkleika þessa félags handritshöfunda í
Bandaríkjunum. Þeir hafa gríðarleg ítök.“
Fjölmargir leikarar í Hollywood höfðu heitið því að
sniðganga verðlaunahátíðina ef hún
færi fram auk þess sem sjónvarps-
stöðvar ætluðu ekki að sýna frá
henni. Þrátt fyrir að einungis verði
haldinn blaðamannafundur hafa
samtök handritshöfunda einnig
hvatt stjörnur Hollywood til að
sniðganga hann. Verður George
Clooney á meðal þeirra sem ætla að
sýna stuðning sinn í verki. - fb
Svekktur yfir Golden Globe
ÍVAR GUÐMUNDSSON Útvarps-
maðurinn knái er ósáttur við
það að hætt hafi verið við
Golden Globe-verðlauna-
hátíðina.
GEORGE CLOONEY
Hjartaknúsarinn
ætlar að sniðganga
blaðamannafundinn sem
haldinn á sunnudag.
> ENDURVINNANLEG TÍSKA
Marc Jacobs, Stella McCartney, Bur-
berry, Calvin Klein og Versace eru á
meðal hönnuða sem munu taka þátt
í sérstakri tískusýningu í lok mánaðar.
Hver hönnuður mun sýna eitt sköp-
unarverk, og á að leggja áherslu á
endurvinnanleg efni og aðferðir sem
ekki menga. Sýningin mun ýta tísku-
vikunni í New York úr vör.
Mariah Carey hefur vísað orðrómi
þess efnis að hún hyggi á samstarf
við Jennifer Lopez alfarið á bug, og
segir að það myndi „aldrei gerast“.
Aðspurð um mögulegan samsöng
þeirra, í viðtali við stjórnanda
skemmtiþáttarins Inside Holly-
wood, sagði söngkonan að hún
„myndi heldur vera á sviði með
svíni. Dúett með mér og Jennifer
Lopez verður aldrei að veruleika.“
Það er vart hægt að segja að það
hafi verið hlýtt á milli söngkvenn-
anna tveggja í gegnum tíðina. Sá
kuldi í samskiptum þeirra á rætur
að rekja til ársins 2001, þegar
Jennifer notaði stef úr tveimur
lögum Mariuh úr myndinni Glitter,
til að búa til tvær útgáfur af laginu
I’m Real, af plötunni J-Lo.
Svín skárri en J.Lo
SYNGUR FREKAR
MEÐ SVÍNI Mariah
Carey útilokar að
hún og Jennifer
Lopez syngi saman
dúett, en það hefur
andað frekar köldu
á milli söngkvenn-
anna á síðustu
árum.
Umslag plötu Bjarkar Guðmunds-
dóttur, Volta, var það níunda
flottasta á síðasta ári samkvæmt
lesendum
bandaríska
tónlistartíma-
ritsins Rolling
Stone.
Í efsta sæti
var umslagið
við plötu
Arcade Fire,
Neon Bible, og númer tvö var Sky
Blue Sky með Wilco. Í þriðja
sætinu var platan Year Zero með
Nine Inch Nails. Á meðal hljóm-
sveita sem voru á eftir Björk á
listanum eru Smashing Pumpkins,
Interpol, White Stripes og Mika.
Myndband við lag Bjarkar,
Declare Independence, var
jafnframt valið sautjánda besta
myndband ársins af lesendum
tímaritsins.
Umslagið í
níunda sæti
Leikarinn Stephen Fry er orðinn
þreyttur á því að vera alltaf látinn
leika samkyn-
hneigða eða
einhleypa menn.
„Af því að allir
vita að ég er
hommi þá
virðist vera
erfitt fyrir fólk
að sannfærast ef
ég á í ástarsam-
bandi við konu í
bíómynd eða
sjónvarpsþætti,“ sagði Fry.
Honum finnst einnig undarlegt
að gagnkynhneigðum leikurum sé
ávallt hrósað fyrir að leika
samkynhneigða. „Fólk segir: „En
hvað þú varst hugrakkur“. Hvers
vegna ætti það að vera eitthvað
erfitt fyrir mann að kyssa annan
mann?“ sagði hann.
Fær aldrei að
kyssa konu
STEPHEN FRY