Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 24
9. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● nýir bílar
Mikið breytt þriðja kynslóð
Subaru Impreza kom á markað
í haust, en hún var valin bíll
ársins á Íslandi í sínum flokki.
Reynsluakstur á Impreza 2,0R
með sjálfskiptingu.
Subaru-bílar hafa ekki að ástæðu-
lausu notið mikilla vinsælda á Ís-
landi, enda henta þeir íslenskum
aðstæðum sérlega vel þar sem
þeir eru allir með sítengt aldrif.
Auk þess hefur áreiðanleiki þeirra
reynst með því besta sem gerist,
sem endurspeglast í toppeinkunn-
um í könnunum á ánægju eig-
enda.
Það sætir því nokkrum tíðind-
um þegar alveg ný kynslóð Su-
baru-bíls kemur á markað. Nú er
það Imprezan, sem keppir í sama
stærðarflokki og Volkswagen Golf
og Toyota Auris, sem hefur verið
hannaður upp á nýtt frá grunni.
Þetta er þriðja kynslóð Imprez-
unnar frá því Subaru með því
nafni kom fyrst fram á sjónar-
sviðið snemma á tíunda áratugn-
um. Og óhætt er að segja að þessi
kynslóðaskipti séu allbyltingar-
kennd.
Áður var aðeins hægt að fá Im-
prezu fjögurra dyra með skotti eða
sem fimm dyra skutbíl. Nú hefur
Subaru ákveðið að færa útlit Im-
prezunnar nær „meginstraumn-
um“ í þessum flokki bíla. Hún
fæst nú aðeins sem fimm dyra
hlaðbakur, með sléttu og felldu út-
liti sem sker sig lítið frá öðrum
bílum, ólíkt fyrirrennaranum.
Með hlaðbaksforminu er nýja
Imprezan nokkru styttri en fyrir-
rennarinn, þar sem yfirbyggingin
teygir sig nú mjög skammt aftur
fyrir afturhjólin. En flest önnur
mál hafa stækkað; hjólhaf, spor-
vídd, breidd og hæð.
Farþegarými hefur líka auk-
ist og hönnun innanrýmisins tekið
miklum stakkaskiptum. Farang-
ursrýmið hefur hins vegar minnk-
að og mælist nú um 300 lítrar.
Subaru-aðdáendur sem kunna
að hafa áhyggjur af því að nýja
Imprezan sé „of venjuleg“ geta
huggað sig við að þegar kemur að
fjöðrun og aksturseiginleikum er
nýi bíllinn enginn eftirbátur fyr-
irrennaranna. Hann liggur mjög
vel á vegi, sérstaklega í beygjum,
og rásfestan og stöðugleikinn sem
lágur þyngdarpunktur boxer-vél-
arinnar og sítengt aldrifið gefa
njóta sín jafnvel enn betur í þess-
um bíl en hjá fyrri kynslóð.
Þeir sem vilja njóta aksturseig-
inleikanna best ættu þó að velja
beinskiptu útgáfuna, þar sem sá
gírkassi er fimm gíra með háu og
lágu drifi og mekanískum milli-
kassa. Sjálfskipta útgáfan, eins
og reynsluakstursbíllinn var, er
aðeins fjögurra gíra og er mun
svifaseinni í öllum viðbrögðum en
sá beinskipti. Þetta endurspeglast
meðal annars í því að uppgefinn
hröðunartími úr núlli í hundrað er
fullum tveimur sekúndum meiri í
sjálfskiptu útgáfunni, 11,6 sekúnd-
ur í stað 9,6 í þeirri beinskiptu.
Í fyrstu fæst Imprezan einung-
is með tveggja lítra bensínvél,
sem nú skilar 150 hestöflum og
196 Nm togi. Það er tíu hestöflum
minna en sama vél skilaði áður, og
skrifast það sjálfsagt á nýjustu
útblástursreglur og tilraun til að
gera vélina sparneytnari.
Í reynsluakstrinum var reyndar
ekki að sjá að hún væri orðin neitt
sparneytnari en áður. Samkvæmt
aksturstölvunni eyddi hún yfir 11
lítrum á hundraðið, þótt uppgef-
in meðaleyðsla sé aðeins 8,2 lítr-
ar. Reyndar eyða allir bílar meiru
við vetraraðstæður, þegar kalt er
og vindasamt og ekið er á grófum
vetrardekkjum. En svo virðist sem
raunverulega sparneytnir Subaru-
bílar verði ekki fáanlegir fyrr en
með nýju boxer-díselvélinni sem
boðað hefur verið að verði fyrst
fáanleg í Legacy í sumar og síðar
bæði í Forester og Impreza.
Auk tveggja lítra vélarinnar á
Imprezan að fást með 1,5 lítra, 107
hestafla vél. Hún verður eflaust
sparneytnari, en bóka má að hún
þurfi að erfiða mun meira til að
hreyfa þennan ríflega 1.300 kílóa
bíl. Síðar mun túrbóútgáfan WRX-
Sti fást með yfir 300 hestafla vél,
en með henni viðheldur Subaru
þeirri hefð að bjóða upp á götuút-
færslu af heimsmeistarakeppni-
rallbíl fyrirtækisins.
Sjálfskiptur kostar Impreza
2,0R í Sport-útfærslu, eins og
reynsluakstursbíllinn, 2.590.000
kr. Það er þokkalegt verð að teknu
tilliti til búnaðar í samanburði við
keppinauta. Jafn vel búinn Legacy
kostar reyndar aðeins 200.000 kr.
meira, sem undirstrikar hvað sá
bíll er á góðu verði þar sem þar
er um mun stærri og meiri bíl að
ræða. audunn@frettabladid.is
REYNSLUAKSTUR
Ný og gerbreytt Impreza
Nýja Imprezan fæst aðeins sem hlaðbakur og sker sig í útliti ekki lengur úr öðrum bílum i sínum flokki, ólíkt fyrirrennaranum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ný og nútímalegri hönnun á innanrými.
Nýr Audi A4 verður kynntur í maí á Íslandi en hann þykir sport-
legri útlits en forverinn og reyndar einn sportlegasti stallbakur-
inn í millistærðarflokki.
Minni slútun er yfir framhjólunum og vélarhlífin er lengri,
sem og hjólhaf bílsins, en alls er Audi A4 4,7 metrar á lengd. Í
drifrásinni er sú breyting að staðsetning mismunadrifs og kúpl-
ingar hefur breyst, sem gerir mögulegt að færa framásinn fram
um 154 millimetra. Þessi lausn tryggir ákjósanlega þyngdardreif-
ingu á ásana. Ný hönnun er á sportlegu fjöðrunarkerfinu, sem er
að mestum hluta úr áli sem dregur úr ófjaðrandi þyngd bílsins.
A4 er til með nýjum tæknibúnaði; Audi-akstursval (drive sel-
ect) lagar vél, sjálfskiptingu, stýringu og fjöðrunarkerfi að óskum
ökumanns. Audi-sportstýring (dynamic steering) lagar stýringu
að hraða bílsins og heldur honum stöðugum, jafnvel við ystu mörk
í akstri, með breytingum á beygjuhring hans á nánast rauntíma.
Stjórnbúnaður stýrir stífleika vökvafylltra höggdeyfa, sem leiðir
til sportlegri upplifunar og aukins öryggis í akstri.
Bifreiðin fæst með fimm vélum, allt frá 143 hestöflum til 265
hestafla. Fjögurra strokka bensínvélin er með forþjöppu eins og
díselvélarnar. Báðar gerðir eru með beinni innsprautun. Allar vél-
arnar eru þýðgengar og skila jafnri vinnslu á breiðu snúningssviði
og eyðsla þeirra er minni en í eldri gerðum bifreiðarinnar.
A4 fæst með nokkrum gírskiptingagerðum; sex gíra handskipt-
ingu, tiptronic-sjálfskiptingu, multitronic-reimskiptingu og annað
hvort framhjóladrifinn eða með sítengdu quattro-fjórhjóladrifi,
sem hefur verið endurbætt.
Nánar á www.hekla.is - rve
Vígalegur á velli
Nýr Audi A4 þykir sportlegri útlits en forverinn.
Nýr Citroën C5 kemur á markað í Evrópu vorið 2008 og til Brim-
borgar um haustið, en bifreiðin þykir hafa tekið töluverðum breyt-
ingum til betri vegar.
Meðal breytinga sem gerðar hafa verið á þessum meðalstóra
fjölskyldubíl má fyrst nefna útlitsbreytingar.
Bíllinn er þannig lengri og breiðari en fyrirrennari hans. Nýr
framendi hefur sterka nálægð enda loftinntakið stærra og eftir-
tektarverðara en áður og með innbyggðum þokuljósum. Þá ljær
bogadregin lína yfirbyggingarinnar bílnum glæsilegan heildar-
svip, auk þess sem afturhluti bílsins þykir ekki vera síðri en flott-
ur framendi.
Gæði hins nýja C5 þykja síðan koma vel fram í farþegarýminu.
Stýrið er með sína föstu miðju líkt og í C4 og sæti með stillingar-
minni prýða bifreiðina.
Hið þriggja stiga vökvadrifna fjöðrunarkerfi sem Citröen er
þekkt fyrir verður í nýju gerðinni. Nokkrar gerðir bensín- og
díselvéla verða í boði í nýjum C5, meðal annars sex strokka og 208
hestafla díselvél með forþjöppu.
Nánari upplýsingar um Citröen C5 hjá Brimborg, www.brim-
borg.is. - rve
Aldrei verið glæsilegri
Nýr Citroën C5 kemur til Brimborgar í haust.
IMPREZA 2,0R SPORT
Vél: 4 str. H, 1994 ccm
Afl : 150 hö/196 Nm
Skipting: 4 þrepa sjálfsk.
Eigin þyngd: 1.360 kg.
Hröðun 0-100 km: 11,6 s.
Uppg. meðaleyðsla: 8,2 l
PLÚS: Aksturseiginleikar
MÍNUS: Svifasein sjálfskipting,
eyðsla
Verð: 2.590.000 kr.
Umboð: Ingvar Helgason