Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 10

Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 10
10 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR SJÁVARÚTVEGUR Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir alþingismenn, sérstaklega úr röðum Frjálslynda flokksins, sverta sjávarútveginn með málflutningi sínum og að byggða- stefna stjórnvalda reynist Eyjamönnum erfiðari en aflabrestur. „Einstakir þingmenn hafa jafnvel leyft sér að halda því fram að umhverfi sjávarút- vegsins stuðli að hrakförum einstakl- inga og fjölskyldna, gjaldþrota og skilnaða, sundrun fjölskyldna og hafi lagt líf margra í rúst,“ segir bæjarstjór- inn. „Það er algerlega ótækt þegar atvinnulíf okkar Eyjamanna er svert á þann hátt og ekki hægt að ætlast til að ég eða aðrir þeir sem eru stoltir af þessari atvinnugrein sitjum þegjandi undir slíkri umræðu. Orð eins og sægreifar og gjafakvóti eru notuð um viðskiptamenn sem veðja á sjávarútveg og velja að fjárfesta í undirstöðu atvinnugrein okkar íslendinga.“ Aðspurður hvaða þingmenn eigi í hlut segist hann ekki vilja nafn- greina neina sérstaka en að þeir komu flestir úr röðum Frjálslynda flokksins en þó sé þetta einnig viðhaft af þingmönnum annarra flokka. „Við í Vestmannaeyjum höfum oft staðið af okkur aflabrest en hins vegar er það byggðastefna stjórnvalda reynist okkur mun erfiðari viðureignar,“ segir Elliði. - jse Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar ósáttur: Þingmenn sverta sjávarútveginn TYRKLAND, AP Tyrknesk yfirvöld greindu frá því í gær að sá sem grunaður er um að hafa sprengt bílsprengjuna sem banaði sex manns í borginni Diyarbakir í síðustu viku hefði verið handtek- inn. Hann er sagður vera úr röðum herskárra aðskilnaðarsinn- aðra Kúrda. Sex aðrir, sem grunaðir eru um að tengjast tilræðinu, hafa einnig verið handteknir. Tilræðinu var beint gegn herrútu sem ók um götu í Diyarbakir síðastliðinn fimmtu- dag. Sex manns dóu, þar af fimm námsmenn. Yfir 30 hermenn særðust en enginn þeirra dó. - aa Tilræðið í Diyarbakir: Meintur tilræð- ismaður tekinn VETRARRÍKI Faðir og sonur ganga hönd í hönd í almenningsgarði í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu. Risavaxnar trjá- greinar slúta yfir göngustíginn vegna snjóþyngdarinnar, en snjó hefur kyngt þar niður frá ársbyrjun. NORDICPHOTOS/AFP SRÍ LANKA, AP Ráðherra á Srí Lanka var drepinn með veg- sprengju skammt norður af höfuðborginni Kólombó í gær. Tamílatígrum, hreyfingu aðskiln- aðarsinnaðra tamíla, var umsvifa- laust kennt um tilræðið. Þetta er í fyrsta sinn sem tekst að myrða háttsettan fulltrúa stjórnvalda á Srí Lanka í hálft annað ár. Sprengjan tætti í sundur bíl ráðherra þjóðaruppbyggingar- mála, D.M. Dassanayake, að sögn talsmanns hersins. Aðeins fáeinir dagar eru síðan stjórnin sagði upp vopnahléssam- komulaginu við Tamílatígra, en því hafði verið spáð að aukin harka myndi færast í borgara- stríðið í kjölfarið. - aa Borgarastríðið á Srí Lanka: Vegsprengja banar ráðherra SPRENGDUR Sérstyrktur Toyota-jeppi ráðherrans stóðst ekki sprenginguna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GULLBERG VE MEÐ NÓTINA Á BRYGGJ- UNNI Bæjarstjórinn segir að Eyjamenn viti hvernig beri að mæta aflabresti en hins vegar sé við mun rammari reip að draga þegar kemur að byggða- stefnu stjórnvalda. ELLIÐI VIGNISSON SJÁVARÚTVEGUR Loðna finnst á allstóru svæði norður af Langa- nesi, og er á hraðri leið austur með landinu. Nokkur skip eru við veiðar og fyrstu loðnunni var landað á Þórshöfn á mánudags- kvöld. Loðnan er ekki í kjörstærð til frystingar; er blönduð og átulaus. Upphafskvótinn fyrir vetrar- vertíðina nú er 205 þúsund tonn en af því magni ganga 122 þúsund tonn til íslenskra útgerða. Norðmenn, Færeyingar og Grænlendingar eiga loðnukvóta við Ísland. Markaðir fyrir frysta loðnu eru taldir þokkalegir. Verðmæti útgefins kvóta er talið nema um fimm milljörðum króna, en máli skiptir fyrir hvaða markaði loðnan er unnin. Helstu markaðir fyrir frysta loðnu og loðnuhrogn eru í Japan og Austur-Evrópu. - shá Fyrsta loðnan á land: Töluvert magn af loðnu nyrðra LOÐNUSTEMNING Mjög færist í vöxt að loðna sé fryst í landi eða um borð í skipunum. STJÓRNSÝSLA Össur Skarphéðins- son iðnaðarráðherra telur Guðna A. Jóhannesson, nýráðinn orku- málastjóra, líklegastan til þess að hleypa nýju lífi starfsemi Orku- stofnunar. Þetta kemur fram í rök- stuðningi Össurar fyrir ráðningu Guðna en Ragnheiður Þórarins- dóttir aðstoðarorkumálastjóri ósk- aði eftir rökum fyrir ráðningu þar sem hún taldi sig vera með betri menntun og reynslu til að gegna starfinu. Í rökstuðningi Össurar segir að ekki þurfi að efast um sterka stöðu Guðna í háskólasamfélaginu. „Hann hefur í tvígang verið met- inn hæfastur í alþjóðlegri sam- keppni margra doktora um próf- essorsembætti við Konunglega Verkfræðiháskólann í Stokkhólmi, fyrst 1990, er hann valinn hæfast- ur til þess að gegna stöðu rann- sóknarprófessors til sex ára, og síðan 1993, er hann valinn úr stór- um hópi til þess að vera æviráðinn prófessor við Verkfræðiháskól- ann,“ segir meðal annars í rök- stuðningnum. Þá er reynsla hans af nýsköpun- arstarfi og stjórnsýsluverkefnum einnig talin honum til tekna. „Hann hefur átt þátt í að stofna nokkur sprotafyrirtæki á Íslandi og í Sví- þjóð, starfað sem stjórnandi og setið í stjórn nokkurra fyrirtækja. Hann er einstaklega hæfur til þess að sinna nýsköpunarstarfi eins og ráða má af því að hann hefur aflað nokkurra einkaleyfa fyrir upp- finningar sínar,“ segir enn fremur í rökstuðningnum. Ragnheiður segir rökstuðning- inn ekki bæta neinu við það sem hún hafi talið, það er að hún sé með að minnsta kosti jafn góða menntun og meiri reynslu af stjórnsýslu- störfum. „Mér finnst MBA- námið mitt, sem ég er með til viðbótar við doktorsnám í verkfræði, ekki metið nægilega vel ef litið er svo á að Guðni sé með meiri mennt- un en ég. Varðandi nýsköpunarþátt og reynslu af þess konar verkefn- um þá hefur Orkustofnun verið að breytast töluvert að undanförnu að það reynir orðið mikið á reynslu af stjórnsýslustörfum, sem ég tel mig hafa meiri reynslu af.“ Ragnheiður segist þó ætla að sinna starfi sínu áfram. „Ég hef ekki huga á öðru en að sinna mínum störfum en mér finnst ekk- ert athugavert við það að krefjast rökstuðnings þegar ráðið er í starf eins og það sem um ræðir. Það þarf að fara að leikreglum.“ magnush@frettabladid.is Guðni sagður hafa afburðahæfileika Össur Skarphéðinsson segir Guðna A. Jóhannesson geta hleypt lífi í Orkustofn- un. Ragnheiður Þórarinsdóttir aðstoðarorkumálastjóri segir rökstuðninginn engu breyta um sín sjónarmið. Hún ætlar að gegna störfum sínum áfram. GUÐNI A. JÓHANNESSON ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON BANDARÍKIN, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti í gær eindregnum stuðningi sínum við að Tyrkjum yrði veitt aðild að Evrópusambandinu. Kallaði hann Tyrkland „uppbyggilega brú“ á milli Vesturlanda og múslimalanda. Ummælin lét Bush falla í tilefni af heimsókn tyrkneska forsetans Abdullah Gül í Hvíta húsið. „Ég tel að Tyrkir gefi stórkostlegt fordæmi fyrir því hvernig hægt sé að láta lýðræði lifa í góðri sambúð við stórfengleg trúarbrögð eins og íslam og það er mikilvægt,“ sagði Bush á blaðamannafundi eftir viðræður forsetanna tveggja. Bush tók að auki fram að hann styddi baráttu tyrkneskra stjórnvalda gegn herskáum aðskilnað- arsinnum Kúrda í „Kúrdíska verkamannaflokknum“ PKK, handan við landamærin að Norður-Írak. Bush kallaði PKK óvin Tyrklands, Íraks „og alls fólks sem vill lifa í friði“. Heimsókn Güls til Washington er álitin mikilvæg- ur áfangi að bættum tengslum NATO-bandamann- anna tveggja, en margt hefur skyggt á þau frá innrás Bandaríkjamanna í Írak fyrir fimm árum. - aa Tyrklandsforseti leitar bættra tengsla við Bandaríkin í fyrstu heimsókn sinni vestur: Bush vill Tyrki inn í ESB BANDAMENN Forsetarnir Abdullah Gül og George W. Bush ávarpa fjölmiðla í garði Hvíta hússins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP RAGNHEIÐUR I ÞÓRARINSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.