Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 21
][ New York er skemmtileg borg heim að sækja. Hún er full af orku og lífi og þar er auðvelt að hafa nóg fyrir stafni. Sannkölluð heimsborg sem mikil upplifun er að koma til og ekki úr vegi að bæta henni á listann yfir áhugaverða staði.
Fyrir tveimur árum missti Reynir Freyr Reynis-
son af flugi sem varð til þess að hann lagðist í
þriggja vikna lestarferðalag um Evrópu.
„Fyrir tveimur árum fékk ég stutt frí í vinnunni og
ákvað að bregða mér til Rómar en þar þekki ég norska
stúlku. Þegar ég sæki borgir heim finnst mér albest að
þekkja einhvern sem hefur þar aðsetur. Þannig dettur
maður fljótt inn í hið daglega líf í stað þess að versla og
skoða mannvirki allan daginn,“ segir Reynir. Í Róm
gerðist hann meðlimur í pílukastsklúbbi og söng fót-
boltalög með Lazio-fótboltabullum en komst ekki yfir
að skoða Vatíkanið. „Hitt var örugglega jafn skemmti-
legt,“ ályktar Reynir.
Reyni varð það svo á að gleyma brottfarardeginum
og áttaði sig á því að hann ætti flug heim skömmu fyrir
brottför. Hann pantaði leigubíl og í hönd fór hálfgert
rallí um götur Rómar en engu að síður missti hann af
fluginu. Hann ákvað þó að gera gott úr hlutunum og tók
lest til Mílanó og þaðan til Parísar. „Þegar ég var kom-
inn þangað hélt ég reyndar að ég væri í Lyon. Ég var í
þrjá tíma að reyna að kaupa lestarmiða til Parísar sem
gekk frekar illa þar sem ég var á staðnum,“ útskýrir
Reynir.
„Í París hitti ég fjórar grískar stúlkur sem buðu mér
í heimsókn til háskólabæjarins Metz Ég tók vel í það
boð en stúlkurnar voru þó ekki væntanlegar þangað
fyrr en viku seinna.“ Reynir kíkti á kortið og sá að bær-
inn Nancy var nálægt Metz. „Þar hitti ég ansi ágætan
en drykkfelldan mann. Hann sýndi mér bæinn, bauð
mér að gista og spilaði óperur í botni allar nætur,“
segir Reynir. Svo lá leið hans til Metz þar sem hann
gisti hjá einni af grísku stúlkunum. Hún hafði boðið
fleirum til sín og var einn gestanna maður frá Mar-
okkó. Sá var á leið til Belgíu og bauð hann Reyni far.
„Ég stoppaði stutt í Belgíu og tók lest til Amsterdam.
Hún var troðfull af fólki og lá við handalögmálum á
hverri stoppistöð,“ segir Reynir. Hann kom til Amster-
dam í niðamyrkri og var hálf hræddur við ræningja og
annan óþverralýð. „ Ég gisti í nokkrar nætur en kíkti
svo á internetkaffihús og sá þar fjölda tölvupósta frá
vinnuveitanda mínum þar sem ýjað var að því að ég
þyrfti að fara að mæta í vinnu. Ég gat í raun ekki ferð-
ast mikið lengra í áttina heim nema með skipi svo ég
pantaði mér flug,“ útskýrir Reynir
Hann segist ennþá halda sambandi við Marokkó-
manninn og grísku stúlkurnar en hefur ekkert heyrt
frá drykkfellda óperuunnandanum.
vera@frettabladid.is
Á heimleið í þrjár vikur
Reynir heimsótti
norska vinkonu
sína í Róm.
Reynir ásamt grísku stúlkunum
sem hann kynntist í París.
Ævintýralegar Borgir Evrópu - Páskar 2008
Frá Kefl avík Akureyri Egilsstöðum
14.-20.mars (5 nætur) Kefl avík kr. 76,294
15.-19.mars (4 nætur) Akureyri kr. 74,294
20.-24.mars (4.nætur) Egilsstaðir kr. 74,294
Munið frábæru kennaratilboðin!
8.janúar 2008
Innifalið: Flug, skattar, **** hótel,
morgunmatur, rúta og fararstjórn.
Leyfðu jeppanum þínum að hvíla sig frá snjó og slyddu heima - á Saharasandi
MAROKKO í vor 2008.Draumurinn rætist
28 daga jeppaferð fyrir Íslendinga
2. - 28. april n.k.
verð 2440.- € á mann (miðað við tveggja manna áhöfn a bíl) frá
Seyðisfirði báðar leiðir
Íslenskumælandi túlkur er með í ferðinni.
Síðasti skráningardagur 31. janúar 2008 - nánari upplýsingar á heimasíðu
http://www.outdoor-travel-and-more.de/ mailto:info@outdoor-travel-and-more.de
0049-172 8887819 0049-251 778394
Alfred Tischer
Island - Grikkland /Albania - Marokko - Russland - Iran