Fréttablaðið - 09.01.2008, Page 28

Fréttablaðið - 09.01.2008, Page 28
 9. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● nýir bílar REYNSLUAKSTUR Nýr Land Cruiser 200 var frumsýndur um síðustu helgi. Toyota bauð blaðamönnum að reynsluaka bílnum á Kanaríeyj- um í lok nóvember. Land Cruiser-bíllinn kom fyrst á markað árið 1951 og er Land Cruiser 200 áttunda kynslóð bílsins. Hægt er farið í sakirnar með útlitsbreytingar á nýjum Land Cruiser. Enginn ætti þó að freistast til að draga of miklar ályktanir af því vegna þess að Land Cruiser 200 er hvort tveggja í senn meiri lúxusbíll og meiri torfærubíll en fyrirrennarinn. Útlitið bæði að utan og innan hvílir traustum fótum á fyrra út- liti bílsins. Land Cruiser 200 er þó hærri, lengri og breiðari en forver- inn. Hinar raunverulegu breyting- ar liggja þó fyrst og fremst í tækni- búnaði bílsins. Díselvélin, sem búist er við að verði sú sem meirihluti íslenskra kaupenda muni halla sér að, er 40 prósentum aflmeiri en í fyrirrenn- aranum en þó 4 prósentum spar- neytnari en sú vél. Sama er uppi á teningnum með bensínvélina. Hún er í senn aflmeiri og sparneytnari en áður. Fjöðrunarbúnaður bílsins er aldeilis magnaður. Um er að ræða sjálfvirkan búnað sem miðar að því að halda bílnum stöðugum óháð því undirlagi sem ekið er á. Stærsta nýjungin í nýjum Land Cruiser er hins vegar hið svo kall- aða Crawl Controle, eða skriðstýr- ing, sem þó er aðeins fyrir hendi í bensínbílum, að minnsta kosti fyrst um sinn. Sá búnaður virkar þannig að í lága drifinu er hraði bílsins stilltur á 1, 3 eða 5 km/klst þannig að bílstjórinn getur alfarið einbeitt sér að því verkefni að stýra bílnum í gegnum torfærurnar. Búnaðurinn aftengist svo sam- stundis sé annað hvort hemlað eða stigið á bensíngjöfina. Þetta er bún- aður sem leynir á sér og vakti mikla lukku allra sem reyndu. „We are studying,“ sögðu japönsku verk- fræðingarnir hjá Toyota aðspurðir um hvenær þessi magnaði búnaður kæmi í díselbílinn. Á Fuerteventura var nýja Land Cruisernum ekið um fjölbreytta slóða. Sannast sagna reyndist bíll- inn verulega umfram væntingar, sem voru þó ekki litlar. Fjöðrunar- búnaður bílsins vakti ekki síst at- hygli. Hann liggur vægast sagt ótrú- lega á veginum og tekur allt upp í mjög grófa vegi þannig að bílstjóri og farþegar haggast vart inni í bíln- um. Allur búnaður að innan er eins og best er á kosið í lúxusbíl, án þess að hægt sé að segja að borist sé á í útliti. Því má segja að Land Cruis- er 200 sé hvort tveggja í senn meiri lúxusbíll og meiri torfærubíll en fyrirrennarinn var. Toyotamenn kalla Land Cruis- er konung veganna og eru stoltir af afkvæminu. Það mega þeir líka vera. Þetta er afbragðsbíll fyrir þá sem vilja fyrsta flokks ökutæki með allan hugsanlegan búnað. Markhópur nýs Land Cruiser 200 er fólk á aldrinum 40 til 50 ára með uppkomin börn og góðar tekjur. Hið síðastnefnda er kannski ekki síst mikilvægt í ljósi þess hvað bíllinn kostar. steinunn@frettabladid.is Bíllinn sem beðið hefur verið eftir Útlit Land Cruiser 200 hefur ekki tekið stökkbreytingum. Hér fær heldur betur að reyna á skriðstýringuna. Sadayoshi Koyari, aðalhönnuður Land Cruiser 200, var stoltur af verki sínu og mátti vera það. Að innan er útlit bílsins klassískt og einfalt. LAND CRUISER 200 Vél: 4,5 l V8 dísel og 4,7 l bensín. Gírkassi: 6 gíra sjálfskiptur dísel og 5 gíra sjálfskiptur bensín. Uppgefi n eyðsla í bönduðum akstri: 10,2 l/km dísel, 14,4 l/km bensín. 0-100 km/klst.: 8,2 sek. dísel og 9,2 sek bensín. Þyngd: 3.300 kg PLÚS Framúrskarandi fj öðrun. Mikið afl miðað við orkunotkun. Skriðstýring. MÍNUS Útlitið gefur ekki næg fyrirheit um innihaldið. Verð: frá 10.670.000. Umboð: Toyota.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.