Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 45
MIÐVIKUDAGUR 9. janúar 2008 25
Símon Birgisson leiklistarnemi
heldur því fram á bloggsíðu sinni
að fyrirhuguð heimsókn Schau-
buhne-leikhússins í Berlin til
Íslands sé í uppnámi og hafi Leik-
félag Reykjavíkur afboðað leikför
flokksins hingað en til stóð að
hann sýndi Draum á Jónsmessu-
nótt á Listahátíð. Fréttablaðið
hafði samband við Guðjón Peder-
sen sem sagði heimsóknina í skoð-
un en henni væri ekki aflýst. Mikl-
ar annir væru í Borgarleikhúsinu
á komandi mánuðum og væri tíma-
setning heimsóknarinnar meðal
annars til skoðunar. Aðsókn er
mikil á sýningar í húsinu, en svið-
setning Thomasar Ostermeyer
sem er einn virtasti leikstjóri Evr-
ópu um þessar mundir er mikil að
umbúnaði: „Þetta er svona álíka að
umfangi og sýningar Pinu Bausch
en búnaður vegna þeirra fyllti tvo
gáma,“ segir Guðjón. Hann segir
margt koma til álíta við heimsókn-
ina hingað en allt sé í skoðun.
Sjálfur er Guðjón á förum til
Svíþjóðar þar sem hann mun setja
á svið Ofviðrið eftir Shakespeare í
Málmey. Er frumsýning áætluð
um miðjan mars en þá kemur hann
hingað aftur til að setja Kirsu-
berjagarðinn á svið fyrir Leik-
félag Reykjavíkur. Guðjón lætur
af störfum sem leikhússtjóri Leik-
félags Reykjavíkur í haust en eft-
irmaður hans verður ráðinn fljót-
lega. Borgarleikhúsið verður
lokað í sumar vegna viðgerða á
sætum í aðalsal en skipt verður
um bak og setu í öllum salnum.
Annast þá framkvæmd erlendir
aðilar. - pbb
Fjórir ungir tónlistar-
nemendur munu stíga á
svið með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands annað kvöld.
Ungmennin fjögur urðu
hlutskörpust í forkeppni
sem hljómsveitin og Lista-
háskóli Íslands stóðu fyrir.
Þrjú þeirra stunda nám við
tónlistardeild LHÍ, en ein
kemur alla leið frá Tónlist-
arháskólanum í München.
Einleikararnir eru þau Theresa
Bokany og J. Páll Palomares fiðlu-
leikarar, klarinettuleikarinn Arn-
gunnur Árnadóttir og Hákon
Bjarnason píanóleikari. Á efnis-
skránni eru fiðlukonsertar eftir
Wieniawski og Sibelius, píanó-
konsert eftir Prókofíev og Premi-
ére Rhapsodie fyrir klarinett og
hljómsveit eftir Debussy. Stjórn-
andi á tónleikunum er Kristofer
Wahlander.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveit-
arinnar með ungum einleikurum
er árviss viðburður sem ávallt
hefur gefið góða raun. Atli Heim-
ir Ingólfsson, tónlistarstjóri Sin-
fóníunnar, segir hugmyndina að
baki tónleikunum vera þá að gefa
ungu tónlistarfólki tækifæri til að
koma fram með atvinnutónlistar-
fólki. „Árin á milli fimmtán ára og
rúmlega tvítugs er ákaflega mik-
ilvægur tími í menntun tónlistar-
fólks og það er á þessum árum
sem fólk tekur ákvörðun um
hversu mikil alvara þeim er með
tónlistarnáminu. Við hjá Sinfóní-
unni reynum að veita tónlistar-
nemum hvatningu til þess að æfa
sig og taka tónlistina alvarlega
með því að bjóða upp á þennan
möguleika.“
Sinfónían hefur staðið fyrir tón-
leikum af þessu tagi í mörg ár og
hafa sumir af okkar fremstu
klassísku tónlistarmönnum tekið
sín fyrstu skref á sviðinu í
Háskólabíói. Má þar nefna Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur, Elfu Rún
Kristinsdóttur og Víking Heiðar
Ólafsson. „Þetta er auðvitað mjög
spennandi reynsla fyrir þessa
krakka. Það eru gerðar miklar
kröfur til þeirra og þau verða að
standa sig, en þau gera það líka
alltaf. Meðan á leik þeirra stendur
finnur maður áþreifanlega fyrir
bylgju af velvild í garð þeirra,
bæði frá áhorfendum og frá
hljómsveitinni. Því má með sanni
segja að það ríki ávallt mjög góður
andi á þessum tónleikum,“ segir
Árni Heimir.
Tónleikarnir, sem fara fram í
Háskólabíói annað kvöld og hefj-
ast kl. 19.30, eru því kjörið tæki-
færi til að kynnast þessu unga
tónlistarfólki sem væntanlega
verður áberandi í tónlistarlífi
framtíðarinnar. vigdis@frettabladid.is
Gestakoma í skoðun
STJÖRNUR FRAMTÍÐAR Einleikararnir ungu sem koma fram með Sinfóníuhljómsveit
Íslands annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Ungir einleikarar láta ljós
sitt skína annað kvöld
Mexíkóski stórsöngvarinn
Rolando Villatzon kom fram á
laugardagskvöld í Vínaróperunni
og söng í fyrsta sinn hlutverk
Werthers í samnefndri óperu
Massanets á móti Charlotte Koch.
Stjörnutenórinn missti á liðnu
sumri röddina og hefur haft hægt
um sig síðan. Óttuðust margir að
þessi glæsilegi söngvari og
kraftmikli leikari ætti ekki
afturkvæmt á svið, en fullt hús í
Vínaróperunni tók honum
fagnandi á laugardag og sam-
kvæmt fréttum var Rolando ekki
síður glaður: langvarandi veikindi
og erfiðleikar með rödd geta lagst
á sálina á söngvurum. Fram
undan eru fleiri sýningar á
Werther og í sumar er hann
bókaður í Salzburg til að syngja
Rómeó á móti Önnu Netrebko
sem Júlíu í óperu Gounoud um
elskendurna feigu, en þau vöktu
alþjóðlega athygli fyrir glæsilega
frammistöðu sína í La Traviata
fyrir tveimur árum á sama stað.
- pbb
Villatzon syngur á ný
LEIKLIST Guðjón
Pedersen leikhússtjóri