Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 50
30 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.
8
DAGAR
Í EM
Í HANDBOLTA
HANDBOLTI Það bendir fátt til þess
að Ivano Balic muni leika með
Króötum á EM en Króatar hafa
reynt í lengstu lög að koma
honum í stand fyrir mótið.
„Meiðsli hans eru mjög flókin
og því miður sé ég ekki að hann
sé að taka neinum framförum,“
sagði Lino Cervar, landsliðsþjálf-
ari Króata.
Hornamaðurinn
Mirza Dzomba spilar
ekki vegna meiðsla og
hæpið er að skyttan
Blazenko
Lackovic spili
einnig en hann
er puttabrot-
inn. Örv-
henta
skyttan Petar
Metlicic er einnig
meidd á fingri en
verður þó með.
Þrátt fyrir meiðslin
gerðu Króatar sér lítið
fyrir og lögðu Svía, 31-
26. - hbg
Vont ástand á Króötum:
Engar framfarir
hjá Balic
HANDBOLTI Kim Andersson hefur
fengið stærra hlutverk í sænska
landsliðinu því landsliðsþjálfar-
inn Ingemar Linnéll hefur gert
hann að fyrirliða liðsins.
Andersson, sem spilar með Kiel
í Þýskalandi, er 25 ára og hefur
skorað 419 mörk í 114 landsleikj-
um. Hann ber fyrirliðabandið
þrátt fyrir að menn eins og Tomas
Svensson (314 leikir), Johan
Petersson (238), Martin Boquist
(200) og Robert Arrhenius (124)
hafi allir leikið fleiri landsleiki og
séu nokkuð eldri en hann.
Andersson skoraði 4 mörk í 34-31
sigri Svía á Slóvenum, þar af þrjú
úr vítum, en fékk auk þess að líta
rauða spjaldið vegna þriggja
brottvísana. - óój
EM í handbolta í Noregi:
Andersson fyrir-
liði hjá Svíum
SKYTTA Kim Andersson verður í stóru
hlutverki hjá Svíum. NORDICPHOTOS/AFP
Enski deildarbikarinn:
Chelsea-Everton 2-1
1-0 Shaun Wright-Phillips (26.), 1-1 Yakubu (64.),
2-1 sjálfsmark (90.+2.).
Kvennadeild Iceland Express
Valur-Keflavík 97-94
Leikurinn var tvíframlengdur og var staðan fyrst
72-72 og svo 82-82 eftir fyrri framlengingu.
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var valinn í sextán manna
leikmannahóp Barcelona sem
heimsækir núverandi bikarmeist-
ara, Sevilla, í fyrri leik liðanna í
sextán liða úrslitum spænska
konungsbikarsins í kvöld.
Eiður Smári hefur verið í
byrjunarliði Barcelona í síðustu
tveimur leikjum liðsins gegn
Alcoyano í konungsbikarnum og
Mallorca í deildinni, en Eið Smára
var reyndar skipt út af í hálfleik í
deildarleiknum.
Ronaldinho og Deco eru frá
vegna meiðsla og Yaya Toure er
að sinna landsliðsskyldu með
Fílabeinaströndinni. - óþ
16-liða úrslit konungsbikars:
Eiður Smári í
hópi Barcelona
FÆR HANN TÆKIFÆRI? Eiður Smári hefur
verið í byrjunarliði Barcelona í tveimur
síðustu leikjum liðsins. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Bragi Magnússon,
þjálfari Stjörnunnar, er harður
húsbóndi því hann er þegar búinn
að reka fjóra erlenda leikmenn
og deildin er rúmlega hálfnuð.
Stjarnan er búin að senda heim
tvo Bandaríkjamenn og tvo
Bosmann-leikmenn en síðastur
til að fá sparkið var Gambíumað-
urinn Mansour Mbye sem var lát-
inn fara þegar ljóst var að Jovan
Zdravevski kæmi frá KR. Mbye
var með 13 stig og 8 fráköst í
tveimur leikjum sínum með
liðinu en þeir töpuðust báðir
og hann nýtti aðeins 4 af
15 vítaskotum sínum (26,7
prósent) í þeim.
Bandaríkjamennirnir
Steven Thomas og Maurice
Ingram voru báðir látnir taka
pokann sinn fyrr í vetur. Thomas
var með 14 stig og 9 fráköst að
meðaltali í fimm leikjum en
Ingram skoraði 9,7 stig og tók
16,0 fráköst á þeim 24,7 mínút-
um sem hann spilaði að meðal-
tali í sínum þremur leikjum.
Stjörnumenn sendu einnig heim
Makedóníumanninn Muhamed
Taci en hann var með 15,5 stig að
meðaltali í leik.
Dimitar Karadzovski er sá eini
sem hefur verið með í
allan vetur en
hann hefur leik-
ið frá- bærlega
og er
með 21,4 stig, 4,8 stoðsendingar
og 4,3 þriggja stiga körfur að
meðaltali í leik. Dimitar hefur nú
þá Jovan og Calvin Roland sér
við hlið en Roland hefur leikið 4
leiki með Garðabæjarliðinu og
hefur skorað 12,8 stig og
tekið 9,5 fráköst að með-
altali í þeim.
Miðað við síðustu leiki
hjá Roland er samt
örugglega farið að hitna
undir honum því þessi
24 ára miðherji skor-
aði aðeins samtals 16
stig í tapleikjum á
móti Tindastóli og
Skallagrími og fékk
þar 9 villur (af 10 mögu-
legum) og náði aðeins 11
skotum á körfuna á 59
mínútum. - óój
Jovan Zdravevski verður sjöundi erlendi leikmaðurinn í Garðabænum í vetur:
Hafa sent fjóra leikmenn heim
SAMAN Á NÝ Dimitar
Karadzovski og Jovan Zdrav-
evski spila aftur saman hjá
Stjörnunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM OG RÓSA
> Sverre bjartsýnn á framhaldið
Sverre Andreas Jakobsson, leikmaður íslenska lands-
liðsins í handbolta, er allur að koma til
eftir að hafa veikst illa á LK-mótinu í
Danmörku. „Ég hef bara aldrei lent
í öðru eins, en sem betur fer er ég
allur að koma til núna og hef ekki
kastað upp í einhverja tíu tíma,“
sagði Sverre feginn í samtali við
Fréttablaðið í gær og kvaðst
bjartsýnn á að geta tekið þátt
í Evrópumótinu í handbolta.
„Það hefur alla vega enginn
útilokað það við mig og ég sé
því enga ástæðu til að vera ekki
bjartsýnn,“ sagði Sverre ákveðinn.
Línutröllið Sigfús Sigurðsson spilar þessa dagana með Adem-
ar Leon á Spáni. Samningur hans þar rennur út sumarið
2009 en hann vonast þó til þess að fá sig lausan í sumar þar
sem hann vill koma heim.
„Mig langar að koma heim en ég veit ekki hvernig mér
mun ganga að losna undan samningnum og í sann-
leika sagt er ég ekki mjög bjartsýnn á að það takist.
Ég hef sagt að það væri voða gott ef ég kæmist
heim næsta sumar en þeir tóku nú dræmt í það
hjá mér,“ sagði Sigfús sem segir ástæðuna
fyrir því að hann vilji koma heim sé 12 ára
sonur hans.
„Mér líður mjög vel á Spáni, það er ekki
málið en eftir langa dvöl erlendis er mann
farið að langa að koma heim og þá helst
út af stráknum sem ég eðlilega sakna mjög
mikið,“ sagði Sigfús en færi hann þá í Val ef hann
kæmi heim?
„Það er fullt af liðum hér heima sem eru að gera
góða hluti en ég skoða þau mál bara í rólegheitum þegar þar að
kemur,“ sagði Sigfús.
Sigfús fór í aðgerð á hné fyrir aðeins sex vikum og vantar því
talsvert upp á leikformið enda lítið spilað síðan í nóvember.
„Það þurfti að gera talsvert meira við hnéð en búist var við
í fyrstu. Ég byrjaði svo að æfa aftur af viti 18. desember
þannig að ég hafði ekki spilað lengi áður en við fórum
til Danmerkur. Hnéð er ágætt en ég finn að það vantar
styrk í vissum hreyfingum og þá verð ég seinn. Ég er
að vinna í þessum málum af fullu og þetta tekur
sinn tíma,“ sagði Sigfús sem fer með varaliðinu til
Noregs þar sem hann fær kærkomið tækifæri til
þess að spila meira.
„Í Danmörku vorum við að prófa hvort hnéð
myndi halda en það kemur í ljós í Noregi hvernig
staðan á forminu er hjá mér. Úthaldið er betra hjá mér
en oft áður en tímasetningar og annað er ekki í lagi. Þjálfar-
arnir meta að lokum hvort ég sé í nógu góðu standi til að
hjálpa liðinu á EM,“ sagði Sigfús.
HANDKNATTLEIKSKAPPINN SIGFÚS SIGURÐSSON: ER FARINN AÐ SKOÐA SÍN NÆSTU SKREF Í BOLTANUM
Langar að koma heim til Íslands næsta sumar
HANDBOLTI Þær voru ekki góðar
fréttirnar sem bárust frá Þýska-
landi í lok september. Einn besti
leikmaður landsliðsins og lykil-
maður, Guðjón Valur Sigurðsson,
var farinn úr axlarlið. Meiðsli sem
taka að minnsta kosti þrjá mánuði
að jafna sig af og ef illa fer allt
upp í fimm til sex mánuði. EM í
Noregi var því í hættu hjá honum.
Guðjón Valur lét meiðslin ekki
slá sig út af laginu og hefur lagt
mikið á sig til þess að komast í
form á ný og er að uppskera eins
og hann sáði. Hann byrjaði að spila
með Gummersbach í lok nóvem-
ber og er byrjaður að taka á því í
varnarleiknum með landsliðinu þó
svo að þjálfarinn hafi aldrei átt
von á öðru en að þurfa að stilla
honum upp í horninu á EM.
„Þetta er allt að koma og mótið í
Danmörku var ákveðinn próf-
steinn fyrir mig. Ég hafði verið að
hlífa mér í vörn fram að því en ég
varð að láta á það reyna hvort ég
væri í alvöru klár fyrir EM því
það væri ekki sanngjarnt gagn-
vart liðinu að vera hálfur maður.
Þetta gekk vel og mér líður ágæt-
lega. Ég er þess utan í góðu líkam-
legu formi þannig að ég er bjart-
ur,“ sagði Guðjón Valur, sem
spilaði meðal annars í hjarta varn-
arinnar gegn Dönum og leysti það
vel af hendi. „Ég var alltaf ákveð-
inn í að vera tilbúinn fyrir EM en í
nóvember leist mér á stundum
ekki á blikuna enda var líðanin
misjöfn og mér leið oft mjög illa í
hendinni á nóttinni ef ég ofgerði
mér.“
Alfreð landsliðsþjálfara og fleir-
um hefur orðið tíðrætt um að liðið
sé á betri leið núna en það var
fyrir ári síðan. Guðjón tekur undir
það.
„Við höfum fleiri leikmenn klára
núna en í fyrra og þar munar helst
um Garcia og Einar. Það eiga ein-
hverjir í meiðslum en mér sýnist
að við eigum að mæta sterkir til
leiks. Ég hef alltaf verið bjartsýnn
fyrir stórmót og á því er engin
undantekning núna,“ sagði Guðjón
en hann stefnir hátt líkt og þjálf-
arinn.
„Hópurinn hefur verið að tala
um það sama og Alfreð síðustu
mánuði. Liðið hefur sýnt að það
getur unnið hvaða lið sem er en
því miður getum við tapað fyrir
ansi mörgum líka á vondum degi.
Okkur vantar aftur á móti stöðug-
leikann til að fara lengra. Ef leik-
menn verða heilir heilsu eigum
við góða möguleika en vissulega
þarf margt að smella saman.
Markmið liðsins verður að vera
að vinna alla leiki. Ef við komumst
svo í undanúrslit er svo ekkert
nóg að stefna bara á bronsið. Liðið
gerir sér samt grein fyrir því að
leiðin er grýtt en ég hef fulla trú á
liðinu og miðað við þann mann-
skap sem við eigum fer að koma
að því að allt smelli saman og von-
andi gerist það núna,“ sagði Guð-
jón Valur. henry@frettabladid.is
Mætum sterkir til leiks
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð undraverðum bata á skömmum tíma eftir
að hafa farið úr axlarlið í lok september. Hann er bjartsýnn fyrir EM í Noregi
og hefur sett markið hátt líkt og landsliðsþjálfarinn, Alfreð Gíslason.
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON Hefur náð sér ótrúlega vel af alvarlegum axlarmeiðsl-
um og mætir sterkur til leiks á EM þar sem hann ætlar sér stóra hluti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Chelsea vann Everton 2-1
í fyrri leik liðanna í undanúrslit-
um enska deildarbikarsins í
gærkvöldi með marki í uppbótar-
tíma á Stamford Bridge.
Chelsea komst yfir á 26. mínútu
með marki Shauns Wright-Phillips
eftir góðan undirbúning Florents
Malouda og þar við sat í hálfleik.
Í byrjun seinni hálfleiks dró til
tíðinda þegar Jon Obi Mikel,
miðjumaður Chelsea, fékk að líta
beint rautt spjald fyrir tæklingu á
Phil Neville, fyrirliða Everton, en
við það snerist gangur leiksins
talsvert. Sóknarþungi Everton
jókst og aðeins tíu mínútum síðar
náði Yakubu, framherji Everton,
að jafna leikinn með góðu skoti
utan úr teig. Allt stefndi í jafntefli
þegar Jolean Lescott, varnarmað-
ur Everton, varð fyrir því óláni að
skora sjálfsmark í uppbótartíma
og það tryggði Chelsea sigur í
leiknum.
Seinni leikur liðanna fer svo
fram á Goodison Park þann 23.
janúar næstkomandi. - óþ
Enski deildarbikarinn:
Dramatískur
sigur Chelsea