Fréttablaðið - 12.01.2008, Síða 75
LAUGARDAGUR 12. janúar 2008 47
FÓTBOLTI Franski framherjinn Nicolas Anelka er enn
og aftur á faraldsfæti og gekk í gær til liðs við Chel-
sea frá Bolton á kaupverði sem talið er nema um
15 milljónum punda eða tæpum tveimur millj-
örðum íslenskra króna. Samtals er Frakkinn
búinn að vera seldur fyrir tæpar 85 milljónir
punda eða rúma tíu milljarða íslenskra króna.
Hinn 28 ára gamli Anelka byrjaði knatt-
spyrnuferil sinn hjá Paris St. Germain í
Frakklandi og vakti strax mikla athygli
fyrir markaskorunarhæfileika sína.
Arsene Wenger, þá nýráðinn sem
knattspyrnustjóri Arsenal, var
ekki lengi að sýna snilli sína á
leikmannamarkaðinum og
keypti Anelka til liðsins á 500
þúsund pund árið 1997.
„Le Sulk“
Framherjinn blómstraði
á öðru keppnistímabilinu
og átti stóran þátt í tvenn-
um sigri Arsenal í deild
og bikar á Englandi.
Tímabilið 1999-2000 var
hins vegar vonbrigði
fyrir Lundúnaliðið og Anelka, sem var
þá orðinn stórstjarna, lét hafa eftir sér að
hann væri óánægður og ætti rétt á því að
fá betri laun. Yfirlýsingar Anelka komu
talsvert á óvart þá, en seinna meir varð
hann þekktur fyrir að
tjá sig óhikað við fjöl-
miðla ef eitthvað var
ekki eins og hann vildi
hafa það hjá þeim
félögum sem hann spil-
aði með og hlaut því
viðurnefnið „Le Sulk“
eða „fýlupokinn“.
Arsenal gat ekki neitað risaboði
Real Madrid upp á 22,3 milljónir punda
í hinn óánægða Anelka sem stoppaði
stutt á Spáni, en náði þó að vinna
Meistaradeild Evrópu tímabilið 1999-2000 með lið-
inu, áður en hann sneri á fornar slóðir til Paris St.
Germain.
Aftur til Englands
Anelka náði ekki fótfestu í París en fékk þess
í stað annað tækifæri í ensku úrvalsdeildinni
þegar hinn franski Gérard Houllier, þáverandi
knattspyrnustjóri Liverpool, fékk hann til
þess að koma á láni tímabilið 2001-2002.
Ekkert varð þó af endanlegum félags-
skiptum Anelka til Liverpool og
Manchester City stökk á hann og
þrátt fyrir að hann hafi skorað af
miklu kappi fyrir félagið, þá náði
City aldrei þeim hæðum sem von-
ast var til á þeim þremur keppn-
istímabilum sem hann var þar.
Tyrkland var næsta stoppi-
stöð hjá Anelka og þar varð
hann deildarmeistari með Fen-
erbahce tímabilið 2004-2005, en hann var
samt stöðugt orðaður við endurkomu til Eng-
lands og Anelka fór ekki leynt með vilja sinn til
að snúa aftur
þangað.
„Ef ég fer
aftur til Eng-
lands, þá vil ég
fara í eitt af
„topp fjórum“
liðunum,“ sagði
Anelka í viðtöl-
um en miðlungs-
lið Bolton varð
áfangastaðurinn
árið 2006. Eftir að hafa sannað sig enn og aftur sem
markaskorari með Bolton, varð draumur Anelka að
veruleika þegar Chelsea gekk í gær frá kaupum á
honum á kaupverði sem talið er nema um 15
milljónum punda. Samtals er Anelka því búinn
að vera keyptur fyrir tæpar 85 milljónir punda
eða rúma tíu milljarða króna miðað við núver-
andi gengi. omar@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Íþrótta- og ólympíusam-
band Íslands, ÍSÍ, úthlutaði einum
60 milljónum króna úr afreks-
sjóði sínum í gær. Þrátt fyrir
fjárútlátin á afrekssjóðurinn enn
fjármagn aflögu og verður það
nýtt í samræmi við árangur og
verkefni sérsambanda.
A-landslið karla í handknattleik
fékk 6,5 milljónir króna úr
sjóðnum vegna Evrópumótsins
sem hefst í næsta mánuði.
Tveir einstaklingar féllu af A-
styrk ÍSÍ í gær en það eru
fimleikamaðurinn Rúnar Alex-
andersson og Jón Oddur Hall-
dórsson úr Íþróttasambandi
fatlaðra.
Tveir einstaklingar færðust úr
C-styrkleikaflokki upp í B en það
eru badmintonkonan Ragna
Ingólfsdóttir og sundkonan
Ragnheiður Ragnarsdóttir.
- hbg
Afrekssjóður ÍSÍ:
Úthlutaði
60 milljónum
RAGNHEIÐUR RAGNARSDÓTTIR Sund-
drottningin er komin á B-styrk hjá ÍSÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
Tíu milljarða maðurinn
Franski framherjinn Nicolas Anelka gekk í gær í raðir Chelsea á 15 milljónir
punda, en Chelsea er áttunda félagið sem hann leikur fyrir á þrettán keppnis-
tímabilum. Samtals hefur Anelka verið seldur fyrir tæpar 85 milljónir punda.
FÉLAGASKIPTI ANELKA:
1995-1997: Paris St. Germain (PSG)
1997-1999: Arsenal - £500,000
1999-2000: R. Madrid - £22,300,000
2001-2002: PSG - £20,000,000
2001-2002: Liverpool - Á láni
2002-2005: Man. City - £12,000,000
2005-2006: Fenerbahce - £7,000,000
2006-2008: Bolton - £8,000,000
2008- : Chelsea - £15,000,000
KÖRFUBOLTI Daninn Adama Darboe
hefur spilað frábærlega með
Grindavík í síðustu þremur
leikjum liðsins og margir hafa
tengt það komu Helga Jónasar
Guðfinnssonar á æfingar en
Adama segir sjálfur að Helgi
Jónas hjálpi sér mikið.
Helgi Jónas tekur þessu með
jafnargeði en segist hafa talað
mikið við Danann.
„Ég reyni að miðla til hans því
ég hef kannski aðeins meiri
reynslu en hann. Hann hefur
staðið sig mjög vel núna og ef það
hjálpar honum að ég mæti á
æfingar þá er það bara gott mál
fyrir Grindavík,” segir Helgi.
Adama hefur skorað 19,7 stig,
gefið 7,0 stoðsendingar og hitt úr
63% prósent skota sinna í þremur
leikjum síðan að Helgi Jónas fór
að mæta á æfingar um jólin.
Fyrir þann tíma var Darboe með
11,3 stig, 4,1 stoðsendingu og 51,5
prósenta skotnýtingu í fyrstu tíu
leikjum tímabilsins. - óój
Adama Darboe hjá Grindavík:
Blómstraði eftir
komu Helga
SPILAR VEL Adama Darboe hefur verið í
miklu stuði í síðustu leikjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRJÁLSAR Hin fallna frjálsíþrótta-
hetja, Marion Jones, var í gær
dæmd í sex mánaða fangelsisvist
fyrir að ljúga til um eigin
steranotkun fyrir rétti.
Jones sá að sér á endanum og
játaði sekt sína. Lögfræðingar
hennar vonuðust eftir skilorðs-
bundnum dómi en varð ekki að
ósk sinni.
Frá því Jones játaði sekt sína
og baðst afsökunar hafa afrek
hennar verið þurrkuð út af
metaskrám og hún hefur þess
utan þurft að skila Ólympíuverð-
launum sínum. - hbg
Dómur Marion Jones:
Sex mánaða
fangelsi
MARION JONES Á leið í steininn.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Posten Cup:
Ísland-Portúgal 27-28 (13-15)
Mörk Íslands (skot): Einar Hólmgeirsson 7
(16), Hannes Jón Jónsson 5/3 (8/3), Arnór
Gunnarsson 3 (5), Sturla Ásgeirsson 3 (5/1), Kári
Kristján Kristjánsson 2 (2), Andri Stefan 2 (5),
Heimir Örn Árnason 2 (2), Baldvin Þorsteinsson
2 (3), Jóhann Gunnar Einarsson 1 (1), Sigfús
Sigurðsson (1).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 14.
Iceland Express-deild karla:
Keflavík-Snæfell 98-95
Stig Keflavíkur: Bobby Walker 30 (8 stoðs.),
Tommy Johnson 26, Magnús Þór Gunnarsson 19
(5 stoðs.), Anthony Susnjara 9 (7 frák.), Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 7, Gunnar Einarsson 3,
Arnar Freyr Jónsson 2 (9 stoðs.), Þröstur Leó
Jóhannsson 2.
Stig Snæfells: Justin Shouse 28 (hitti úr 10
af 14 skotum, 8 stoðs.), Slobodan Subasic 19,
Hlynur Bæringsson 15 (9 frák., 5 stoðs.), Magni
Hafsteinsson 14, Anders Katholm 11, Sigurður
Þorvaldsson 6 (10 frák.), Jón Ólafur Jónsson 2.
Tindastóll-ÍR 98-94
ÚRSLIT
HANDBOLTI Íslenska B-landsliðið
lék sinn fyrsta leik á Posten Cup í
gær. Strákarnir klúðruðu þá góðri
stöðu niður á lokamínútunum og
töpuðu með einu marki, 28-27.
Leikið var í Trondheim Spektrum
þar sem riðill A-landsliðsins fer
fram á EM.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik en Ungverjar leiddu
með tveim mörkum í leikhléi, 15-
13. Síðari hálfleikur var mjög
góður framan af og þegar aðeins
fimm mínútur lifðu leiks leiddi
Ísland með tveim mörkum, 27-25.
Ungverjar skoruðu aftur á móti
síðustu þrjú mörk leiksins og
tryggðu sér eins marks sigur.
Einar Hólmgeirsson tók lands-
liðsþjálfarann Alfreð Gíslason á
orðinu og skaut eins óður maður á
markið í leiknum. Einar reyndi
alls sextán sinnum fyrir sér og
boltinn fór inn fyrir línuna í sjö
skipti. Ljóst að þetta mót verður
mjög dýrmætt fyrir Einar sem
vantar tilfinnanlega leikæfingu.
Ísland spilar aftur í dag og þá
eru mótherjarnir Portúgal.
- hbg
Eins marks tap Íslands gegn Ungverjum í Noregi:
Klaufalegt tap Íslands
gegn Ungverjum
EINAR HÓLMGEIRSSON Fékk fína æfingu í Trondheim Spektrum í gær. Hann skoraði
sjö mörk í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar komust
aftur á sigurbraut með því að
vinna nauman 98-95 stiga sigur á
Snæfelli í Iceland Express deild-
inni í gær. Snæfellsliðið fær þó
fljótt tækifæri til þess að hefna
tapsins því liðin mætast í átta liða
úrslitum Lýsingarbikarsins í
Stykkishólmi á sunnudaginn.
Keflvíkingar voru seinir í gang,
lentu 0-6, 5-10 og 13-21 undir og
þurftu greinilega tíma til þess að
ná úr sér Grindavíkurleiknum á
dögunum. Þeir náði því þó í lok
annars leikhluta, unnu síðustu tólf
mínútur fyrri hálfleiks 35-22 og
náðu undirtökunum sem þeir
héldu út leikinn. Snæfellingar
gáfust þó aldrei upp og voru búnir
að vinna upp forskotið í lokin en
Keflavíkurliðið komst mest þrett-
án stigum yfir (67-54) um miðjan
þriðja leikhluta.
Justin Shouse var búinn að sýna
hetjulega frammistöðu í fjórða
leikhluta og stýra Snæfelli inn í
möguleika á að vinna leikinn þegar
hann missti boltann klaufalega
yfir miðju þegar tæpar sex sek-
úndur voru eftir og staðan var 98-
95 fyrir heimamenn í Keflavík.
Justin hafði skoraði 13 stig í loka-
leikhlutanum þar af átta þeirra á
síðustu einni og hálfu mínútunni
en í stað þess að setja niður sitt
sjöunda skot í röð tapaði hann
boltanum og leikurinn rann frá
Snæfellingum. Magni Hafsteins-
son náði reyndar boltanum og náði
þriggja stiga skoti áður en leik-
tíminn rann út en Jón Norðdal
Hafsteinsson varði það og tryggði
Keflavík endanlega sigurinn.
Bobby Walker og Tommy John-
son rifu sig upp eftir slakan leik í
Grindavík og skoruðu saman 56
stig eða 37 stigum meira en þeir
gerðu í Grindavík. Walker setti
niður stórt skot í lokin og endaði
með 30 stig og 5 stoðsendingar.
„Þetta var stór sigur eftir tapið í
Grindavík þar sem við komum
ekki tilbúnir og alltof afslappaðir
til leiks. Við notuðum vikuna vel
milli leikja og unnum góðan sigur,“
sagði Tommy Johnson sem skor-
aði 17 af 26 stigum sínum þegar
Keflavík breytti stöðunni úr 25-25
í 67-54. „Það verður allt annar leik-
ur á sunnudagskvöldið, miklu
meira undir og meiri spenna í loft-
inu,“ sagði Tommy. - óój
Snæfellingurinn Justin Shouse gerði klaufaleg mistök á lokasekúndunum gegn Keflavík í gær:
Keflavíkingar misstu næstum sigurinn frá sér
EKKI HINGAÐ, VINUR Jón Nordal Hafsteinsson verst hér vel gegn Snæfellingnum
Justin Shouse sem gerði sig sekan um klaufaleg mistök undir lok leiksins.
VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN