Fréttablaðið - 13.01.2008, Blaðsíða 120
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Jóns Arnar
Marinóssonar
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
6.375 kr.
Fjöldi flugsæta til London, Berlínar og Kaupmannahafnar
frá 15. janúar til 15. mars á frábæru tilboðsverði!
Sölutímabil: Hefst kl. 12.00 á hádegi 14. janúar og
lýkur kl. 12.00 á hádegi 16. janúar
Ferðatímabil: 15. janúar–15. mars 2008
Takmarkað sætaframboð og valdar dagsetningar
*
London, Berlín og
Kaupmannahöfn
Sala hefst á
hádegi á morgun
og lýkur á hádegi
á miðvikudag!
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslumÍ dag er sunnudagurinn
13. janúar, 13. dagur ársins.
11.00 13.36 16.12
11.08 13.21 15.35
OMXI15 var 5.470,23 klukkan 10 þegar ég fyllti krús af
vatni, hún var 5.468,6 þegar ég
náði skjálfandi fingrum í eina
kvíðastillandi upp úr töfluglasi,
og gengið stóð í 5.466,27 þegar
taflan sat föst í hálsinum á mér og
ég kúgaðist yfir marmaravaskin-
um. „Gleymdu lánardrottnum,“
tautaði ég við sjálfan mig. „Hugs-
aðu um eitthvað fallegt. Hugsaðu
um allt skattalega tapið sem þú
átt í handraðanum. Hugsaðu um
ávöxtunina til lengri tíma litið.
Ekki fyllast neinum Gnúpverja-
skrekk. Einblíndu heldur eins og
hann í sparisjóðnum á hækkandi
sól, á alla björtu tímana sem eru
framundan – ó vott a bjútífúl
mornin – og ef það dugir ekki til
að settla þig, taktu þá bara inn
aðra kvíðastillandi.“
BADDI hringdi um ellefuleytið,
hás af skelfingu, og sagðist vera
1.700 kúlur í mínus. Hann tryði
því ekki að ég væri sú mannleysa
að láta Sjálfsmínbanka senda á
hann sex veðköll. Hann hefði
haldið að ég væri sannur vinur.
Ég sagði honum að taka inn kvíða-
stillandi. Vinátta hefði enga val-
útu þegar færi að nötra undir
grúppum og menn væru að fara á
fjármálataugum. Baddi hvæsti í
símann að ég þjáðist af ógagnsæi
og innra ósamræmi eins og dóm-
nefndir um héraðsdómara. Ég
varð að taka inn aðra kvíðastill-
andi.
ÞETTA er versti dagur sem ég
hef upplifað síðan ég fór að
byggja upp nýtt, íslenskt samfé-
lag. Mér leið eins og húsunum við
Laugaveg 4 og 6. Eina stundina
átti að tæta mig til grunna, aðra
stundina átti að rífa mig upp með
rótum og hina stundina átti að
lofa mér að standa um aldur og
ævi. Til að bæta tjóni ofan á tap
var Elzbieta á þönum að taka til,
lék við hvern sinn fingur og
sönglaði eins og hún hefði ekki
hugmynd um að allt í kringum
hana voru milljarðamæringar að
sjá fram á að þeir yrðu að sætta
sig við næstu vikur að hafa árs-
laun sextíu pólskra verkamanna í
tímakaup.
LOKS undir kvöld tók vísitalan
fjörkipp upp á við. Við Mallí
sátum með störu framan við skjá-
inn og sáum hvernig milljarðarn-
ir hlóðust aftur inn í eignasafnið
okkar. En þá var ég búinn að taka
inn svo margar kvíðastillandi að
ég náði því ekki eiginlega að
gleðjast yfir björtu framtíðinni
sem blasti þarna við okkur eins
og sparisjóðsstjóranum.
Billjónsdagbók
13.01.2008