Fréttablaðið - 13.01.2008, Blaðsíða 118
38 13. janúar 2008 SUNNUDAGUR
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Ég verð að viðurkenna að ég
veit minnst um þetta sjálfur. Ég
sendi bara inn myndir af því að
allir hinir gerðu það,“ segir Teit-
ur Jónasson, ljósmyndari á dag-
blaðinu Nyhedsavisen í Kaup-
mannahöfn. Teitur hefur verið
tilnefndur til dönsku blaðaljós-
myndaraverðlaunanna sem veitt
verða í byrjun mars. Hann er
einn sautján ljósmyndara í Dan-
mörku sem hljóta tilnefningu
sem hlýtur að teljast talsverð
viðurkenning. Sér í lagi þar sem
um 140 ljósmyndarar sendu inn
myndir sínar.
„Þetta er náttúrulega bara til-
nefning og ég veit ekkert hvað
kemur út úr þessu, hvort ég fæ
fyrstu eða önnur verðlaun eða í
hvaða flokki það verður. Maður
fær nefnilega ekki að vita um
hvaða mynd er að ræða fyrr en
við verðlaunaafhendinguna
sjálfa í mars,“ segir Teitur sem
sendi 25 myndir inn í keppnina.
Alls bárust 3.400 myndir frá ljós-
myndurum í Danmörku í keppn-
ina sem er sambærileg við
íslensku blaðaljósmyndaraverð-
launin að sögn Teits. Hann segir
engan gæðamun á milli keppn-
anna í Danmörku og á Íslandi.
Eini munurinn sé að markaður-
inn sé miklu stærri í Danmörku.
Keppt er í nokkrum flokkum, til
að mynda Fréttamynd ársins,
Fréttamynd ársins í Danmörku
og Íþróttamynd ársins svo eitt-
hvað sé nefnt.
Teitur er yfirmaður ljósmynda-
deildar Nyhedsavisen. Sem slík-
ur stjórnar hann daglegum
rekstri deildarinnar og gefst
ekki mikill tími til að vera á vett-
vangi. „Það er nefnilega það
fyndna við þetta, myndirnar sem
ég sendi inn eru nánast einu
myndirnar sem ég tók allt árið í
fyrra,“ segir Teitur og hlær.
„Maður hreyfði eiginlega ekki á
sér rassgatið. Ég er eiginlega
áhugaljósmyndari í skrifstofu-
starfi.“
hdm@frettabladid.is
TEITUR JÓNASSON: TILNEFNDUR TIL DÖNSKU BLAÐALJÓSMYNDARAVERÐLAUNANNA
Íslenskur ljósmyndari lofaður
TEITUR JÓNASSON Einn 17 ljósmyndara sem tilnefndir eru til dönsku blaðaljósmyndaraverðlaunanna. Teitur sést hér fyrir utan
höfuðstöðvar Nyhedsavisen í Kaupmannahöfn. LJÓSMYND/MARTIN SYLVEST
ÓRÓI Í KRISTJANÍU Þessi
íbúi í Kristjaníu fékk
sér sígarettu og fylgdist
í rólegheitum með
látunum.
ÓEIRÐIR VEGNA UNG-
DÓMSHÚSS Allt fór í
bál og brand þegar
Ungdómshúsið var rifið
snemma árs í fyrra. Teit-
ur var í miðju átakanna
allan tímann. Þessir
mótmælendur virtist
ekki par hrifnir af nær-
veru fjölmiðlamanna.
KLETTADÝFINGAR Í
MEXÍKÓ Teitur náði
þessari einstöku mynd
af Kólumbíumanninum
Eber Pava, heimsmeist-
ara í klettadýfingum.
Myndin er af sigurdýfu
Pava sem kallaðist „Fly-
ing Reverse“. Keppnin
fór fram í Acapulco í
Mexíkó.
FERSKUR FRÁ BARBADOS Egill Helgason
var samt hálfpartinn í vinnunni.
Jólafríið er búið hjá Agli Helga-
syni. Hann snýr aftur í Silfrið í
dag og svo er það Kiljan á
miðvikudaginn. Þeir sem lesa
bloggið hans hjá Eyjunni.is hafa
séð að hann var í sólinni á
Barbados, kom til Íslands um
miðjan daginn í gær. Egill sló
ekki slöku við þótt hann væri í
fríi og tjáði sig um íslenskt
dægurþras. „Jú, það var auðvitað
hálf absúrd að vera að hugsa um
íslenskt dægurþras þarna í
sólinni, en ég var samt hálfpart-
inn í vinnunni og notaði bloggið
til að fylgjast með,“ segir Egill.
Egill ætlaði upprunalega til
Kúbu en fann ekkert flug svo
Barbados varð fyrir valinu. Þetta
var fyrsta ferð hans til Karíba-
hafsins en hann er kunnur fyrir
áhuga sinn á grísku eyjunum.
Egill segist enn vera hrifnari af
þeim. „Mannlífið á grísku
eyjunum er nú meira sjarmer-
andi, verð ég að segja. Ég hélt að
á Barbados væri meira um
efristéttar fólk, fólk í pólóskyrt-
um og svoleiðis, en það kom í ljós
að 99 prósent fólks á Barbados
eru alþýðlegt blökkufólk. Það
gerði voða lítið fyrir mig á
hótelinu að segjast vera sjón-
varpsstjarna frá Íslandi.“
Egill segir að sama hvert hann
fari um heiminn, hvergi sé hann
óhultur fyrir Íslendingum. „Ég
gekk í flasið á mínum gamla
vinnufélaga Kristjáni Guy
Burgess á hótelinu. Við áttum
góða stund á ströndinni. Jú, ég er
orðinn þokkalega brúnn og ég
brann á öxlunum. Sólin er lúmsk
þarna.“ - - glh
Sólbrenndur
Egill snýr aftur
Hvað er að frétta? Bara allt frábært. Stelpan er á leiðinni til
Japans í tónleikaferðalag með fullt af hressum og skemmtileg-
um krökkum. Auk þess er ég í óðaönn að skipuleggja hátíðina
Látíð í bæ ásamt fræknum herramönnum.
Augnlitur: Þau eru græn og brún.
Starf: Blaðamaður og rokkari.
Fjölskylduhagir: Alveg stórkostlega vel gift og heppin með
dóttur.
Hvaðan ertu? Seltjarnarnesi og Vesturbænum.
Ertu hjátrúarfull? Svona... Ég labba ekki undir stiga, en það er
það eina.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Fréttir, Kastljós og Desperate
Housewives.
Uppáhaldsmatur: Humar og svo er salatbarinn í 10/11 að
koma sterkur inn.
Fallegasti staðurinn: Vestfirðir.
iPod eða geislaspilari: Plötuspilari og geislaspilari. Kann ekki
á annað.
Hvað er skemmtilegast? Að takast á við skemmtileg verkefni
og sjá þau klárast. Að vera heima með fjölskyldunni snemma á
laugardagsmorgni og hanga með vinum seint að kvöldi.
Hvað er leiðinlegast? Að vera í vondu skapi.
Helsti veikleiki: Ég er skapstór.
Helsti kostur: Drifkraftur.
Helsta afrek: Hún Elísa mín og að hafa loksins komist í þenn-
an fína dálk.
Mestu vonbrigðin: Þegar hljómborðinu mínu var stolið í Klink
og Bank. Það heitir Yamaha SK 10 og ég lýsi hér með eftir því.
Hver er draumurinn? Að verða gömul og hress kelling á Kan-
arí. Fá börn og barnabörn í heimsókn annað slagið til að grilla
almennilega í þeim.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Svavar Pétur á stórkostlega
spretti og Friðrik Sólnes er svona maður sem bara klikkar ekki.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Dónar.
Hvað er mikilvægast? Að hlúa að gamla bænum og leyfa
mollunum að blómstra í úthverfum.
HIN HLIÐIN BERGLIND HÄSLER LIÐSMAÐUR SKAKKAMANAGE
Vill verða gömul og hress kerling á Kanarí
„Ég hætti að elda fyrir hann
þegar hann var fimmtán ára af
því að það var aldrei neitt nógu
heilbrigt fyrir hann, hann er svo
fanatískur. Eina skiptið sem ég
má elda er á aðfangadag. Hann
er samt yndislegur drengur og
mjög heilbrigður.“
Auður Jacobsen, móðir Garðars Ómars-
sonar, eða Gaz-manns, sem massar
sig nú upp fyrir Laugardagslögin ásamt
öðrum meðlimum Club Mercedes.
Samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofunni eru algengustu tvínefni
gefin 0-4 ára börnum á Íslandi Eva
María og Andri Snær. Í þessum
aldursflokki eru nú 31 Eva María
og 21 Andri Snær. Næstvinsælustu
tvínefnin eru Anna María og Sara
Lind (22 tilfelli af hvoru) og Sara
Líf er í fjórða sæti, 14 slíkar á aldr-
inum 0-4 ára finnast nú á Íslandi.
Sindri Snær og Tómas Orri koma á
eftir Andra Snæ á vinsældalista
Hagstofunnar með 18 tilfelli af
hvoru nafni, og Gabríel Máni og
Ísak Máni koma þar næst með 16
tilfelli af hvoru nafni.
Sé litið á algengustu eiginnöfn 0-
4 ára barna kemur í ljós að Jón er
enn á toppnum (201) en Aron sækir
fast að Jóns-nafninu (180 tilfelli).
Næstu nöfn á vinsældarlistanum
eru Daníel (177), Alexander (129)
og Arnar (127).
Í kvennaflokki er Söru-nafnið
komið á toppinn (219) en Anna er í
öðru sæti (198). Næst kemur Katr-
ín (170), María (147) og Eva (142)
er í fimmta sæti. Guðrúnar-nafnið,
sem lengi var vinsælasta kven-
mannsnafn á Íslandi, er aftur á
móti komið í sjötta sæti, 138 Guð-
rúnur eru nú á landinu á aldrinum
0-4 ára.
Andri Snær og Eva María vinsæl
EVA MARÍA JÓNS-
DÓTTIR OG ANDRI
SNÆR MAGNASON
Ekki er ósennilegt
að þessi tvö eigi
einhvern þátt í
vinsældum
nafnanna.
LJÓ
SM
YN
D
IR
/TEITU
R
JÓ
N
A
SSO
N
MÓTMÆLANDI
UPPI Í TRÉ Þessi
mótmælandi
leitaði skjóls undan
lögreglu uppi í tré.
Myndir Teits úr
mótmælum í Kristj-
aníu og miðborg
Kaupmannahafnar
birtust bæði í
Nyhedsavisen sem
og Fréttablaðinu.
19.04.78
VELJUM LÍFIÐ
Félag bókhaldsstofa heldur árlega janúarráðstefnu sína
föstudaginn 18. janúar á Hótel Sögu í Reykjavík
Dagskrá ráðstefnunnar og skráningareyðublað er að fi nna á heimasíðu
félagsins www.fbo.is
Móttaka skráningareyðublaða er hjá Guðmundi Loga Lárussyni
logi@beggjahagur.is
Frekari upplýsingar gefur formaður félagsins Jóhanna Rögnvaldsdóttir í
síma 847-9007
Stjórn Félags bókhaldsstofa