Fréttablaðið - 13.01.2008, Blaðsíða 104
24 13. janúar 2008 SUNNUDAGUR
menning@frettabladid.is
Rithöfundurinn Kristín Steinsdóttir og verk
hennar verða í brennidepli á Rás 1 næstu
sunnudagseftirmiðdaga. Jórunn Sigurðardóttir
bókmenntafræðingur ríður á vaðið í dag kl. 15
með klukkustundarkynningu á Kristínu og
verkum hennar, en næstu þrjá sunnudaga
verður höfundarverk hennar kynnt nánar með
upplestrum úr bókum hennar. Þá mun barna- og
fjölskylduþátturinn Leynifélagið sem þær
Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva
Þórhallsdóttir standa fyrir helga Kristínu
þátt sinn á sprengidaginn, 5. febrúar.
Rúsínan í pylsuendanum er síðan frum-
flutningur á leikgerð Jóns Hjartar-
sonar á verðlaunasögu hennar,
Engill í vesturbænum, í leikstjórn
Sigrúnar Eddu Björnsdóttur þann
10. og 17. febrúar. .
Kristín er þjóðkunn af verkum
sínum fyrir börn og fullorðna.
Hún er margverðlaunuð og hlaut síðast viðurkenn-
ingu rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins. Engill í
vesturbænum hlaut á sínum tíma Barnabókaverð-
laun Fræðsluráðs Reykjavíkur og Norrænu
barnabókaverðlaunin.
Áhugasamir geta kynnt sér
dagskrár helgaðar Kristínu á vef
ríkisútvarpsins, www.ruv.is.
- pbb
Kammermúsíkklúbburinn
stendur fyrir athyglisverð-
um tónleikum í Bústaða-
kirkju kl. 20 í kvöld. Þar
kemur fram fríður flokkur
ungs og upprennandi tón-
listarfólks og flytur tónlist
eftir Schumann, Brahms og
Bartók. Uppselt er á tón-
leikana, en þar sem aðsókn
að þeim hefur verið svo
mikil hefur verið ákveðið að
endurflytja þá annað kvöld
kl. 20 í Salnum í Kópavogi.
Flytjendur á tónleikunum eru þau
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari, Ari Þór Vilhjálmsson,
Elfa Rún Kristinsdóttir og Helga
Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikar-
ar, Þórarinn Már Baldursson
víóluleikari, Margrét Árnadóttir
sellóleikari og Grímur Helgason
klarínettu leikari.
„Kammermúsíkklúbburinn
fékk Víking til þess að setja
saman efnisskrána og velja tón-
listarfólkið sem kemur fram og
hann valdi svona vel,“ segir Ari
Þór um tilurð tónleikanna.
„Æfingaferlið fyrir tónleikana
hefur verið ánægjulegt, enda er
þetta góður hópur fólks og svo
eru verkin svo skemmtilega ólík.
Schumann er léttur og leikandi og
Brahms er þyngri og svo er allt
annar stíll á verkinu eftir Bar-
tók.“
Fyrir níu árum hélt hópur tíu
lengra kominna nemenda Tónlist-
arskólans í Reykjavík tónleika á
vegum Kammermúsíkklúbbsins.
Af þessum tíu manna hópi eru
þrjú, þau Ari Þór, Víkingur og
Margrét, sem taka þátt í tónleik-
unum í kvöld. Ari Þór segist
ánægður með að fá tækifæri til
að leika á ný með sínum gömlu
skólafélögum. „Við erum eðlilega
öll á allt öðrum stað í lífinu nú en
við vorum þá og mikið hefur
gengið á. Á árunum sem hafa liðið
höfum við öll farið í nám erlendis
og náttúrulega tekið framförum
og breyst sem tónlistarmenn. En
það er virkilega gaman að leika
með þessum hópi og sjá hversu
mikill metnaður þrífst hjá ungu
tónlistarfólki. Enda fer fólk vart
út í það að leggja fyrir sig tónlist
ef metnaður og löngun til að skara
fram úr er ekki til staðar.“
Sjálfur hefur Ari Þór verið við
nám erlendis undanfarin sex ár,
en hefur jafnframt tekið sér einn
vetur í að leika með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Hann er við
það að ljúka meistaranámi í fiðlu-
leik frá Northwestern University
í Chicago í Bandaríkjunum og
segist gera ráð fyrir því að koma
heim til Íslands að námi loknu.
„Ég mun leika áfram með Sinfón-
íuhljómsveitinni þegar ég hef
lokið námi mínu. Það er að sjálf-
sögðu algjör draumastaða fyrir
ungan hljóðfæraleikara og ég lít
framtíðina því björtum augum,“
segir Ari Þór að lokum.
Miða á tónleikana annað kvöld
má nálgast í miðasölu Salarins.
vigdis@frettabladid.is
Framtíðin er björt
BÓKMENNTIR Kristín
Steinsdóttir rithöfundur.
Kristín heiðruð
Kl. 15
Leiðsögn fer fram kl. 15 í dag um
sýningu Birgis Snæbjörns Birgissonar,
„Ljóshærð Ungfrú Heimur 1951“ sem er til
sýnis á Kjarvalsstöðum, en á henni má sjá
andlitsmyndir af sigurvegurum keppninnar
um fegursta fljóð veraldar frá árinu 1951
til dagsins í dag. Vert er að benda á að
sýningunni lýkur í dag.
UNGT TÓNLISTARFÓLK Hópurinn sem kemur fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbs-
ins í kvöld og á morgun. Á myndina vantar þó Grím Helgason.
Gítarnámskeið
Hefst 21. janúar
12 vikur - 40 mínútna tímar - 1 sinni í viku
Einkatímar: kr. 47.000-
Geisladiskur með upptöku nemanda í lok námskeiðs.
Hóptímar fyrir 6-9 ára: kr. 35.000-
Gítarskólinn er aðili að frístundakorti Í.T.R. www.itr.is
Öll stílbrigði !
Fyrir byrjendur á öllum aldri og lengra komna
Gítarkennsla er okkar fag !
Gítarskóli Íslands Síðumúla 29 Sími 581-1281
gitarskoli@gitarskoli.is
www.gitarskoli.is
11. janúar
19. janúar
25. janúar
Auglýsingasími
– Mest lesið