Fréttablaðið - 30.01.2008, Síða 23
[ ]
Ekki er lengur algengt að börn
feti í fótspor foreldra í vali á
framtíðarstarfi. Sveinn Símon-
arson hjá Rörmönnum Íslands
hefur hins vegar unnið með
þremur af fimm börnum sínum.
Sveinn Símonarson á pípulagn-
ingafyrirtækið Rörmenn Íslands
og fæst við allt það sem snýr að
pípulögnum, jafnt stórt sem smátt.
Rörmenn stofnaði Sveinn fyrir um
sex árum en þar áður starfaði
hann undir eigin nafni.
Sveinn er fimm barna faðir en
af börnum hans eru þrjú sem ann-
aðhvort hafa starfað við pípulagn-
ir eða eru lærð í faginu. „Núna
vinna tvö barna minna hjá mér
einn til tvo daga í viku en þau eru
bæði í skóla,“ segir Sveinn, en
þetta eru þau Bergvin sem nú er
að afla sér kennsluréttinda og
Soffía sem stundar nám í pípu-
lögnum í Iðnskólanum í Reykja-
vík. „Bergvin hefur starfað hjá
mér síðastliðin tíu sumur og er því
mjög vanur,“ segir Sveinn sem á
einn son til viðbótar í pípunum.
„Hann Símon sonur minn á nú
orðið sitt eigið fyrirtæki sem heit-
ir Súperlagnir,“ útskýrir Sveinn
og segir þá feðga ekki starfa
saman nema þegar það henti en
Símon lærði fagið hjá föður sínum
líkt og Soffía dóttir hans en er
núna í meistaranámi í pípulögn-
um.
En hvernig kemur það til að börn
Sveins fá slíkan áhuga á greininni,
er hann kannski haldinn smitandi
áhuga sjálfur? „Nei,“ segir hann
hlæjandi og bætir við: „Ég reyni nú
að tala sem minnst um pípulagnir
heima hjá mér.“ Hann viðurkennir
þó að vitaskuld fái iðnin sinn skerf
af umræðum í fjölskylduboðum.
„En ég held nú að við höfum getað
haldið þeim í sanngjörnu magni,“
segir hann og hlær.
Mikið er að gera hjá pípulagn-
ingamönnum þessa dagana að sögn
Sveins. „Ég held bara að það hafi
aldrei verið svona mikið að gera,“
segir Sveinn, sem hóf starfsemi á
höfuðborgarsvæðinu um aldamótin.
Áður bjó hann í fimmtán ár austur á
Héraði en upphaflega lærði hann
fagið í Hveragerði. Hann segir smá
tíma hafa tekið að komast inn á
markaðinn hér fyrir sunnan en hins
vegar sé góður orðstír það sem geri
mest fyrir uppbyggingu fyrirtækis.
solveig@frettabladid.is
Megnið af börnunum í pípunum
Rörmenn Íslands. Sveinn Símonarson pípari ásamt dóttur sinni Soffíu og syninum Bergvin en þau hafa bæði starfað mikið með
föður sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Íslensk hönnun og íslensk
framleiðsla einkennir innrétt-
ingar frá fyrirtækinu Brúnási.
Brúnásinnréttingar eru fram-
leiddar af trésmíðaverkstæðinu
Miðási á Egilsstöðum sem er
hátæknivætt. Þær fást í eldhús,
baðherbergi og svefnherbergi og
eru hannaðar af Guðrúnu Mar-
gréti Ólafsdóttur og Oddgeiri
Þórðarsyni innanhússhönnuðum
sem reka saman Go Form design
studio í Reykjavík.
Brúnás er með sýningarsal í
Ármúla 17a í Reykjavík og þar
býðst fagleg þjónusta og ráðgjöf
enda getur hver og einn látið
hanna fyrir sig eftir eigin óskum.
Sýningarsalur er einnig á Egils-
stöðum að Miðási 11, í sömu bygg-
ingu og framleiðslan er. Þar er
líka aðalskrifstofa fyrirtækisins.
Á heimasíðunni www.brunas.is er
hægt að skoða innréttingar í þrí-
vídd. - gun
Fyrir hvern
og einn
Eldhúsinnréttingarnar eru af mörgum
gerðum.
Glasamottur eru sniðugar til að vernda falleg húsgögn fyrir
skemmdum eins og vatnshringjum eftir glös og þess háttar. Hægt er
að fá ýmiss konar glasamottur og margar mjög fallegar á að líta.