Tíminn - 02.08.1981, Page 6
Sunnudagur 2. ágúst 1981
Og siðan þegar fólkinu sem byr á
Dalbraut fer að hraka þá vantar
langlegupláss fyrir það. Ekki
getur það búið áfram á Dalbraut-
inni vegna þess að þar er mjög
litil aðstaða fyrir rúmliggjandi
fólk og í rauninni ómögulegt að
hafa þannig sjúklinga þar.” Hér
má svo bæta þvi við að á þeim
stutta tima sem Dalbraut hefur
verið starfrækt hefur f jöldi þeirra
vistmanna sem heimahjúkrun
þarf að fara til aukist gifurlega.
Þöttþað sé ekki mitt að spá neinu
þar um virðast sömu örlög biða
Dalbrautar og annarra vist-
heimila: að þar fyllist alltaf m jög
sjúku fólki sem ekki er hægt að
koma fyrir annarsstaðar. Nema
eitthvað verði að gert.
Og það er nú svo sem ýmislegt
á döfinni. Stjórn Borgarspítalans
mun áður en langt um liður
taka i notkun 19 rUm á Hvita
bandinu, þar sem áður var
göngudeild geðdeildar Lands
spitalans.en sústarfsemihefurnú
verið flutt annað. Þessi 19 rúm
munu hvergi nærrinægja en eru
skárri en ekkert, að mati þeirra
sem ég talaði við. Skúli Johnsen,
borgarlæknir, kvaðst búast við að
hægt væri að taka þau i gagnið
um áramótin næstu. A næsta ári
er einnig búist við að tekið verði i
notkun ellideild fyrir 44 i' ný-
byggingu sem verið er að reisa
við Snorrabraut. Þá sagðist SkUli
Johnsen gera sér vonir um að á
næsta ári verði einnig hægt að
taka inotkun eina til tvær hæðir i
B-álmunni margfrægu og hana
alla siðar. 1 fyrstu lotu gæti orðið
þar um að ræða fimmtiu til sextiu
sjúkrarúm ,,Ef horft er til lengri
tima,” sagði Skúli, ,,eru einnig
komnar fram hugmyndir um
hjúkrunarheimili i Seljahverfi i
Breiðholti og Hrafnista i Hafnar-
firði mun að þvi er ég held taka i
notkun einhvern tima á næstunni
hjúkrunardeild með sjötiu til niu-
tiu rúmum.” Loks má nefna
hjúkrunarheimilið i Kópavogi og
vafalaust sitthvað fleira.
En erástandið þá eins slæmt og
hér hafa verið leidd rök að? Þurfa
menn ekki bara að halda sér fast i
örfá árog siðan verði allt komið i
lag? t fyrsta lagi er aðstaða þess
aldraða fólks sem nú býr við sem
þrengstan kost þannig að ofan
greint sjónarmið á engan rétt á
sér. Og i öðru vaktiSkUli Johnsen
athygli á hlut sem sumir gera sér
ef til vill ekki grein fyrir.
„Þannig er mál með vexti að
það eru miklir erfiðleikar i
rekstri Grundar og Hrafnistu. Inn
á þau heimiíi hafa komiö mjög
þungir sjúklingar, miKiu pyngn i
rauninni en heimilin eru gerð
fyrir og eigendurnir ætluöu sér i
upphafi. Bæði Grund og Hrafnista
áttu og eiga að vera vistheimili
fyrir fólk sem hefur fótavist en
reyndin hefur oröið önnur. A
Hrafnistu eru nú 160 sjUklingar á
sjúkradeild og þar er mjög erfiö
aðstaöa og illa hefur gengið að
manna þessar deildir. A Grund er
ástandið enn verrra, þar eru 250-
260 á sjúkradeild og aðstaöa
engan veginn fullnægjandi. Enda
hefur Grund fækkað plássum hjá
sérum ein 40 rúm á undanförnum
árum þvi þar voru orðin óhemju-
leg þrengsli. Eigendunum likar
ekki þessi þróun en þeir koma
sjúklingunum ekki á aðra staði
þvi þeireru ekki til. Og þó svo að
þeirvildu hafa þessa sjUklinga þá
hafa þeir ekki efni á að gera þær
breytingar sem þörf er á til að að-
hlynningin geti verið sem allra
best.” Það er þvi ljóst að undir
eins og ný sjUkrarúm eru tekin i
notkun munu þau fyllast af sjúk-
lingum sem nú liggja á stofnun-
um eða sjúkrahúsum þar sem
þeir eiga ekki heima. Skúli John-
sen sagði að ástandið væri i raun
verra nú en fyrir tiu til fimmtán
árum. Sjúkrarúmum hefur að
vfsu fjölgað eitthvað en gamla
fólkinu hefur hins vegar fjölgað
miklu meira, og nú er talið að 10%
af ibUum Reykjavikur séu komnir
yfir 67ára aldur. Er það óeðlilega
há prösentutala en stafar ekki síst
af því að roskið og aldraö fólk
flystm jög til Reykjavikur eftir að
börnþess eru öll komin þangað og
siðan er unga fólkið flytur i ná-
grannabyggðirnar verður gamla
fólkiö eftir „Þessum málum var
ekkert sinnt i tuttugu ár,” sagði
Skúli Johnsen. „Meðan verið var
að byggja upp sjúkrahúsin, á
árunum 1950-70, var nánast
ekkert gert i heilbrigðis-
þjónustunni nema fyrir bráöveikt
fólk. Það er mikiö sem viö
þurfum að vinna upp.”
sem þeir þurfa á að halda. Þór
sagði reyndar athyglisvert að
langerfiðustu sjúklingarnir væru
flestir í HátUni, á heimflinu að
Sólvangi, og svo í heimahúsum
þar sem fólk hefur ekki nokkra
aðstöðu til að sinna þeim jafnvel
og þarf. „Ot og inn skemað” er
einmitt hugsað til að leysa þann
vanda, að minnsta kosti til bráða-
birgða. Þá skiptast tveir sjúkling-
ar á um eitt sjúkrarúm þannig að
annar þeirra er vistaður á Hátúni
isex vikur en siðan er hann send-
ur heim til sin og hinn sjúklingur-
inn tekur við i aðrar sex vikur og
svo framvegis. Þetta sagði Þór að
drýgði langleguplássið og hefði
gengið allvel i flestum tilfellum.
„Einn þátt i starfsemi okkar
langar mig að nefna sérstak-
lega,” sagði Þór ennfremur,” en
það er göngudeild. Eftir að sjUk-
lingar okkar hafa Utskrifast
reynum við að fylgjast eins vel
með þeim og kostur er. Það er jú
um að ræða króniskan sjúkdóm
sem varla læknast. Ég held
reyndar að ástæðan til þess að
sjúkrahUsin sjálf ná oft fremur
lélegum árangri sé sU að starf-
semin þar nær ekkert Ut fyrir
deildina sjálfa. Strax og sjUk-
lingur er orðinn hitalaus er hann
sendur heim, án þess að það sé
athugað hvort hann geti bjargað
sér heima hjá sér. Með göngu-
deildinni sleppum við ekki hend-
inni af sjUklingunum, þeir koma
með vissu millibili til rannsóknar
og eftirlits og ég álit að það sé
mjög til bóta . Við sjáum einnig
fyrir félagsfræðilegri þjónustu og
ég vil taka skýrt fram að ég tel að
félagsfræðingurinn gegni lykil-
hlutverki i þessum efnum.
Félagsleg vandamál
Vandamál .gamal fólksins
eru jú sambland af líkamlegum
og félagslegum þáttum, og það er
nauðsynlegt að leysa þau i hóp-
vinnu allra þeirra sem að þessum
málum starfa. Ég villeggja mjög
mikla áherslu á höpvinnuna.
Læknar, hjúkrunarfólk, félags-
fræðingar og aðrir sem vinna við
þetta verða aö vinna mjög vel
saman ef einhver árangur á að
nást. Félagsfræðingurinn hér sér
um félagsleg vandamál aldraða
fólksins, eins og liggur i hlutarins
eðli, ogþá á ég viðhlutieins og að
hafa samband við aðstandendur
áður en sjúklingur er sendur
heim, undirbúa það undir komu
hans eins vel og hægt er, athuga
húsnæðismál og fleira i þeim dúr.
Við gerum mikiö af þvi að halda
hér fjölskyldufundi áður en sjúk-
lingur fer heim, þá er fjölskylda
hans kölluð hingað og lagðar eru
linur fyrir framtiðina. Sjúkling-
urinn sjálfur tekur þátt i þessum
fundum ef hann er fær um að taka
eigin ákvarðanir. Ég hef orðið
mjög var við það að tregða fólks
til að taka við þungum sjúk-
lingum minnkar oft eftir svona
fundi, þegar við kennum þvi að
hugsa um þá með sem minnstri
fyrirhöfn og upplýstum það um
þjónustusem hið opinbera veitir,
heimahjúkrun, heimilishjálp,
matarsendingar og svo fram-
vegis.”
Siðan sagði Þór: „Það má
segja að framtiðardraumur
okkar hér sé að fá aðstöðu á
Landspitalalóðinni sjálfri. Við
erum hér töluvert út úr og þótt
fjarlægðin að Landspítalanum sé
i sjálfu sér ekki mikil er það engu
að siður ótrúlega mikið handi-
kapp fyrir okkur. Við höfum
minna samband við aðrar deildir
og kollega en ella og ef við
verðum að senda sjúkling i rann-
sókn á Landspítalann þá er það
mjög dýrt, þvi hann veríur að
fara i s júkrabil. Af þessu leiöir að
rannsóknarþjónusta okkar er
ekki eins góö og hún ætti að vera.
Sjáðu til. Hvorki stjórnvöldin né
sumir kollegar minir hafa gert
sér grein fyrir þvi að „aktifar”
öldrunarlækningar eru i rauninni
mun vænlegri kostur en að reisa
stofnanir. Stofnanir eru dýrasta
uppátæki sem hugsast getur, auk
þess sem þær hljóta alltaf að vera
talsvert ómannúðlegar. Enda
sýna kannanir meðal gamals
fóiks að mikill meirihluti þess vill
dveljast heima hjá sér en ekki
fara á stofnun. Ogviðverðum að
gera þvi kleift að vera heima hjá
sér.”
Þór sagði og að samkvæmt
heimildum hans væri meira af
vistplássum hérá landi hlutfalls-
lega en til dæmis á Norður-
löndunum. Engu að siður væri
óviða eins mikið af veiku fólki og
einmitt hér. Hann nefndi tvær
ástæður fyrir þessu. 1 fyrsta lagi
vantar mun meiri samhæfingu
þeirra sjúkrastofnana sem sinna
gömlu fólki. Mikið af þessum
stofnunum eru sjálfstæðar ein-
ingar sem reknar eru af einka-
aðilum og samvinna milli þeirra
er hvergi nærri nægjanleg.
Plássið nýtist af þessum sökum
illa. Og I öðru lagi er ekki haft
neitt eftirlit með þessum stofn-
unum. Viðverðum aðgæta að þvi
að þessar stofnanir eru að lang-
mestum hluta reknar fyrir fé frá
Tryggingastofnun rikisins,en hún
hefur ekki — og hefur kannski
ekki aðstöðu til — fylgst með þvi
hvernig þessum peningum er
varið, hverjir eru inni á þessum
stofnunum og þess háttar. 1
Skandinaviu er það hið opinbera
sem metur hverjir þurfa á þvi að
halda að leggjast inn á stofnanir:
En svona eftirlit hefur hingað til
ekki mátt nefna við eigendur
privatstofnana. Það hefur
reyndar verið algerlega rangt
staðið að uppbyggingu vistpláss
fyrir aldrað fólk hér á Islandi
undanfarin ár. Það hefur verið
lögð mun meiri áhersla á félags-
lega þáttinn en hinn likamlega,
sem sé aðreisa hjúkrunarheimili
fyrir þá sem eru mjög veikir.
Hins vegarhefur verið reist mikið
af vistheimilum fyrir rólfært fólk.
Astæðan fyrir þessu er eingöngu
pólitisk. Sjáðu nú til. Ef einkaaðili
■ Hátún lOb. 1 þessari öldrunarlækningadeild frá Landsspitalanum er áherslan fyrst og fremst lögö á
„ak tívar” lækningar, sem sé endurhæfingu. Arangurinn mun vera góöur.
tekur sig til og reisir vistheimili
þá fær hann góðan styrk frá sveit-
arfélaginu, hann fær húsnæðis-
málastjómarlán og svo fram-
vegis. En ef reisa á sjúkrahús þá
borgar rikiö 85% af þvl ai
sveitarfélagið 15%. Rikið hefur
dcki talið sig hafa bolmagn til
þess.”
Ýmislegt á döfinni
Einmitt þetta atriöi, aö rangt
hefði verið staðið að uppbyggingu
húsnæðis fyrir aldraða, virtist
vera ofarlega ihuga fleiri sem ég
talaði við. Kolbrún Agústsdóttir
hjá Heimahjúkrun minntist i þvi
sambandi á vistheimilið við Dal-
braut vegna þess að húsnæöis-
vandi gamals fólks er mjög
mikill. Margt af þvi býr i svo lé-
legu húsnasði i Vesturbæ og Mið-
bæ að þvi trúir enginn sem ekki
hefur séð það. Þvi veitti þess
vegna ekki af að komast i al-
mennileg hús. En framhjá hinu
verður heldur ekki horft að þörfin
á langlegudeild var mikiu meiri.
Nýbyggingin viö Snorrabraut. Þar veröur m.a. deild fyrir heilabilaö gamalt fólk en uppi eru efa-
semdir um aö hún komi aö fullu gagni þótt þörfin sé mikil.
I Dalbraut. Glæsilegar ibúöir fyrir gamalt fólk en var byrjaö á öfugum enda?